Fleiri fréttir Ofbeldi gegn börnum skiptir litlu Íslensk kona hefur opnað vefsíðu þar sem hún lýsir skelfilegu ofbeldi og sinnuleysi sem börn hennar hafa þurft að þola af hendi föður síns. Konan er þó neydd til þess að veita honum umgengnisrétt þótt börnin óttist manninn mjög og líði miklar þjáningar hans vegna. 31.10.2009 00:01 Stemmingin Dr. Gunni skrifar Líðan manns er spurning um stemmingu. Jú, jú, það eru einhver efni á fleygiferð í hauskúpunni á manni sem gera sitt, en svona í grunninn þá er þetta bara spurning um stemmingu. Og stemmingunni ræður maður að miklum hluta sjálfur. Frasinn um hálf fulla eða hálf tóma glasið er sannleikanum samkvæmur. 29.10.2009 06:00 Smitfóbía pólitíkusa Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar Juan nokkur Perez, sem er vaskur bæjarstjórnarfulltrúi í spænska þorpinu Zújar, gengur með afar góða hugmynd í maganum. Hún er á þá leið að bæjarfélagið hefji rekstur útvarpsstöðvar líkt og svo mörg önnur sveitarfélög gera hér á Spáni. 28.10.2009 06:00 Myndskreyttir menn Páll Baldvin Baldvinsson skrifar „Eigum við ekki að fara í lagningu?“ spurði hann því framundan var boð með skemmtilegum konum og við áttum bara að vera tveir þótt sá þriðji bættist reyndar í hópinn. Ég svaraði: „Jú, og kantskurð og vax.“ Svarið kom hratt: „Brasilískt?“ 27.10.2009 06:00 Framtíðarsýn Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar Mig dreymdi að væri komið árið 2012, þeir tunglið höfðu malbikað og steypt í hólf og gólf. Já veröldin var skrýtin, það var allt orðið breytt, því vélar unnu störfin og enginn gerði neitt,“ söng Vilhjálmur Vilhjálmsson árið 1969 á plötunni Hún hring minn ber. 22.10.2009 06:00 Milliliðalaust Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar Ríkisstjórnin bað í gær þegna landsins um að beina reiði sinni ekki að persónum og heimilum. Rétt væri að skilja þar á milli og þrátt fyrir að réttur fólks til mótmæla væri vissulega viðurkenndur, sé mikilvægt að þau mótmæli séu skipulögð, friðsamleg og rúmist innan allsherjarreglu samfélagsins. 21.10.2009 06:00 Stieg vinur minn Fyrir nokkrum mánuðum rændi Svíi hjarta mínu. Já, þetta gerðist þrátt fyrir að ég sé vel að mér um Íslendingasögur og viti að Svíar eru undantekningarlaust vondir menn, göldróttir og jafnvel berserkir. Ég var stödd úti í bókabúð, ákveðin í að kaupa mér skemmtilegt léttmeti og komin með kilju í hönd. Í biðröðinni hitti ég fyrir annan viðskiptavin. Honum þótti augljóslega lítið til bókarinnar í höndum mér koma en ýtti að mér annarri bók. Bókin hét Karlar sem hata konur og hafði ég verið þess fullviss að þar væri á ferð femínískt fræðirit en ég var ekki á höttunum eftir slíku riti þennan eftirmiðdag. En af því að þessi maður í bókabúðinni var nú sjálfur Egill Helgason, sem margir telja nestor íslenskrar bókmenntaumræðu, og af því að röðin var komin að mér við kassann gerðist ég meðvirk mjög og skipti umhugsunarlaust um skruddu. Þegar út var komið sá ég samstundis eftir skiptunum og var skapi næst að bíða eftir því að Egill og önnur gáfumenni sem höfðu hreiðrað um sig inni í búðinni færu burt svo ég gæti skilað henni. 20.10.2009 06:00 Til öryggis Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar Fyrir bara tveimur örstuttum árum vorum við á hátindi oflætisins og okkur allir vegir færir. Rjómi íslenska aðalsins spókaði sig í bönkum og kauphöllum heimsins og gerði feita díla á báðar hendur, svo rosalega snjalla. Við hin vorum reyndar ábekingar en höfðum ekki hugmynd um það. Skammsýni okkar og trúgirni borgum við nú dýru verði. Eins og undanfarið ár hafi ekki verið nógu harkalegur skellur á hrjáðri þjóð, þá byrjar vetur númer tvö af engu minna offorsi. Ofan á efnahagshörmungar bætast fleiri ógnir gegn heimilum og heilsufari. Öfugt við stemminguna fyrir tveimur árum þegar við vorum öll svakalega alþjóðleg og smartheitin komu viðstöðulaust frá útlöndum, þá kemur nú þaðan ekkert nema lífshætta. 