Fleiri fréttir „Ótrúlega stutt“ á milli flugmanna og Icelandair Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir stutt á milli í kröfum flugmanna og Icelandair. Hann segir óheppilegt að Icelandair hafi ákveðið að senda tilboð sitt á alla flugmenn Icelandair eftir að samninganefnd flugmanna hafði hafnað að bera það undir félagsmenn 13.5.2020 11:56 Leiðinlegt að stærsta verkefnið á markaðnum fari til Bretlands í ójafnri keppni Valgeir Magnússon, stjórnarformaður íslensku auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, segir það leiðinlegt, og skjóta skökku við, að stærsta verkefni á Íslandsmarkaði hafi fallið í skaut breskrar auglýsingastofu, einkum í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi á íslenskum vinnumarkaði. 13.5.2020 11:22 ESB segir neytendur eiga skýlausan rétt á endurgreiðslu fyrir ferðir sem falla niður Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undirstrikar í dag að flugfélög og seljendur pakkaferða verði að endurgreiða farþegum sínum falli ferðir þeirra niður. 13.5.2020 11:03 „Mörg fyrirtæki hér á landi virðast komast upp með nánast hvað sem er“ Neytendur tuða á samfélagsmiðlum og á kaffihúsum en fylgja því of sjaldan eftir segir Rakel Garðarsdóttir. Gæti verið að breytast segir Breki Karlsson sem telur að neytendur muni sniðganga fyrirtæki sem ekki sýna af sér gott siðferði. 13.5.2020 11:00 Vilja tengja kaupaukakerfi flugmanna við rekstarárangur Icelandair Ein af tillögum Icelandair í kjaraviðræðum við Félag íslenskra atvinnuflugmanna er að kaupaukakerfi flugmanna verði breytt þannig að þeir fái hlutdeild í rekstarhagnaði Icelandair, frekar en en vegna stundvísi og lágmörkun eldsneytisnotkunar 13.5.2020 10:38 Evran kosti áfram 160 krónur á næsta ári Ekki er að vænta frekari sveifla á gengi krónunnar í ár gangi spár 28 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði eftir. 13.5.2020 10:19 Nýr gæðastjóri hjá Samherja Sunneva Ósk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin gæðastjóri landvinnslu Samherja og Útgerðarfélags Akureyringa (ÚA). 13.5.2020 09:17 Orðstír fæst ekki keyptur og oft veltir lítil þúfa þungu hlassi Orðsporskrísur hafa alltaf afleiðingar segir Andrés Jónsson en Elísabet Sveinsdóttir telur að þessar afleiðingar mættu vera meiri því fólk sé of fljótt að gleyma. 13.5.2020 09:00 Starfsmenn Twitter fá að vinna heima um ókomna tíð Starfsmenn samfélagsmiðilsins Twitter munu fá að vinna heima um ókomna tíð kjósi þeir það. 13.5.2020 08:49 Einn og hálfur milljarður í markaðsátak erlendis Ríkið mun verja einum og hálfum milljarði í markaðsátak erlendis til að kynna Ísland sem áfangastað fyrir ferðamenn. 13.5.2020 07:37 Festi hefur haft samband við Vinnumálastofnun vegna endurgreiðslu hlutabótaleiðarinnar Eignarhaldsfélagið Festi hefur haft samband við Vinnumálastofnun með það að markmiði að endurgreiða þá upphæð sem fyrirtækið sparaði sér með aðgerðunum. 12.5.2020 18:55 Össur endurgreiðir Vinnumálastofnun Össur hf. hefur tekið ákvörðun um að endurgreiða Vinnumálastofnun það fé sem runnið hefur til 165 starfsmanna félagsins á meðan þeir voru í hlutastarfi vegna COVID-19 faraldursins og hætta að nota úrræðið hér á landi. 