Teitur: Það er ekkert „panikk“ á Hlíðarenda Það er Íslandsmeistarapressa á Valsliðinu þó að byrjunin sýni ekki og sanni að þar sé á ferðinni lið sem er líklegt til að berjast um stóra titilinn í vetur. Körfubolti 3. febrúar 2021 13:30
Sportið í dag: Böddi er ekkert í þessu til að eignast vini eða lenda í 2. sæti Þrátt fyrir að KR-ingar séu í hálfgerðu millibilsástandi stefna þeir á Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla. Þetta segir Henry Birgir Gunnarsson. Körfubolti 3. febrúar 2021 12:30
Dæmdi átta hundraðasta leikinn í gær Kristinn Óskarsson dæmdi sinn átta hundraðasta leik í efstu deild karla í gær þegar Grindavík tók á móti Stjörnunni. Körfubolti 2. febrúar 2021 17:01
„Einn skemmtilegasti og flottasti dúettinn í deildinni“ Domino´s Körfuboltakvöld tók fyrir AB tvíeykið fyrir norðan í síðasta þætti sínum en Þórsarar eru tvo af öflugustu leikmönnum deildarinnar í sínu liði. Körfubolti 2. febrúar 2021 15:31
Segja Hauka líta verst út Haukar eru með slakasta lið Domino's deildar karla um þessar mundir. Þetta segja strákarnir í Sportinu í dag. Körfubolti 2. febrúar 2021 13:30
Skoðuðu meðferðina sem ungi strákurinn fékk frá Stólunum: „Þetta herðir hann bara“ Hinn ungi Styrmir Snær Þrastarson hefur slegið í gegn með Þórsliðinu í Domino´s deild karla í körfubolta í vetur en eins og strákarnir í Körfuboltakvöldi þá á strákurinn enn eftir að vinna sér inn virðingu frá dómurum deildarinnar. Körfubolti 2. febrúar 2021 12:30
„Arnar var sá fyrsti sem ég hringdi í“ Körfuboltamaðurinn Tómas Þórður Hilmarsson er kominn heim eftir dvöl á Spáni. Líklegast er að hann gangi í raðir síns gamla liðs, Stjörnunnar. Körfubolti 2. febrúar 2021 11:54
„Hefur örugglega setið í leikmönnum sem hafa verið hérna lengi og mér sömuleiðis“ Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Grindavíkur var auðvitað mjög sáttur með sitt lið í kvöld en Grindvíkingar lönduðu sigri gegn Stjörnunni á heimavelli í HS-Orku höllinni. Körfubolti 1. febrúar 2021 22:30
Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Stjarnan 93-89 | Frábær endurkoma Grindavíkur Grindavík er komið með 10 stig í Domino´s deildinni eftir seiglusigur á Stjörnunni í HS-Orku höllinni í Grindavík í kvöld. Lokatölur 93-89 og liðin nú jöfn að stigum í 2.-3.sæti deildarinnar. Körfubolti 1. febrúar 2021 21:54
„Verðum að læra af liðum sem hafa unnið og KR er eitt af þessum liðum“ Dominykas Milka, leikmaður Keflavíkur, var mjög ánægður með 86-79 sigur sinna gegn ÍR-ingum í kvöld en sérstaklega í ljósi þess að Keflavík tapaði stórt gegn Stjörnunni í síðasta leik sínum. Körfubolti 1. febrúar 2021 21:01
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - ÍR 86-79 | Keflvíkingar svöruðu skellinum með sigri Borche Ilievski sagði í viðtali við Stöð 2 Sport fyrir leik að sínir menn yrðu að mæta mjög agaðir til leiks gegn góðu liði Keflavíkur en það gekk ekki alveg eftir. Heimamenn byrjuðu leikinn af mun meiri krafti. Körfubolti 1. febrúar 2021 19:51
Grindvíkingar bíða enn niðurstaðna úr myndatöku Dags Kárs Grindvíkingar bíða eftir niðurstöðum úr myndatöku til að fá úr því skorið hvers eðlis meiðsli Dags Kárs Jónssonar eru. Körfubolti 1. febrúar 2021 12:06
„Ekki tala um Hattarliðið eins og þetta séu einhverjir búðingar“ Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, sagði slakan varnarleik í þriðja leikhluta hafa orðið liði sínu að falli gegn Hetti í kvöld. Höttur vann sinn fyrsta leik í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í vetur þegar liðið hafði betur 88-83 gegn Njarðvík á Egilsstöðum. Körfubolti 31. janúar 2021 22:46
Baldur Þór: Ég treysti Nick til að klára svona leiki „Ég er hrikalega ánægður með að við höfum tekið þennan sigur. Þór skaut 55% úr þriggja stiga í fyrri hálfleik og er að spila með mikið sjálfstraust og eru góðir. Þetta var mjög sterkur sigur,“ sagði Baldur Þór Ragnarsson þjálfari Tindastóls eftir sigur hans manna í framlengdum leik gegn Þór frá Þorlákshöfn í kvöld. Körfubolti 31. janúar 2021 22:33
Umfjöllun og viðtöl: Höttur - Njarðvík 88-83 | Njarðvík fyrstu fórnarlömb Hattar í vetur Höttur vann sinn fyrsta sigur í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í vetur þegar liðið vann Njarðvík á heimavelli 88-83 í kvöld. Smáatriðin skildu liðin að í jöfnum leik. Körfubolti 31. janúar 2021 22:16