19.10.2009 06:00 Dauðalisti tungumálsins 17.10.2009 00:01 Þegar allt breyttist ekki Dr. Gunni skrifar Mér fannst fall Berlínarmúrsins ekkert svo merkilegt. Að minnsta kosti man ég ekkert hvað ég var að gera þegar fréttin barst. Ég man hins vegar ljóslifandi eftir 11. september 2001. Maður var alveg í smá sjokki, fyrst og fremst vegna þess að ég og Lufsan áttum pantaða New York-ferð í desember. Við höfðum skoðað myndir af mollinu sem var í kjallara World Trade Center. Hún vildi hætta við ferðina en ég náði að lempa hana til að fara. Maður tók fyrst og fremst eftir því hvað ameríski fáninn var úti um allt. Blakti alls staðar á húsum og á bílum. 15.10.2009 06:00 Hlátur í huga Páll Baldvin Baldvinsson skrifar Ég er að hugsa um að fara á hlátursnámskeið," sagði hann ákveðinn og svipti skyrtu út úr skápnum. Honum var greinilega enginn hlátur í hug. "Ókei," sagði ég. "Þarftu þess?" Hann sneri sér að mér grafalvarlegur á svip og sagði dimmum rómi: "Þetta er sko ekkert djók lengur." Það mátti alveg samsinna því. Maðurinn var enn blár eftir tuttugu kílómetra á belti, sturtan hafði ekkert náð honum niður, og nú var hann tekinn að klæða sig með snörpum handtökum. 13.10.2009 08:35 Aftur í sama farið? Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar Það getur reynst erfitt að breyta út af vananum. Við erum gjörn á að hjakka í sama hjólfarinu og sitja sem fastast í þeim aðstæðum sem við þekkjum best, jafnvel þó þær aðstæður séu ekki endilega þær bestu og breytinga væri þörf. Það felst ákveðið öryggi í þessu venjulega. Þó að okkur takist stundum að hrista upp í hlutunum og breyta tímabundið til er tilhneigingin til að falla aftur í sama farið rík. 8.10.2009 06:00 Glatað tækifæri Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar Það gustaði um vinstri menn hér á landi eftir kosningarnar í apríl. Þjóðin hafði veitt minnihlutastjórninni umboð sitt til að takast á við vandann og gert hana að meirihlutastjórn. Tveir vinstri flokkar höfðu fengið meirihlutafylgi; nokkuð sem aldrei hafði áður gerst í sögunni. Enga meðreiðarsveina þurfti með og hægt var að teikna upp vinstri stjórn eins og vinstri menn vildu hafa hana. 7.10.2009 06:00 Til sölu Karen Dröfn Kjartansdóttir skrifar Einbýlishús til sölu, eiginkona fylgir í kaupbæti. Einhvern veginn svona hljómaði fyrirsögn á auglýsingu rúmlega fertugrar konu frá Flórída sem birtist í fyrra. Hún hét, og heitir sjálfsagt enn, Deven Trabosh og var orðin hundleið á að reyna að losna við húsið sitt sem var orðið verðlaust en hún þurfti þó að greiða af um hver mánaðamót. Þá höfðu andvökunætur hennar á næturklúbbum bæjarins einnig skilað lélegum árangri. Hús hennar og hjarta var falt fyrir rétt verð og réttan mann en enginn virtist áhugasamur þótt hvort tveggja væri svo sem nógu snoturt. Það var eitthvað hrífandi við hana Deven. Hún bar sig hvorki aumlega né vældi á skjaldborg heimilanna heldur snurfusaði sig og bauð það sem hún átti til sölu. Einhvern veginn var þetta uppátæki svo einlægt og bros hennar svo viðkvæmnislegt undir alltof miklum farða að ekki var hægt að hneykslast á henni. Hún var bara eitthvað svo elskuleg og fullviss um ágæti eigin uppátækis. 