12.5.2020 16:16 Búið að semja við bankana um brúarlánin Samningar hafa verið undirritaðir við viðskiptabankana fjóra um veitingu viðbótarlána til fyrirtækja, svonefndra brúarlána. 12.5.2020 14:25 „Algjör einhugur“ á meðal flugfreyja að hafna útspili Icelandair Algjör einhugur er meðal félagsmanna FFÍ um að hafna útspili Icelandair frá 10. maí að því er fram kemur í tilkynningu frá Flugfreyjufélagi Íslands. Afstaða félagsmanna til tilboðs Icelandair var könnuð á fundi þeirra í hádeginu. 12.5.2020 13:37 Flugstjórar með 2,1 milljón á mánuði að meðaltali Flugstjórar hjá Icelandair eru með 2,1 milljón króna í heildarlaun að meðaltali miðað við árið 2019. Flugmenn hjá flugfélaginu eru með 1,1 milljón krónur í heildarlaun að meðaltali. 12.5.2020 13:04 Norðmenn sækja milljarða í olíusjóðinn Stjórnvöld í Noregi hyggjast sækja nærri 420 milljarða norskra króna, um sex þúsund milljarða íslenskra króna, úr olíusjóði sínum til að fjármagna aðgerðir sínar vegna faraldurs kórónuveirunnar. 12.5.2020 11:31 Bein útsending: Hvert er ferðinni heitið? Staðan í efnahagsmálum og aðgerðir ríkisstjórnarinnar verða efni þriðjudagsfyrirlesturs Háskólans í Reykjavík og Vísis í hádeginu í dag. 12.5.2020 11:17 Jákvæðni í atvinnuleysi eða á hlutabótum Það er án efa hægara sagt en gert að halda í jákvæðnina nú þegar atvinnuleysi blasir við eða óvissa með hvað tekur við þegar hlutabótasamningi lýkur. 12.5.2020 11:00 Sjá fram á lengri kórónuveirukreppu Forsvarsmenn fyrirtækja innan vébanda Samtaka atvinnulífsins áætla að frekari uppsagnir séu væntanlegar og að kórónuveirukreppan verði lengri en þeir töldu. 12.5.2020 09:38 Foreldrar að klúðra leiðtogatækifærum barna sinna 12.5.2020 09:00 Ryanair: Um 40 prósent af áætluðum ferðum í júlí Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur staðfest að það ætli að hefja starfssemi þann 1. júlí næstkomandi. 12.5.2020 08:00 Starfsmenn Tesla snúa aftur til vinnu þvert á tilmæli yfirvalda Starfsmenn hjá rafbílaframleiðandanum Tesla munu snúa aftur til vinnu í vikunni þrátt fyrir að ráðamenn í Almeda-sýslu í Kaliforníuríki hafi sagt það vera skynsamlegast að fyrirtækið yrði áfram lokað. 11.5.2020 22:14 KS endurgreiðir sautján milljóna hlutabótagreiðslu Kjötvinnslan Esja Gæðafæði ehf. í Reykjavík, dótturfélag Kaupfélags Skagfirðinga, mun endurgreiða u.þ.b. 17 milljónir króna sem fyrirtækið fékk frá Vinnumálastofnun í hlutabótagreiðslur. 11.5.2020 15:49 Varar flugstéttirnar við að láta Icelandair kúga sig Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hvetur starfsfólk Icelandair til þess að láta ekki kúga sig út í stórfelldar launalækkanir og afsal réttinda. 11.5.2020 13:48 Gefur ekkert uppi um samning flugvirkja Flugmenn hafa boðið 25 prósenta kjaraskerðingu í samningaviðræðum við Icelandair. Flugfreyjur hafa sömuleiðis boðið ýmsar tilslakanir á kjörum. Fullyrt er í Morgunblaðinu í dag að þessar stéttir þurfi að taka á sig 50 til 60 prósenta skerðingu til að forða flugfélaginu frá gjaldþroti. 11.5.2020 11:43 Samfélagsleg ábyrgð: Tíu ráð fyrir vinnuveitendur Heimsmarkmiðin skilja engan eftir, huga að heilsu, jörðinni, atvinnulífinu, nýsköpun, menntun og sjálfbærni.