Ísland í dag - Dugleg að rækta ástina

Vala Matt heldur áfram að sýna okkur frá ævintýralegri ferð sinni til tísku og menningarborgarinnar Mílanó á Ítalíu þar sem hún heimsótti ungu hjónin Berglindi Óskarsdóttur fatahönnuð og Þórhall Sævarsson kvikmyndaleikstjóra en þau hafa verið að slá í gegn á Ítalíu hvort á sínu sviði. Þórhallur hefur verið að leikstýra auglýsingum fyrir heimsfræg merki eins og Nike, Adidas, Coca Cola, heimsþekkt bílafyrirtæki og símafyrirtæki. Og Berglind fékk viðurkenningu frá einum virtasta hönnunarskóla heims Istituto Marangoni í Mílanó og einnig hefur hún fengið frábæra umfjöllun í ítölsku Vogue. Og í þessum þætti skoðum við sérstaklega ævintýralega flotta hönnun Berglindar. Og þau hjónin sögðu Völu einnig hvernig þau kynntust á My Space sem var mjög rómantískt og skemmtilegt og þau fóru með okkur í ævintýralega leiðangra um borgina. Og af því Þórhallur er mikill listamaður og ástríðukokkur þá sýnir hann okkur hvernig hann gerir alveg dásamlega góðan pastarétt sem bara tekur fimm mínútur að búa til.

16099
11:39

Vinsælt í flokknum Ísland í dag