Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslandsbanki hækkar vexti Íslandsbanki mun hækka vexti um allt að 0,25 prósentustig á mánudaginn vegna ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að hækka stýrivexti. 14.10.2022 22:05
Fáir sækja um auglýstar stöður á meðan verkefnin hrúgast upp Aldrei hefur verið jafnerfitt að ráða fólk til starfa og nú að sögn talsmanna í atvinnulífi. Stjórnarformaður hjá verkfræðistofu segir verkefnin hlaðast upp án þess að starfsfólk sé fyrir hendi til að vinna þau. Atvinnuleysi nemur 2,8 prósentum og er orðið á við það sem var árið 2018. 14.10.2022 17:09
Löng röð myndaðist á lagersölu í Síðumúla Löng röð fólks myndaðist í Múlunum í Reykjavík um miðjan dag í dag og hefur annað eins ekki sést síðan sýnatökur stóðu sem hæst í heimsfaraldri kórónuveirunnar. 14.10.2022 14:01
Jómfrúin opnar á Keflavíkurflugvelli Veitingastaðurinn Jómfrúin og bistro-staður undir nafninu Elda munu opna í Keflavíkurflugvelli í febrúar næstkomandi. Snorri Victor Gylfason, kokkur á Vox mun sjá um þróun og hönnun á öllum réttum Elda. 14.10.2022 11:02
Arion banki hækkar vexti Arion banki hefur hækkað vexti óverðtryggðra og verðtryggðra íbúðalána frá og með deginum í dag. Bankinn fylgir því fordæmi Landsbankans sem hækkaði vexti fyrr í vikunni. 14.10.2022 10:20
Ellefu vísbendingar um að jafnvægið sé í klúðri Í hinum fullkomna heimi væri jafnvægið á milli heimilis og vinnu ekkert mál. Þótt starfsframinn sé á fullri ferð samhliða því að reka heimili, ala upp börn og stunda jafnvel áhugamálin. 14.10.2022 07:00
Gangi ekki að lykilstarfsmanni sé meinaður aðgangur að tilteknum lykilupplýsingum Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir að það gangi ekki að framkvæmdastjóri fjármála fyrirtækisins sé meinaður aðgangur að tilteknum fjárhagslegum og rekstrarlegum upplýsingum fyrirtækisins, líkt og raunin er vegna fjölskyldutengsla framkvæmdastjórans við stjórnarformann Sýnar. 13.10.2022 21:07
Hættir við framboð í stjórn Sýnar vegna afarkosta OR Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Sýnar, hefur dregið framboð sitt til stjórnar félagsins til baka. Hún segir ástæðuna vera afarkosti sem OR setti eiginmanni hennar vegna meintra hagsmunaárekstra í tengslum við stjórnarsetu hennar. 13.10.2022 20:26
Stefán segir upp hjá Storytel Stefán Hjörleifsson hefur sagt upp starfi sínu sem landsstjóri Storytel á Íslandi eftir fimm ára starf. Næstu skref eru óráðin fyrir utan að lækka forgjöfina í golfi á suðrænum slóðum. 13.10.2022 16:10
Páll tekur við af Júlíusi hjá HS Veitum Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku, mun taka við stöðu forstjóra HS Veitna í upphafi næsta árs. Hann tekur við stöðunni af Júlíusi Jóni Jónssyni sem lætur senn af störfum sem forstjóri eftir fjörutíu ára starf hjá félaginu. 13.10.2022 14:41
Íslandsbankaskýrslan loks komin í umsagnarferli Ríkisendurskoðun hefur nú sent fjármála- og efnahagsráðuneyti, Bankasýslu ríkisins og stjórn hennar drög að skýrslu embættisins um sölu ríkisins á hlut sínum í Íslandsbanka til umsagnar. Ríkisendurskoðun hefur veitt aðilum frest til miðvikudagsins 19. október til að skila umsögnum. 13.10.2022 13:22
Pappaskeiðarnar heyra brátt sögunni til Eftir áramót verður hvorki boðið upp á plast- né pappaskeiðar með skyri og öðrum mjólkurvörum frá MS. Markaðsstjóri MS hvetur verslanir til að bjóða upp á skeiðar í verslunum í staðinn. 13.10.2022 11:52
Macros á Ísey Skyr Bar - hentugustu máltíðir á Íslandi? Hin svokallaða Macros hugmyndafræði er að verða sífellt vinsælli meðal íslenskra matgæðinga. Macros snýst um að borða ákveðið magn af próteini, fitu og kolvetnum til þess að ná markmiðum sínum; hvort sem það er að léttast, bæta á sig vöðvamassa eða þyngjast. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa og því ekki skrítið að sífellt fleiri séu að temja sér Macros. 13.10.2022 11:51
Spá því að verðbólga haldi áfram að minnka Hagfræðideild Landsbankans spáir 0,3 prósent hækkun á vísitölu neysluverðs í októbermánuði. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan minnka úr 9,3 prósentum í 9,0 prósent. Það yrði þá þriðji mánuðurinn í röð sem verðbólga minnkar og telur deildin að verðbólga hafi náð hámarki. 13.10.2022 11:25
Ráðinn markaðsstjóri Men&Mice Elvar Páll Sigurðsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Men&Mice og mun sem slíkur leiða markaðssetningu fyrirtækisins á alþjóðlegum mörkuðum. 13.10.2022 11:13
Veittu 76 viðurkenningu og reistu jafn mörg tré í Heiðmörk Alls hlutu 59 fyrirtæki, sex sveitarfélög og ellefu opinberir aðilar viðurkenningu á ráðstefnunni Jafnrétti er ákvörðun á vegum Jafnvægisvogarinnar, hreyfiafls Félags kvenna í atvinnulífinu, í gær. Konur eru 24 prósent framkvæmdastjóra hér á landi og hefur fjölgað lítið undanfarin ár. 13.10.2022 10:16
Koma ný inn í eigendahóp Brandenburgar Sigríður Theódóra Pétursdóttir og Arnar Halldórsson hafa bæst í eigendahóp auglýsingastofunnar Brandenburg. Þau hafa bæði starfað sem stjórnendur á stofunni undanfarin ár. 13.10.2022 09:41
Íslenskt fyrirtæki hluti af herferð Meta Íslenska tæknifyrirtækið Arkio er eitt þeirra fyrirtækja sem móðurfyrirtæki Facebook, Meta, sýnir frá í nýjustu auglýsingu sinni fyrir sýndarveruleikagleraugun Meta Quest Pro. Arkio býður upp á forrit þar sem hægt er að hanna arkitektúr í sýndarveruleika. 13.10.2022 09:35
Sameining fyrirtækja á innheimtumarkaði Hluthafar Inkasso ehf. og Momentum ehf. hafa náð samkomulagi um sameiningu félaganna og kemur hún til framkvæmda síðar í þessum mánuði. 13.10.2022 08:44
Støre nýr forstjóri Advania-samsteypunnar Hin norska Hege Støre hefur tekið við sem nýr forstjóri Advania-samsteypunnar. Starfsmenn telja um fjögur þúsund á Norðurlöndunum og í Bretlandi. Hún tekur við keflinu af Mikael Noaksson sem heldur þó áfram að starfa við hlið Støre og tekur sæti í stjórn samsteypunnar. 13.10.2022 08:16
Bein útsending: Orkuskipti í flugi - tækifæri fyrir Ísland Morgunfundur Icelandair, Isavia, Landsvirkjunar og Samtaka ferðaþjónustunnar sem ber yfirskriftina Orkuskipti í flugi - tækifæri fyrir Ísland hefst í dag klukkan 8:30. Búist er við því að fundinum ljúki klukkan 10. 13.10.2022 08:01
Spáir 2-3 prósenta atvinnuleysi á næsta ári Sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun segir útlit fyrir að atvinnuleysi hér á landi muni nema um 2-3 prósentum á næsta ári að meðaltali. Atvinnuleysi í septembermánuði nam 2,8 prósentum og hafði minnkað úr 3,1 prósenti í ágúst. 13.10.2022 06:33
Segist heyra margar kjaftasögur um Play en blæs á þær allar Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segist heyra margar kjaftasögur um starfsemi félagsins. Hann blæs á þær allar og minnir á að félagið sé skráð á markað. 12.10.2022 19:41