“ 11.5.2020 11:00 Ráðinn í stöðu viðskiptaþróunarstjóra Póstsins Aðalsteinn Guðjónsson hefur verið ráðinn í stöðu viðskiptaþróunarstjóra hjá Póstinum. 11.5.2020 10:44 Ákveðnari fasteignakaupendur í kórónuveirufaraldri Þórey Ólafsdóttir, fasteignasali hjá Landmark, segir að áhrif kórónuveirufaraldursins séu ekki komin fram á fasteignamarkaðnum. Meiri sala hafi verið undanfarið en búist var við og til að mynda töluverð aukning í sölu á sumarhúsum. 11.5.2020 10:18 Berenice frá Origo til Advania Berenice Barrios hefur verið ráðin til Advania til að stýra nýju sviði sem annast sölu og ráðgjöf á Microsoft-lausnum. 11.5.2020 10:17 Að halda einbeitingu í vinnu: Sex góð ráð Nokkur ráð sem hjálpa til við að halda einbeitingunni óháð því hvar eða við hvað við vinnum. 11.5.2020 09:00 Ráðin nýr framkvæmdastjóri Distica Júlía Rós Atladóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra Distica. 11.5.2020 08:14 Segir að flugfreyjur og flugmenn þurfi að taka á sig allt að 60% launalækkun Flugfreyjur og flugmenn Icelandair verða að taka á sig 50 til 60% launalækkun til þess að forða flugfélaginu frá gjaldþroti. 11.5.2020 08:09 Ríkisflugfélag Kólumbíu sækir um gjaldþrotavernd Ríkisflugfélag Kólumbíu, Avianca, hefur sótt um gjaldþrotavernd fyrir bandarískum dómstólum sem gefur stjórnendum færi á að koma lagi áreksturinn án þess að kröfuhafar geti sótt aðfyrirtækinu á sama tíma. 11.5.2020 07:34 Segir starfsfólk Icelandair vera lausnina, ekki vandamálið Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, virðist ekki vera kátur með þá upplifun forstjóra Icelandair að helsta fyrirstaðan fyrir björgun Icelandair sé starfsfólkið sem starfi hjá fyrirtækinu 10.5.2020 12:02 Segir að svo virðist sem sum fyrirtæki hafi nýtt sér hlutabótaleiðina til að bjarga árshlutauppgjörum Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, segir að það virðist sem svo að sum fyrirtæki, sem séu alls ekki í alvarlegum rekstrarvanda, hafi nýtt sér hlutabótaleiðina til að bjarga ársfjórðungsuppgjörum og með því ætlað sér að ganga í augum á fjárfestum. Hann segir þó að óvissan hafi verið mikil og því að einhverju leyti skiljanlegt að fyrirtækin hafi sótt í hlutabótaleiðina. 10.5.2020 11:32 Flestir starfsmenn Facebook og Google vinna heima til 2021 Þegar kórónuveirufaraldurinn fór á kreik gripu fyrirtækin til þeirra ráða að láta starfsmenn vinna heiman frá og mun aðeins lítill hluti starfsmanna snúa aftur á næstu mánuðum. 10.5.2020 10:59 Segir starfsfólkið helstu fyrirstöðu þess að Icelandair verði bjargað Starfsfólk Icelandair er helsta fyrirstaða þess að hægt sé að bjarga Icelandair frá falli, að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra flugfélagsins, í bréfi til starfsmanna. Hann segir að ljúka verði langtímasamningum við flugstéttir félagsins fyrir föstudaginn 22. maí. 9.5.2020 23:35 Mikið spurt um kvikmyndatökur á Íslandi Síminn hefur vart stoppað hjá Íslandsstofu eftir að yfirmaður Netflix tilkynnti að nánast öll framleiðsla kvikmynda hefði stöðvast nema í Suður-Kóreu og á Íslandi. Beðið er eftir leyfi frá yfirvöldum til að hleypa erlendu starfsliði til landsins. 