Lagðir af stað í loðnuleitina
Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt til loðnuleitar úr Reykjavík í dag en frést hefur af loðnu bæði á Vestfjarðamiðum og norðaustur af Melrakkasléttu. Leiðangursstjórinn kveðst ekki of bjartsýnn en vill þó lifa í voninni.