Segja borgina vera að gera veður úr engu
Borgin ætlar að fara fram á það við verslunareigendur við Ármúla að þeir fjarlægi skilti sem banna öðrum en viðskiptavinum að leggja fyrir utan verslanir þeirra. Sjálfir eru þeir steinhissa á málinu, töldu sig eiga stæðin og segja borgina vera að gera veður út af engu.