9.5.2020 21:30 Kórónuveiran reynir á túlkun samninga og eiginkonan vill þjóðnýta hann í svefnrannsóknir Í kaffispjalli um helgar er talað við fólk í ólíkum störfum og segir Árni Helgason lögmaður hjá JÁS Lögmönnum að lögmannstarfið sé skemmtilegt því það felur í sér að vinna með svo mörgu fólki. Árni Helgason er sannur B-maður. 9.5.2020 10:00 Sautján starfsmenn kláruðu sóttkví í Kína og Dettifoss loks á heimleið Skipið Dettifoss, sem hefur verið í smíðum í Kína undanfarin misseri, er nú á heimleið en skipið sigldi af stað frá Guangzhou í Kína í gær. 8.5.2020 23:42 Flugmönnum boðin sömu laun og vinna þá meira, fara á hlutabótaúrræði eða lækka launin sín Flugfélagið Air Atlanta bauð flugmönnum sínum að halda óbreyttum launum og vinna umfram vinnuskyldu, fara á hlutabótaleið stjórnvalda eða taka á sig launalækkun. Forstjórinn segir það gert til að takast á við mikið tekjutap vegna kórónuveirufaraldurs. 8.5.2020 20:45 Hagar endurgreiða og Festi hættir að þiggja Fyrirtækin Hagar og Festi hafa ákveðið að nýta sér ekki hlutabótaleið stjórnvalda. Þetta kemur fram í tilkynningum frá fyrirtækjunum á fimmta tímanum. 8.5.2020 16:53 Ferðagjöfina til Íslendinga verður hægt að nálgast fyrstu vikuna í júní Hver Íslendingur fær um 5300 krónur í sinn hlut. 8.5.2020 15:40 Geti lagt inn atvinnuleyfi sitt Leigubílstjórar sem hafa haft atvinnuleyfi í skemur en tvö ár munu fá heimild að leggja inn atvinnuleyfi sitt samkvæmt nýju frumvarpi samgönguráðherra. 8.5.2020 14:38 Vildu verja störf og völdu því hlutabótaleiðina Félagið Origo sem skráð er í Kauphöllinni skilaði 425 milljóna króna hagnaði á fyrsta ársfjórðungi. 8.5.2020 14:25 Sjá næstu 50 fréttir
„Ótrúlega stutt“ á milli flugmanna og Icelandair Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir stutt á milli í kröfum flugmanna og Icelandair. Hann segir óheppilegt að Icelandair hafi ákveðið að senda tilboð sitt á alla flugmenn Icelandair eftir að samninganefnd flugmanna hafði hafnað að bera það undir félagsmenn 13.5.2020 11:56
Leiðinlegt að stærsta verkefnið á markaðnum fari til Bretlands í ójafnri keppni Valgeir Magnússon, stjórnarformaður íslensku auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, segir það leiðinlegt, og skjóta skökku við, að stærsta verkefni á Íslandsmarkaði hafi fallið í skaut breskrar auglýsingastofu, einkum í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi á íslenskum vinnumarkaði. 13.5.2020 11:22
ESB segir neytendur eiga skýlausan rétt á endurgreiðslu fyrir ferðir sem falla niður Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undirstrikar í dag að flugfélög og seljendur pakkaferða verði að endurgreiða farþegum sínum falli ferðir þeirra niður. 13.5.2020 11:03
„Mörg fyrirtæki hér á landi virðast komast upp með nánast hvað sem er“ Neytendur tuða á samfélagsmiðlum og á kaffihúsum en fylgja því of sjaldan eftir segir Rakel Garðarsdóttir. Gæti verið að breytast segir Breki Karlsson sem telur að neytendur muni sniðganga fyrirtæki sem ekki sýna af sér gott siðferði. 13.5.2020 11:00
Vilja tengja kaupaukakerfi flugmanna við rekstarárangur Icelandair Ein af tillögum Icelandair í kjaraviðræðum við Félag íslenskra atvinnuflugmanna er að kaupaukakerfi flugmanna verði breytt þannig að þeir fái hlutdeild í rekstarhagnaði Icelandair, frekar en en vegna stundvísi og lágmörkun eldsneytisnotkunar 13.5.2020 10:38
