Bensínverð hefur lækkað hratt
Bensínverð hefur lækkað hratt hér á landi undanfarna mánuði en lítið svigrúm er til frekari lækkana að sögn aðalhagfræðings Íslandsbanka. Lítið þurfi til að verð breytist umtalsvert og ólíklegt að tímabil óvissu renni sitt skeið.