6.10.2009 09:31 Bómullarlífið búið að eilífu Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar Mánuði eftir að ég horfði klökk á eftir litlu dótturinni byrja í skóla, taldist mér til að á tímabilinu væru horfnar þrjár húfur, eitt buff, fjölmargir vettlingar og ullarsokkar auk gullfallegu lopapeysunnar frá ömmu. Þrátt fyrir talsverða vandvirkni höfðum við steingleymt að kenna barninu að passa sjálfu upp á fötin sín. 5.10.2009 12:31 Fjárfestum í kennurum Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur víðs vegar um heim í dag, mánudaginn 5. október, að forgöngu Education International eða Alþjóðasambands kennarafélaga. Markmið alþjóðadagsins er að vekja athygli á kennarastarfinu og mikilvægu hlutverki kennara í samfélaginu. 5.10.2009 00:01 Afburðamenn og örlagavaldar Í vikunni afhjúpuðu fornleifafræðingar salarkynni sem þeir telja að hafi tilheyrt Neró Rómarkeisara, sem ríkti frá árinu 54 til 68 eftir Krist. Veislusalur þessi þykir mikið verkfræðiundur því hann er búinn þeim kosti að geta snúist í hringi fyrir vatnsafli. Það verður ekki af Neró tekið að hann hugsaði stórt. Hverjum dettur í hug að reisa veislusal sem snýst í hringi? 2.10.2009 06:00 Yfirdrátturinn Dr. Gunni skrifar Hér kem ég með allt niður um mig og játa það möglunarlaust: Ég er óreiðumaður! Þetta hefur ekki alltaf verið svona. Einu sinni var bankakerfið þannig að manni tókst ekki eins auðveldlega að verða óreiðumaður. Ég átti alltaf pening og skuldaði aldrei neitt í gamla daga, allavega í minningunni. Maður fór til útlanda með ferðatékka og seðlabúnt. Kreditkort voru ekki til. Maður skammtaði sér aur í þrjár vikur, en datt svo auðvitað inn í alltof góða plötubúð og eyddi um efni fram. Mér er minnisstæð síðasta vikan í Interrail-ferðinni 1983. Þá gisti ég á farfuglaheimili sem hafði þann ókost að manni var hent út á milli kl. 9 og 17. 1.10.2009 06:00 Sjá næstu 50 greinar
Ofbeldi gegn börnum skiptir litlu Íslensk kona hefur opnað vefsíðu þar sem hún lýsir skelfilegu ofbeldi og sinnuleysi sem börn hennar hafa þurft að þola af hendi föður síns. Konan er þó neydd til þess að veita honum umgengnisrétt þótt börnin óttist manninn mjög og líði miklar þjáningar hans vegna. 31.10.2009 00:01
Stemmingin Dr. Gunni skrifar Líðan manns er spurning um stemmingu. Jú, jú, það eru einhver efni á fleygiferð í hauskúpunni á manni sem gera sitt, en svona í grunninn þá er þetta bara spurning um stemmingu. Og stemmingunni ræður maður að miklum hluta sjálfur. Frasinn um hálf fulla eða hálf tóma glasið er sannleikanum samkvæmur. 29.10.2009 06:00
Smitfóbía pólitíkusa Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar Juan nokkur Perez, sem er vaskur bæjarstjórnarfulltrúi í spænska þorpinu Zújar, gengur með afar góða hugmynd í maganum. Hún er á þá leið að bæjarfélagið hefji rekstur útvarpsstöðvar líkt og svo mörg önnur sveitarfélög gera hér á Spáni. 28.10.2009 06:00
Myndskreyttir menn Páll Baldvin Baldvinsson skrifar „Eigum við ekki að fara í lagningu?“ spurði hann því framundan var boð með skemmtilegum konum og við áttum bara að vera tveir þótt sá þriðji bættist reyndar í hópinn. Ég svaraði: „Jú, og kantskurð og vax.“ Svarið kom hratt: „Brasilískt?“ 27.10.2009 06:00
Framtíðarsýn Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar Mig dreymdi að væri komið árið 2012, þeir tunglið höfðu malbikað og steypt í hólf og gólf. Já veröldin var skrýtin, það var allt orðið breytt, því vélar unnu störfin og enginn gerði neitt,“ söng Vilhjálmur Vilhjálmsson árið 1969 á plötunni Hún hring minn ber. 22.10.2009 06:00
