Nick Bradford kemur til Íslands í kvöld Njarðvíkingar vonast til þess að ganga frá samningi við Bandaríkjamaninn Nick Bradford þegar hann lendir á Íslandi í kvöld. Bradford er á leiðinni frá Finnlandi eftir að hafa verið rekinn frá Kataja á dögunum. Körfubolti 8. janúar 2010 20:00
Nick Bradford á leið til Njarðvíkur Bandaríkjamaðurinn Nick Bradford er á leið til landsins og mun líklega spila með Njarðvík út þetta tímabil. Körfubolti 8. janúar 2010 12:39
118 kílóa miðherji á leið á Krókinn Tindastólsmenn eru búnir að finna eftirmann Amani Bin Daanish fyrir seinni hluta Iceland Express deildarinnar. Sá kappi er ekki að minni gerðinni en hinn 206 sm og 118 kíló Kenney Boyd hefur samið við Tindastól um að klára tímabilið í Skagafirðinum. Körfubolti 30. desember 2009 19:45
Jón Arnar hættur sem þjálfari ÍR-liðsins Jón Arnar Ingvarsson hefur óskað eftir því við körfuknattleiksdeild ÍR að láta af störfum sem þjálfari karlaliðsins í Iceland Express deildinni en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá körfuknattleiksdeild ÍR. Körfubolti 30. desember 2009 12:04
Sigurður Gunnar með tröllaleik í Hveragerði Keflvíkingar unnu öruggan 29 stiga sigur á Hamar, 74-103, í Hveragerði í Iceland Express deild karla í kvöld en þetta var síðasti leikur liðanna fyrir jólafrí. Körfubolti 18. desember 2009 20:32
Páll Axel og Grindvíkingar í stuði á móti ÍR Grindvíkingar unnu 41 stigs stórsigur á ÍR-ingum, 106-65, í Iceland Express deild karla í Röstinni í Grindavík í kvöld en þetta var síðasti leikur liðanna fyrir jólafrí. Körfubolti 18. desember 2009 20:30
Rekinn frá tveimur íslenskum liðum á tveimur mánuðum Amani Bin Daanish, bandaríski framherjinn hjá Tindastól, lék sinn síðasta leik með Stólunum á tímabilinu þegar Tindastóll vann 90-75 sigur á Fjölni í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. Daanish var látinn fara frá Grindavík í október. Körfubolti 17. desember 2009 21:34
Njarðvíkingar áfram ósigraðir í Ljónagryfjunni Njarðvíkingar þurftu ekki að hafa mikið fyrir sjötta heimasigrinum í röð í deild og bikar í kvöld þegar liðið vann 99-47 sigur á botnliði Iceland Express deildar karla, FSu. Körfubolti 17. desember 2009 19:32
Stjörnumenn verða á toppnum um jólin eftir sigur á Blikum Stjörnumenn tryggðu sér toppsætið í Iceland Express deildar karla með 74-89 sigri á Breiðabliki í Smáranum í kvöld. Stjarnan er með jafnmörg stig og bæði Njarðvík og KR en ofar á innbyrðisviðureignum. Körfubolti 17. desember 2009 19:31
Stólarnir slitu sig frá botninum með sigri á Fjölni Tindastóll komst upp að hlið Hamars í 8. sæti Iceland Express deildar karla eftir 15 stiga sigur á Fjölni, 90-75, á Sauðárkróki í kvöld. Körfubolti 17. desember 2009 19:30
Páll: Ánægður með fyrri hálfleik en ósáttur með seinni Páll Kolbeinsson, þjálfari KR, segist ánægður með frammistöðu síns liðs í fyrri hálfleiknum gegn Snæfelli í kvöld. Á hinn bóginn er hann ósáttur við seinni hálfleik. Körfubolti 15. desember 2009 21:39
Ingi Þór: Johnson var munurinn á liðunum „Tommy Johnson var sjóðheitur í kvöld og mér fannst hann vera munurinn á liðunum," sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir að hans lið beið lægri hlut fyrir KR í Iceland Express-deildinni. Körfubolti 15. desember 2009 21:28
KR-ingar unnu Snæfellinga og fóru á toppinn KR-ingar fara með bros á vör upp í flugvélina til Kína eftir sex stiga sigur á Snæfelli, 97-91, í fyrsta leik ellefu umferðar Iceland Express deildar karla í DHL-Höllinni í kvöld. KR komst í efsta sæti deildarinnar með þessum sigri sem var öruggari en lokatölur gefa til kynna. Körfubolti 15. desember 2009 20:15
Tveir stórleikir í Keflavík Dregið var í dag í fjórðungsúrslit karla og kvenna í Subway-bikarkeppni karla. Leikirnir fara fram 16. og 17. janúar. Körfubolti 15. desember 2009 14:11
Dabney maður Stjörnuleiks karla Hamarsmaðurinn Andre Dabney var valinn maður leiksins í Stjörnuleik karla en glæsilegum Stjörnuleiksdegi KKÍ var að ljúka. Körfubolti 12. desember 2009 17:43
