Síldarvinnslan hefur keypt sjávarútvegsfyrirtækið Vísi
Síldarvinnslan hefur keypt sjávarútvegsfyrirtækið Vísi í Grindavík. Eigendur Vísis eignast átta prósent í Síldarvinnslunni og fá sex milljarða í reiðufé fyrir fyrirtækið. Forstjóri Síldarvinnslunnar segir að höfuðstöðvar bolfiskvinnslu fyrirtækisins verði í Grindavík.