Milliliðalaust Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar Ríkisstjórnin bað í gær þegna landsins um að beina reiði sinni ekki að persónum og heimilum. Rétt væri að skilja þar á milli og þrátt fyrir að réttur fólks til mótmæla væri vissulega viðurkenndur, sé mikilvægt að þau mótmæli séu skipulögð, friðsamleg og rúmist innan allsherjarreglu samfélagsins. 21.10.2009 06:00
Stieg vinur minn Fyrir nokkrum mánuðum rændi Svíi hjarta mínu. Já, þetta gerðist þrátt fyrir að ég sé vel að mér um Íslendingasögur og viti að Svíar eru undantekningarlaust vondir menn, göldróttir og jafnvel berserkir. Ég var stödd úti í bókabúð, ákveðin í að kaupa mér skemmtilegt léttmeti og komin með kilju í hönd. Í biðröðinni hitti ég fyrir annan viðskiptavin. Honum þótti augljóslega lítið til bókarinnar í höndum mér koma en ýtti að mér annarri bók. Bókin hét Karlar sem hata konur og hafði ég verið þess fullviss að þar væri á ferð femínískt fræðirit en ég var ekki á höttunum eftir slíku riti þennan eftirmiðdag. En af því að þessi maður í bókabúðinni var nú sjálfur Egill Helgason, sem margir telja nestor íslenskrar bókmenntaumræðu, og af því að röðin var komin að mér við kassann gerðist ég meðvirk mjög og skipti umhugsunarlaust um skruddu. Þegar út var komið sá ég samstundis eftir skiptunum og var skapi næst að bíða eftir því að Egill og önnur gáfumenni sem höfðu hreiðrað um sig inni í búðinni færu burt svo ég gæti skilað henni. 20.10.2009 06:00
Til öryggis Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar Fyrir bara tveimur örstuttum árum vorum við á hátindi oflætisins og okkur allir vegir færir. Rjómi íslenska aðalsins spókaði sig í bönkum og kauphöllum heimsins og gerði feita díla á báðar hendur, svo rosalega snjalla. Við hin vorum reyndar ábekingar en höfðum ekki hugmynd um það. Skammsýni okkar og trúgirni borgum við nú dýru verði. Eins og undanfarið ár hafi ekki verið nógu harkalegur skellur á hrjáðri þjóð, þá byrjar vetur númer tvö af engu minna offorsi. Ofan á efnahagshörmungar bætast fleiri ógnir gegn heimilum og heilsufari. Öfugt við stemminguna fyrir tveimur árum þegar við vorum öll svakalega alþjóðleg og smartheitin komu viðstöðulaust frá útlöndum, þá kemur nú þaðan ekkert nema lífshætta. 19.10.2009 06:00
Þegar allt breyttist ekki Dr. Gunni skrifar Mér fannst fall Berlínarmúrsins ekkert svo merkilegt. Að minnsta kosti man ég ekkert hvað ég var að gera þegar fréttin barst. Ég man hins vegar ljóslifandi eftir 11. september 2001. Maður var alveg í smá sjokki, fyrst og fremst vegna þess að ég og Lufsan áttum pantaða New York-ferð í desember. Við höfðum skoðað myndir af mollinu sem var í kjallara World Trade Center. Hún vildi hætta við ferðina en ég náði að lempa hana til að fara. Maður tók fyrst og fremst eftir því hvað ameríski fáninn var úti um allt. Blakti alls staðar á húsum og á bílum. 15.10.2009 06:00
Hlátur í huga Páll Baldvin Baldvinsson skrifar Ég er að hugsa um að fara á hlátursnámskeið," sagði hann ákveðinn og svipti skyrtu út úr skápnum. Honum var greinilega enginn hlátur í hug. "Ókei," sagði ég. "Þarftu þess?" Hann sneri sér að mér grafalvarlegur á svip og sagði dimmum rómi: "Þetta er sko ekkert djók lengur." Það mátti alveg samsinna því. Maðurinn var enn blár eftir tuttugu kílómetra á belti, sturtan hafði ekkert náð honum niður, og nú var hann tekinn að klæða sig með snörpum handtökum. 13.10.2009 08:35
Aftur í sama farið? Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar Það getur reynst erfitt að breyta út af vananum. Við erum gjörn á að hjakka í sama hjólfarinu og sitja sem fastast í þeim aðstæðum sem við þekkjum best, jafnvel þó þær aðstæður séu ekki endilega þær bestu og breytinga væri þörf. Það felst ákveðið öryggi í þessu venjulega. Þó að okkur takist stundum að hrista upp í hlutunum og breyta tímabundið til er tilhneigingin til að falla aftur í sama farið rík. 8.10.2009 06:00