Alvotech ræður Söruh Tanksley sem framkvæmdastjóra gæðaeftirlits Líftæknifyrirtækið Alvotech hefur ráðið Söruh Tanksley sem framkvæmdastjóri gæðaeftirlits hjá Alvotech en hún tekur við af Reem Malki, sem beðist hefur lausnar af persónulegum ástæðum. Sarah Tanksley mun hefja störf þann 14. október næstkomandi. 12.10.2022 13:57
Zuckerberg boðar vinnufundi í sýndarveruleika Í gær kynntu Meta, móðurfyrirtæki Facebook, og Microsoft samstarf sitt í kringum sýndarveruleika. Með samstarfi fyrirtækjanna mun fólk geta notað forrit á vegum Microsoft í sýndarveruleikagleraugum Meta. 12.10.2022 13:01
Þorbjörg og Þórður til Fossa Þórður Ágúst Hlynsson hefur verið ráðinn til starfa sem verkefnastjóri í fyrirtækjaráðgjöf Fossa fjárfestingabanka og Þorbjörg M. Einarsdóttir sem sérfræðingur á nýju fjármálasviði bankans. 12.10.2022 12:37
Síminn braut ekki samkeppnislög með sölu enska boltans Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi ekki brotið gegn ákvæða sáttar við Samkeppniseftirlitið með því að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og línulega sjónvarpsþjónustu, enska boltann á Símanum Sport, í svonefndum Heimilispakka. 12.10.2022 10:53
Húsasmiðjan byggir upp græna innviði og dregur enn frekar úr kolefnisfótspori Húsasmiðjan hefur sett sér metnaðarfull markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í allri starfsemi fyrirtækisins. Hluti af þeim markmiðum er að að skipta út jarðeldsneyti í bílaflota fyrirtækisins í umhverfisvæna orkugjafa. 12.10.2022 08:47
Kulnun eftir Covid áberandi hjá 18-24 ára og sölu- og markaðsfólki „Það sem gerir niðurstöðurnar fyrir 18 til 24 ára sláandi er hversu mikil breyting er á milli ára. Kulnun hjá þessum aldurshópi mælist 6 til 7% fyrir og í Covid en eykst hratt og mælist 17% eftir Covid. Sú starfsgrein þar sem kulnun mælist líka mjög há er til dæmis hjá sölu- og markaðsfólki,“ segir Trausti Heiðar Haraldsson framkvæmdastjóri Prósent. 12.10.2022 07:00
Ný Iphone-tækni ruglar rússíbanaferð saman við bílslys Svo virðist sem að ný tækni sem kynnt var til sögunnar með nýjustu gerð Iphone-síma bandaríska tæknirisans Apple geti ruglað rússíbanaferð saman við bílslys. 11.10.2022 22:57
Landsbankinn hækkar vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,25 prósentustig. Sama hækkun er herð á breytilegum vöxtum verðtryggðra íbúðalána. Fastir vextir nýrra óverðtryggðra íbúðalána verða óbreyttir en fastir vextir verðtryggðra íbúðalána hækka um 0,30 prósentustig. 11.10.2022 16:52
Hættur að versla við KS vegna stríðsins Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segist vera hættur að versla við veitingastaði og afþreyingastaði sem eru í eigu Kaupfélags Skagfirðinga (KS). Ástæðan er sú að starfsmaður kaupfélagsins er heiðurskonsúll Rússlands á Íslandi. Konsúllinn segist ekki sinna þeim störfum fyrir hönd KS. 11.10.2022 13:52
Ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri Vísindagarða Þórey Einarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri Vísindagarða Háskóla Íslands. 11.10.2022 13:35
Nanna Elísa tekur við málefnum nýsköpunar hjá SI Nanna Elísa Jakobsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, hefur tekið við málefnum nýsköpunar hjá Samtökum iðnaðarins. 11.10.2022 13:08
