Jordan Semple sáttur í Þorlákshöfn: „Fékk svo tækifæri hér sem ég hef nýtt að fullu“
„Við komum út og spiluðum af mikilli orku, fyrirliðinn okkar setti þrjá þrista en þeir komu til baka. Mér leið eins og í hvert skipti sem fórum á skrið þá komu þeir allaf til baka,“ sagði Jordan Semple í viðtali við Körfuboltakvöld eftir frækinn sigur Þórs Þorlákshafnar á Val í gær, þriðjudag.