Ungar stúlkur verða fyrir ofbeldi á netinu í vaxandi mæli
Ungar stúlkur verða fyrir ofbeldi á netinu í sívaxandi mæli. Breskur sérfræðingur í stafrænu kynferðisofbeldi segir að ríki heims þurfi að gera gangskör að því að uppræta ofbeldi af þessu tagi enda hafi þau alla burði til þess.