Átján tonn af lækningavörum
Átján tonn af lækningavörum eru um borð í flugvél Icelandair sem lendir í Keflavík innan skamms. Er þetta síðasta sendingin af þremur í stórri pöntun frá Kína. Í ferðunum hafa samtals um fimmtíu tonn af ýmsum búnaði líkt og andlitsgrímum og hlífðargöllum verið flutt til landsins.