Gosferðamenn velja lengri göngu til að komast á Litla-Hrút
Eldgosið á Reykjanesi heldur enn sama krafti og undanfarna daga. Æ fleiri ferðamenn velja að sjá gosið af fjallinu Litla-Hrút, þótt það þýði lengri göngu. Almannavarnir hefja tilraunir á gossvæðinu á morgun á aðferðum til að verja mikilvæga innviði eins og háspennulínur og jarðstrengi.