Íslendingur í Kænugarði
Íslendingur sem býr í Kænugarði segist lítið hafa sofið í nótt fyrir sprengingum. Útgöngubann tók gildi þar klukkan þrjú í dag og stendur til átta í fyrramálið. Hann segir starfsfólk Öryggis-og samvinnustofnunar Evrópu hafa flúið úr borginni í morgun.