Evran kosti áfram 160 krónur á næsta ári Ekki er að vænta frekari sveifla á gengi krónunnar í ár gangi spár 28 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði eftir. 13.5.2020 10:19
Nýr gæðastjóri hjá Samherja Sunneva Ósk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin gæðastjóri landvinnslu Samherja og Útgerðarfélags Akureyringa (ÚA). 13.5.2020 09:17
Orðstír fæst ekki keyptur og oft veltir lítil þúfa þungu hlassi Orðsporskrísur hafa alltaf afleiðingar segir Andrés Jónsson en Elísabet Sveinsdóttir telur að þessar afleiðingar mættu vera meiri því fólk sé of fljótt að gleyma. 13.5.2020 09:00
Starfsmenn Twitter fá að vinna heima um ókomna tíð Starfsmenn samfélagsmiðilsins Twitter munu fá að vinna heima um ókomna tíð kjósi þeir það. 13.5.2020 08:49
Einn og hálfur milljarður í markaðsátak erlendis Ríkið mun verja einum og hálfum milljarði í markaðsátak erlendis til að kynna Ísland sem áfangastað fyrir ferðamenn. 13.5.2020 07:37
Festi hefur haft samband við Vinnumálastofnun vegna endurgreiðslu hlutabótaleiðarinnar Eignarhaldsfélagið Festi hefur haft samband við Vinnumálastofnun með það að markmiði að endurgreiða þá upphæð sem fyrirtækið sparaði sér með aðgerðunum. 12.5.2020 18:55
Össur endurgreiðir Vinnumálastofnun Össur hf. hefur tekið ákvörðun um að endurgreiða Vinnumálastofnun það fé sem runnið hefur til 165 starfsmanna félagsins á meðan þeir voru í hlutastarfi vegna COVID-19 faraldursins og hætta að nota úrræðið hér á landi. 12.5.2020 16:16
Búið að semja við bankana um brúarlánin Samningar hafa verið undirritaðir við viðskiptabankana fjóra um veitingu viðbótarlána til fyrirtækja, svonefndra brúarlána. 12.5.2020 14:25
„Algjör einhugur“ á meðal flugfreyja að hafna útspili Icelandair Algjör einhugur er meðal félagsmanna FFÍ um að hafna útspili Icelandair frá 10. maí að því er fram kemur í tilkynningu frá Flugfreyjufélagi Íslands. Afstaða félagsmanna til tilboðs Icelandair var könnuð á fundi þeirra í hádeginu. 12.5.2020 13:37
Flugstjórar með 2,1 milljón á mánuði að meðaltali Flugstjórar hjá Icelandair eru með 2,1 milljón króna í heildarlaun að meðaltali miðað við árið 2019. Flugmenn hjá flugfélaginu eru með 1,1 milljón krónur í heildarlaun að meðaltali. 12.5.2020 13:04
Norðmenn sækja milljarða í olíusjóðinn Stjórnvöld í Noregi hyggjast sækja nærri 420 milljarða norskra króna, um sex þúsund milljarða íslenskra króna, úr olíusjóði sínum til að fjármagna aðgerðir sínar vegna faraldurs kórónuveirunnar. 12.5.2020 11:31
Bein útsending: Hvert er ferðinni heitið? Staðan í efnahagsmálum og aðgerðir ríkisstjórnarinnar verða efni þriðjudagsfyrirlesturs Háskólans í Reykjavík og Vísis í hádeginu í dag. 12.5.2020 11:17
Jákvæðni í atvinnuleysi eða á hlutabótum Það er án efa hægara sagt en gert að halda í jákvæðnina nú þegar atvinnuleysi blasir við eða óvissa með hvað tekur við þegar hlutabótasamningi lýkur. 12.5.2020 11:00
Sjá fram á lengri kórónuveirukreppu Forsvarsmenn fyrirtækja innan vébanda Samtaka atvinnulífsins áætla að frekari uppsagnir séu væntanlegar og að kórónuveirukreppan verði lengri en þeir töldu. 12.5.2020 09:38