Umfjöllun og viðtöl: Þór Þorl. - Tindastóll 103-104 | Tindastóll vann eftir rafmagnaða spennu Tindastóll vann afar mikilvægan sigur á Þór frá Þórlákshöfn á heimavelli þeirra síðarnefndu í kvöld. Leikurinn var framlengdur og það var Nick Tomsick sem tryggði Stólunum sigurinn með þriggja stiga körfu þegar 15 sekúndur voru eftir. Körfubolti 31. janúar 2021 22:10
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - KR 87-103 | KR svaraði með sigri en Haukar í vandræðum KR var niðurlægt á heimavelli gegn Þór Þorlákshöfn í síðustu umferð en svaraði í dag með sigri gegn Haukum sem hafa tapað fimm leikjum í röð. Körfubolti 31. janúar 2021 21:33
Brynjar Þór: Það gefur augaleið Brynjar Þór Björnsson, þriggja stiga sérfræðingur KR, var sáttur með góðan sigur á Haukum í kvöld þar sem allt gekk upp eftir eilítið brösuga byrjun. Körfubolti 31. janúar 2021 20:45
„Langt frá því að vera nógu góðir og það er áhyggjuefni“ Finnur Freyr Stefánsson þjálfari Valsmanna byrjaði á því að hrósa Þórsurum fyrir þeirra leik eftir að Valur tapaði fyrir Þór norða heiða í dag. Körfubolti 31. janúar 2021 20:00
Umfjöllun og viðtöl: Þór Ak. - Valur 98-89 | Annar sigur Þórs í röð Þórsarar voru í góðu færi á að tengja tvo sigurleiki saman þegar Valsmenn komu í heimsókn í Höllina í dag. Leikurinn var nánast á messutíma, eða kl. 15.30 vegna hagræðis fyrir aðkomuliðið að komast fram og til baka með flugi. Í stuttu máli var ljóst strax í upphafi að Þórsarar ætluðu að keyra upp hraðann og baráttuna í vörninni og sigur þeirra var mjög sanngjarn 98-89. Körfubolti 31. janúar 2021 19:58
Keflavík og ÍR fá rúmlega tveggja metra menn Keflavík og ÍR hafa styrkt sig fyrir komandi átök í Domino’s deild karla en liðin tilkynntu um nýja leikmenn um helgina. Körfubolti 31. janúar 2021 12:16
„Þorlákshafnarprinsinn“ ánægður með byrjunina Styrmir Snær Þrastarson, leikmaður Þórs Þ., kom í heimsókn í Domino's Körfuboltakvöld á föstudagskvöldið þar sem hann fór yfir frábæra byrjun sína og liðsins á tímabilinu. Körfubolti 31. janúar 2021 12:01
„Ef þeir ætla að vera í toppbaráttu þá geta þeir ekki verið með þennan þankagang“ Tindastóll er einungis með fjögur stig eftir fyrstu sex umferðirnar í Domino’s deild karla. Þeir töpuðu slagnum um Norðurland gegn Þór Akureyri á fimmtudagskvöldið. Körfubolti 31. janúar 2021 08:00
„Þetta var sjónvarpsleikur gegn Keflavík og það er nóg“ Ægir Þór Steinarsson, leikmaður Stjörnunnar, segir leikinn gegn Keflavík í gærkvöldi hafi verið skrýtinn leik. Hann segir Stjörnuliðið ekki hafa fundið taktinn að undanförnu en það að gíra sig upp í sjónvarpsleik gegn Keflavík hafi verið nóg. Körfubolti 30. janúar 2021 13:16
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Keflavík 115-75 | Stjörnumenn völtuðu yfir Keflvíkinga og tóku toppsætið Stjarnan valtaði yfir Keflavík og vann ótrúlegan fjörutíu stiga sigur, 115-75, í stórleik 6. umferðar Domino‘s deildar karla í körfubolta í kvöld. Með sigrinum komst Stjarnan upp fyrir Keflavík á topp deildarinnar. Körfubolti 29. janúar 2021 22:40
Hjalti: Vorum ömurlegir í dag Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, var eðlilega súr og svekktur eftir fjörutíu stiga tapið fyrir Stjörnunni í kvöld. Körfubolti 29. janúar 2021 22:29
Israel Martin: Það var mín ákvörðun að spila ekki Ragga Nat „Ég var ánægður með hvernig liðið kom inn í leikinn þó við byrjuðum fyrstu mínúturnar ekki nógu vel og vorum við yfir í hálfleik,” sagði Israel Martin, þjálfari Hauka, svekktur eftir tapið gegn ÍR í kvöld. Körfubolti 29. janúar 2021 21:09
Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Haukar 97-83 | Fjórða tap Hauka í röð Haukarnir töpuðu fjórða leiknum í röð þegar þeir heimsóttu ÍR-inga í Seljaskóla á meðan ÍR liðið bætti upp fyrir stórt tap í síðustu umferð. Körfubolti 29. janúar 2021 20:51
Borche: Það sem talað var um í hálfleik gekk fullkomlega upp ÍR svaraði afhroði seinasta leiks með glæsibrag í kvöld þegar liðið vann góðan sigur á Haukum 97-83 og þjálfarinn Borche Ilievski var ánægður í leikslok. Körfubolti 29. janúar 2021 20:25
KKÍ fagnar 60 ára afmæli og stórum áföngum síðasta áratug Körfuknattleikssamband Íslands fagnar í dag 60 ára afmæli. Formaður KKÍ segir í pistli í tilefni dagsins að vöxtur íþróttarinnar hér á landi síðustu áratugi hafi verið allt að því ævintýralegur. Körfubolti 29. janúar 2021 16:31