Sjálfstæðismenn með mikla fyrirvara við frumvarp forsætisráðherra
Sjálfstæðisflokkurinn er sá fllokkur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sem setur mestu fyrirvarana við eitt af lykilmálum forsætisráðherra, um Mannréttindastofnun. Frumvarpið hefur verið til umræðu í nefndinni í fimmtán vikur en samkomulag var um málið í stjórnarsáttmála.