Ryanair: Um 40 prósent af áætluðum ferðum í júlí Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur staðfest að það ætli að hefja starfssemi þann 1. júlí næstkomandi. 12.5.2020 08:00
Starfsmenn Tesla snúa aftur til vinnu þvert á tilmæli yfirvalda Starfsmenn hjá rafbílaframleiðandanum Tesla munu snúa aftur til vinnu í vikunni þrátt fyrir að ráðamenn í Almeda-sýslu í Kaliforníuríki hafi sagt það vera skynsamlegast að fyrirtækið yrði áfram lokað. 11.5.2020 22:14
KS endurgreiðir sautján milljóna hlutabótagreiðslu Kjötvinnslan Esja Gæðafæði ehf. í Reykjavík, dótturfélag Kaupfélags Skagfirðinga, mun endurgreiða u.þ.b. 17 milljónir króna sem fyrirtækið fékk frá Vinnumálastofnun í hlutabótagreiðslur. 11.5.2020 15:49
Varar flugstéttirnar við að láta Icelandair kúga sig Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hvetur starfsfólk Icelandair til þess að láta ekki kúga sig út í stórfelldar launalækkanir og afsal réttinda. 11.5.2020 13:48
Gefur ekkert uppi um samning flugvirkja Flugmenn hafa boðið 25 prósenta kjaraskerðingu í samningaviðræðum við Icelandair. Flugfreyjur hafa sömuleiðis boðið ýmsar tilslakanir á kjörum. Fullyrt er í Morgunblaðinu í dag að þessar stéttir þurfi að taka á sig 50 til 60 prósenta skerðingu til að forða flugfélaginu frá gjaldþroti. 11.5.2020 11:43
Samfélagsleg ábyrgð: Tíu ráð fyrir vinnuveitendur Heimsmarkmiðin skilja engan eftir, huga að heilsu, jörðinni, atvinnulífinu, nýsköpun, menntun og sjálfbærni.“ 11.5.2020 11:00
Ráðinn í stöðu viðskiptaþróunarstjóra Póstsins Aðalsteinn Guðjónsson hefur verið ráðinn í stöðu viðskiptaþróunarstjóra hjá Póstinum. 11.5.2020 10:44
Ákveðnari fasteignakaupendur í kórónuveirufaraldri Þórey Ólafsdóttir, fasteignasali hjá Landmark, segir að áhrif kórónuveirufaraldursins séu ekki komin fram á fasteignamarkaðnum. Meiri sala hafi verið undanfarið en búist var við og til að mynda töluverð aukning í sölu á sumarhúsum. 11.5.2020 10:18
Berenice frá Origo til Advania Berenice Barrios hefur verið ráðin til Advania til að stýra nýju sviði sem annast sölu og ráðgjöf á Microsoft-lausnum. 11.5.2020 10:17
Að halda einbeitingu í vinnu: Sex góð ráð Nokkur ráð sem hjálpa til við að halda einbeitingunni óháð því hvar eða við hvað við vinnum. 11.5.2020 09:00
Ráðin nýr framkvæmdastjóri Distica Júlía Rós Atladóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra Distica. 11.5.2020 08:14
Segir að flugfreyjur og flugmenn þurfi að taka á sig allt að 60% launalækkun Flugfreyjur og flugmenn Icelandair verða að taka á sig 50 til 60% launalækkun til þess að forða flugfélaginu frá gjaldþroti. 11.5.2020 08:09
Ríkisflugfélag Kólumbíu sækir um gjaldþrotavernd Ríkisflugfélag Kólumbíu, Avianca, hefur sótt um gjaldþrotavernd fyrir bandarískum dómstólum sem gefur stjórnendum færi á að koma lagi áreksturinn án þess að kröfuhafar geti sótt aðfyrirtækinu á sama tíma. 11.5.2020 07:34
Segir starfsfólk Icelandair vera lausnina, ekki vandamálið Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, virðist ekki vera kátur með þá upplifun forstjóra Icelandair að helsta fyrirstaðan fyrir björgun Icelandair sé starfsfólkið sem starfi hjá fyrirtækinu 10.5.2020 12:02