Magnús vann þriggja stiga keppnina Stórskyttan Magnús Þór Gunnarsson vann þriggja stiga keppnina sem fram fór á Stjörnuleiksdegi KKÍ í dag. Körfubolti 12. desember 2009 17:17
Davis marði Ólaf í troðslukeppninni Grindvíkingurinn Ólafur Ólafsson náði ekki að vinna troðslukeppnina í ár. Hann laut í lægra haldi gegn John Davis úr Ármanni eftir harða keppni. Körfubolti 12. desember 2009 17:13
Landsliðsmennirnir lögðu stjörnurnar Fyrrum landsliðsmenn í körfubolta lentu í litlum vandræðum með lið landsþekktra einstaklinga í skemmtileik sem fór fram fyrir stjörnuleik karla í dag. Landsliðið vann 12 stiga sigur, 39-27, en leikurinn var augljóslega í styttri kantinum. Körfubolti 12. desember 2009 16:47
Stjarnan á toppinn í Iceland-Express deildinni Stjarnan tyllti sér á topp Iceland-Express deildar karla í körfubolta í kvöld með góðum sigri á Hamarsmönnum. Körfubolti 4. desember 2009 20:45
Komast Stjörnumenn á toppinn í karlakörfunni í kvöld? Stjörnumenn geta komist á topp Iceland Express deildar karla vinni þeir Hamar í kvöld en þá fara þrír síðustu leikirnir fram í tíundu umferðinni. Stjarnan næði með sigri Njarðvík og KR að stigum en væru betri innbyrðis þar sem Garðbæingar hafa unnið báða leiki sína á móti toppliðunum. Körfubolti 4. desember 2009 17:15
Unnu með 34 stigum þegar Fannar var inn á KR-ingar sóttu tvö stig til Keflavíkur í gær þar sem þeir unnu fimmtán stiga sigur, 100-85. "Gömlu Keflvíkingarnir" Tommy Johnson og Fannar Ólafsson áttu báðir frábært kvöld en þeir skoruðu saman 52 stig í leiknum og hittu úr 19 af 25 skotum sínum sem gerir magnaða 76 prósent skotnýtingu. Körfubolti 4. desember 2009 14:15
Tommy Johnson: Góður afmælisdagur Tommy Johnson hélt upp á afmælið sitt í kvöld með góðri frammistöðu gegn hans gömlu félögum í Keflavík er KR vann þar góðan sigur, 100-85. Körfubolti 3. desember 2009 21:39
Páll: Öflugt að vinna í Keflavík Páll Kolbeinsson, þjálfari KR, sagði að það hefði verið öflugt hjá sínum mönnum að vinna sigur á sterku liði Keflavíkur á útivelli. Körfubolti 3. desember 2009 21:32
Hörður Axel: Erfitt að elta Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, var vitanlega ósáttur við tap sinna manna fyrir KR á heimavelli í kvöld. Körfubolti 3. desember 2009 21:25
IE-deild karla: Úrslit og stigaskor Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla. Snæfell lagði Njarðvík í háspennuleik, KR lagði Keflavík og Breiðablik marði Fjölni. Körfubolti 3. desember 2009 21:04
Umfjöllun: KR vann mikilvægan sigur í Keflavík KR vann í kvöld sigur á Keflavík í hörkuspennandi leik, 100-85, í Iceland Express deild karla. Körfubolti 3. desember 2009 20:38
Vinna Njarðvíkingar sinn fyrsta deildarsigur í Hólminum frá 2003? Topplið Njarðvíkur í Iceland Express deild karla heimsækir Snæfellinga í Stykkishólm í kvöld en Njarðvíkingum hefur ekki gengið vel í deildarleikjum sínum í Hólminum síðustu sex tímabil. Snæfell er nefnilega búið að vinna sjö síðustu deildarleiki liðanna í Fjárhúsinu. Körfubolti 3. desember 2009 16:15
Hvernig koma kanalausir Keflvíkingar til baka á móti KR? Keflvíkingar fengu slæman skell á móti nágrönnum sínum í Njarðvík í síðasta leik sínum í Iceland Express deild karla og ráku í kjölfarið kanann sinn Rashon Clark. Keflvíkingar fá tækifæri til að endurvekja stoltið þegar þeir taka á móti Íslandsmeisturum KR í Toyota-höllinni í Keflavík klukkan 19.15 í kvöld. Körfubolti 3. desember 2009 15:15
Keflvíkingar búnir að reka kanann sinn í körfunni Keflvíkingar sögðu í gær upp samningi sínum við Bandaríkjamanninn Rahshon Clark og mun lið þeirra spila án Bandaríkjamanns í næsta leik sem verður á móti KR í Toyota-höllinni á fimmtudaginn. Rahshon Clark var með 18,9 stig og 10,8 fráköst að meðaltali í leik. Körfubolti 2. desember 2009 10:30
Hlynur með bestu frammistöðuna í 9. umferð Snæfellingurinn Hlynur Bæringsson var með hæst framlag allra leikmanna Iceland Express deildar karla í 9. umferð sem lauk í gær. Hlynur fékk 35 í framlagseinkunn fyrir leik Snæfells í Grindavík en það dugði þó ekki Hólmurum sem töpuðu með einu stigi, 94-95, eftir framlengdan leik. Körfubolti 1. desember 2009 17:15