Markmiðið að kynna fjölbreytni íslensks landbúnaðar og hreinleika matvælaframleiðslu Stórsýningin Íslenskur landbúnaður 2022 hefst í Laugardalshöll í Reykjavík á föstudaginn og stendur fram á sunnudag. 11.10.2022 10:08
Einungis þrjú fyrirtæki hækkuðu í virði í september Virði nítján fyrirtækja á aðallista Kauphallarinnar lækkaði í september. Vísitala Kauphallarinnar í heild sinni lækkaði um 8,3 prósent sem er það næst mesta yfir heilan mánuð á árinu. Mesta lækkunin var hjá Eimskip. 11.10.2022 09:57
Ráðinn nýr fjármálastjóri Play Ólafur Þór Jóhannesson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs PLAY. Hann tekur við starfinu af Þóru Eggertsdóttur og hefur störf í byrjun nóvember. 11.10.2022 09:07
Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi Haustráðstefna Stjórnvísi fer fram í beinni útsendingu frá Grand hótel í dag. Þema ráðstefnunnar er Gróska - Vöxtur, þroski, árangur. 11.10.2022 09:00
Smørrebrød í boði í Borgarleikhúsinu Gestir Borgarleikhússins geta héðan í frá gætt sér á dönsku smørrebrød þegar leiksýningar eru sóttar. Leikhúsið mun bjóða upp á hinn sívinsæla rétt með aðstoð Jómfrúarinnar og vonast framkvæmdastjórinn eftir því að fólk geti fengið enn meira út úr leikhúsferðum sínum. 11.10.2022 08:58
Fjarvinna og fyrirtækjarekstur: „Okkur langaði til að lifa lífinu öðruvísi en í hasarnum heima“ „Við vorum að horfa á þáttinn Hvar er best að búa? með Lóu Pind, um hjónin sem fluttu til Danmerkur og fóru að reka hótel í Lálandi þegar Torfi lítur allt í einu á mig og spyr: En hvað með Danmörk?“ segir Lóa Dís Finnsdóttir, grafískur hönnuður búsett í Maribo með eiginmanninum Torfa Agnarsyni auglýsingaljósmyndara. 11.10.2022 07:01
Hleðslustöðvamálinu lokið eftir nei frá Hæstarétti Ísorka fær ekki að áfrýja dómi Landsréttar í hleðslustöðvarmálinu svokallaða til Hæstiréttar. Málskotsbeiðni Ísorku var hafnað af Hæstarétti fyrir helgi. 10.10.2022 21:01
Kristín Vala til Coca-Cola Kristín Vala Matthíasdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs Coca-Cola á Íslandi. Kristín kemur til Coca-Cola frá Bluebird Nordic þar sem hún starfaði sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. 10.10.2022 16:52
Harpa og Ingólfur til ON Harpa Pétursdóttir og Ingólfur Örn Guðmundsson hafa verið ráðin til Orku náttúrunnar. Ingólfur hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns sölu- og viðskiptaþróunar og Harpa í starf aðstoðarkonu framkvæmdastýru. 10.10.2022 14:56
Tuttugu hádegisverðir, rándýr kvöldmatur og ýmsar jólagjafir Á tæpu ári sátu fulltrúar Bankasýslu ríkisins tuttugu hádegisverðarfundi með fulltrúum ýmissa fjármálafyrirtækja. Tvisvar fögnuðu starfsmenn Bankasýslunnar frumútboði á hlutum í Íslandsbanka með kvöldverði. Kvöldverðirnir kostuðu 34 þúsund og 48 þúsund krónur á mann. 10.10.2022 13:06
Verkfæri ehf í samstarf við þýska fyrirtækið Jungheinrich „Við erum að taka við umboði núna fyrir einn stærsta lyftaraframleiðanda heims. Þetta er gríðarlega stórt fyrirtæki, með yfir 19.000 starfsmenn á heimsvísu og pantanir síðasta árs hjá fyrirtækinu voru rúmlega 160.000 tæki,“ segir Þorsteinn Austri, nýráðinn sölustjóri Jungheinrich hjá Verkfærum ehf. Þorsteinn kom til Verkfæra ehf frá Dynjanda og mun hafa yfirumsjón með sölu á vörum frá Jungheinrich. 10.10.2022 12:49