Segir að svo virðist sem sum fyrirtæki hafi nýtt sér hlutabótaleiðina til að bjarga árshlutauppgjörum Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, segir að það virðist sem svo að sum fyrirtæki, sem séu alls ekki í alvarlegum rekstrarvanda, hafi nýtt sér hlutabótaleiðina til að bjarga ársfjórðungsuppgjörum og með því ætlað sér að ganga í augum á fjárfestum. Hann segir þó að óvissan hafi verið mikil og því að einhverju leyti skiljanlegt að fyrirtækin hafi sótt í hlutabótaleiðina. 10.5.2020 11:32
Flestir starfsmenn Facebook og Google vinna heima til 2021 Þegar kórónuveirufaraldurinn fór á kreik gripu fyrirtækin til þeirra ráða að láta starfsmenn vinna heiman frá og mun aðeins lítill hluti starfsmanna snúa aftur á næstu mánuðum. 10.5.2020 10:59
Segir starfsfólkið helstu fyrirstöðu þess að Icelandair verði bjargað Starfsfólk Icelandair er helsta fyrirstaða þess að hægt sé að bjarga Icelandair frá falli, að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra flugfélagsins, í bréfi til starfsmanna. Hann segir að ljúka verði langtímasamningum við flugstéttir félagsins fyrir föstudaginn 22. maí. 9.5.2020 23:35
Mikið spurt um kvikmyndatökur á Íslandi Síminn hefur vart stoppað hjá Íslandsstofu eftir að yfirmaður Netflix tilkynnti að nánast öll framleiðsla kvikmynda hefði stöðvast nema í Suður-Kóreu og á Íslandi. Beðið er eftir leyfi frá yfirvöldum til að hleypa erlendu starfsliði til landsins. 9.5.2020 21:30
Kórónuveiran reynir á túlkun samninga og eiginkonan vill þjóðnýta hann í svefnrannsóknir Í kaffispjalli um helgar er talað við fólk í ólíkum störfum og segir Árni Helgason lögmaður hjá JÁS Lögmönnum að lögmannstarfið sé skemmtilegt því það felur í sér að vinna með svo mörgu fólki. Árni Helgason er sannur B-maður. 9.5.2020 10:00
Sautján starfsmenn kláruðu sóttkví í Kína og Dettifoss loks á heimleið Skipið Dettifoss, sem hefur verið í smíðum í Kína undanfarin misseri, er nú á heimleið en skipið sigldi af stað frá Guangzhou í Kína í gær. 8.5.2020 23:42
Flugmönnum boðin sömu laun og vinna þá meira, fara á hlutabótaúrræði eða lækka launin sín Flugfélagið Air Atlanta bauð flugmönnum sínum að halda óbreyttum launum og vinna umfram vinnuskyldu, fara á hlutabótaleið stjórnvalda eða taka á sig launalækkun. Forstjórinn segir það gert til að takast á við mikið tekjutap vegna kórónuveirufaraldurs. 8.5.2020 20:45
Hagar endurgreiða og Festi hættir að þiggja Fyrirtækin Hagar og Festi hafa ákveðið að nýta sér ekki hlutabótaleið stjórnvalda. Þetta kemur fram í tilkynningum frá fyrirtækjunum á fimmta tímanum. 8.5.2020 16:53
Ferðagjöfina til Íslendinga verður hægt að nálgast fyrstu vikuna í júní Hver Íslendingur fær um 5300 krónur í sinn hlut. 8.5.2020 15:40
Geti lagt inn atvinnuleyfi sitt Leigubílstjórar sem hafa haft atvinnuleyfi í skemur en tvö ár munu fá heimild að leggja inn atvinnuleyfi sitt samkvæmt nýju frumvarpi samgönguráðherra. 8.5.2020 14:38
Vildu verja störf og völdu því hlutabótaleiðina Félagið Origo sem skráð er í Kauphöllinni skilaði 425 milljóna króna hagnaði á fyrsta ársfjórðungi. 8.5.2020 14:25