Isavia telur nýtt íbúðahverfi skerða rekstraröryggi flugvallarins
Óvíst er hvort Isavia muni afhenda Reykjavíkurborg svæði í Skerjafirði í vor til byggingar nýs íbúðahverfis án frekari rannsókna. Framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla Isavia segir húsbyggingar þar hafa umtalsverð áhrif á rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar.