Einelti af verstu gerð

Átján ára dóttir Ingunnar Hrundar Einarsdóttur varð fyrir óskemmtilegri reynslu í morgun þegar sá hún sér til mikillar skelfingar að bíllinn hennar, silfurlitaður Nissan Almera árgerð 2001, var ekki ökufær því einhverjir höfðu í skugga nætur brotið öll ljósin og rúðuþurkurnar. Þá voru kopparnir fjarlægðir, loft tekið úr dekkjum og eggjum grýtt í framrúðu bílsins. „Hún er á nítjánda ári með ódæmigerða einhverfu," sagði Ingunn en dóttir hennar tók strætó í vinnuna í morgun þrátt fyrir að vera í sjokki. Ingunn, sem býr í Breiðholti, biður þá sem framkvæmdu verknaðinn að gefa sig fram. Sjá viðtalið við Ingunni og ástand bílsins í meðfylgjandi myndskeið

2984
02:43

Vinsælt í flokknum Lífið