Glatað tækifæri Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar Það gustaði um vinstri menn hér á landi eftir kosningarnar í apríl. Þjóðin hafði veitt minnihlutastjórninni umboð sitt til að takast á við vandann og gert hana að meirihlutastjórn. Tveir vinstri flokkar höfðu fengið meirihlutafylgi; nokkuð sem aldrei hafði áður gerst í sögunni. Enga meðreiðarsveina þurfti með og hægt var að teikna upp vinstri stjórn eins og vinstri menn vildu hafa hana. 7.10.2009 06:00
Til sölu Karen Dröfn Kjartansdóttir skrifar Einbýlishús til sölu, eiginkona fylgir í kaupbæti. Einhvern veginn svona hljómaði fyrirsögn á auglýsingu rúmlega fertugrar konu frá Flórída sem birtist í fyrra. Hún hét, og heitir sjálfsagt enn, Deven Trabosh og var orðin hundleið á að reyna að losna við húsið sitt sem var orðið verðlaust en hún þurfti þó að greiða af um hver mánaðamót. Þá höfðu andvökunætur hennar á næturklúbbum bæjarins einnig skilað lélegum árangri. Hús hennar og hjarta var falt fyrir rétt verð og réttan mann en enginn virtist áhugasamur þótt hvort tveggja væri svo sem nógu snoturt. Það var eitthvað hrífandi við hana Deven. Hún bar sig hvorki aumlega né vældi á skjaldborg heimilanna heldur snurfusaði sig og bauð það sem hún átti til sölu. Einhvern veginn var þetta uppátæki svo einlægt og bros hennar svo viðkvæmnislegt undir alltof miklum farða að ekki var hægt að hneykslast á henni. Hún var bara eitthvað svo elskuleg og fullviss um ágæti eigin uppátækis. 6.10.2009 09:31
Bómullarlífið búið að eilífu Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar Mánuði eftir að ég horfði klökk á eftir litlu dótturinni byrja í skóla, taldist mér til að á tímabilinu væru horfnar þrjár húfur, eitt buff, fjölmargir vettlingar og ullarsokkar auk gullfallegu lopapeysunnar frá ömmu. Þrátt fyrir talsverða vandvirkni höfðum við steingleymt að kenna barninu að passa sjálfu upp á fötin sín. 5.10.2009 12:31
Fjárfestum í kennurum Þórhildur Elín Elínardóttir skrifar Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur víðs vegar um heim í dag, mánudaginn 5. október, að forgöngu Education International eða Alþjóðasambands kennarafélaga. Markmið alþjóðadagsins er að vekja athygli á kennarastarfinu og mikilvægu hlutverki kennara í samfélaginu. 5.10.2009 00:01
Afburðamenn og örlagavaldar Í vikunni afhjúpuðu fornleifafræðingar salarkynni sem þeir telja að hafi tilheyrt Neró Rómarkeisara, sem ríkti frá árinu 54 til 68 eftir Krist. Veislusalur þessi þykir mikið verkfræðiundur því hann er búinn þeim kosti að geta snúist í hringi fyrir vatnsafli. Það verður ekki af Neró tekið að hann hugsaði stórt. Hverjum dettur í hug að reisa veislusal sem snýst í hringi? 2.10.2009 06:00
Yfirdrátturinn Dr. Gunni skrifar Hér kem ég með allt niður um mig og játa það möglunarlaust: Ég er óreiðumaður! Þetta hefur ekki alltaf verið svona. Einu sinni var bankakerfið þannig að manni tókst ekki eins auðveldlega að verða óreiðumaður. Ég átti alltaf pening og skuldaði aldrei neitt í gamla daga, allavega í minningunni. Maður fór til útlanda með ferðatékka og seðlabúnt. Kreditkort voru ekki til. Maður skammtaði sér aur í þrjár vikur, en datt svo auðvitað inn í alltof góða plötubúð og eyddi um efni fram. Mér er minnisstæð síðasta vikan í Interrail-ferðinni 1983. Þá gisti ég á farfuglaheimili sem hafði þann ókost að manni var hent út á milli kl. 9 og 17. 1.10.2009 06:00