„Það tala allir um toppliðin þrjú og við höfum ekki verið í þeirri umræðu“ Njarðvík vann nokkuð öruggan sigur gegn Þór Akueryri 94-80. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, var afar ánægður með sigurinn og að hans mati stimplaði liðið sig inn í baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn. Sport 19. febrúar 2025 22:44
Stólarnir stríddu toppliðinu Tindastóll stríddi toppliði Hauka þegar liðin mættust í Ólafssal. Á endanum áttu Stólarnir ekki nóg til að leggja topplið Bónus deild kvenna í körfubolta að velli. Þá heldur botnlið Aþenu áfram að tapa leikjum. Körfubolti 19. febrúar 2025 21:46
„Efri hlutinn gefur okkur smá andrými“ „Risastór sigur hjá stelpunum. Þetta var skref í rétta átt og gefur okkur mikið sjálfstraust, það er gaman að sjá alla erfiðisvinnuna sem þær leggja inn vera að skila sér inn á völlinn,“ sagði Jamil Abiad, þjálfari Vals í Bónus deild kvenna, eftir sex stiga sigur gegn Hamar/Þór. Deildin skiptist nú til helminga og þökk sé sigrinum í kvöld verður Valur í efri hlutanum. Körfubolti 19. febrúar 2025 21:25
Uppgjörið: Hamar/Þór - Valur 83-89 | Valskonur tryggðu sér sæti í efri hlutanum Valur sótti sex stiga sigur, 83-89, í heimsókn sinni til Hamars/Þórs í Þorlákshöfn í átjándu umferð Bónus deildar kvenna. Sigurinn skaut Valskonum upp í efri hlutann en Hamar/Þór situr í níunda sæti deildarinnar sem skiptist nú til helminga. Körfubolti 19. febrúar 2025 21:00
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 94-80 | Sigurganga Njarðvíkur heldur áfram Njarðvíkingar unnu sannfærandi sigur gegn Þór Akureyri 94-80. Þetta var fimmti sigur Njarðvíkur í röð sem tryggði liðinu annað sætið áður en deildinni verður skipt upp í efri og neðri hluta. Körfubolti 19. febrúar 2025 20:49
„Þetta var bara ljótur körfuboltaleikur í alla staði“ Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, talaði hreint út þegar hann var spurður um frammistöðu sinna kvenna þegar liðið lagði Stjörnuna í Bónus-deild kvenna í kvöld í Garðabænum, 62-66. Körfubolti 18. febrúar 2025 20:46
Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 62-66 | Lífsnauðsynlegur sigur gestanna Grindavík vann gríðarlega mikilvægan sigur á Stjörnunni í Bónus deild kvenna í körfubolta þegar liðin mættust í Garðabænum. Gular eru í harðri fallbaráttu og því allir sigrar mikilvægir fyrir Grindavík. Körfubolti 18. febrúar 2025 17:49
Helena Sverris hrósar Diljá: „Þá er hún óstöðvandi“ Stjörnukonan Diljá Ögn Lárusdóttir var allt í öllu þegar Stjörnuliðið endaði tíu leikja sigurgöngu Þórsara í Bónus deild kvenna í körfubolta um helgina og varð um leið fyrsta liðið til að vinna Þórskonur á þeirra eigin heimavelli í vetur. Körfubolti 18. febrúar 2025 13:31
„Ákefðin er orðin miklu meiri“ eftir þjálfarabreytingar í Keflavík Körfuboltakvöld ræddi lið Keflavíkur, sem hefur tekið miklum framförum eftir þjálfarabreytingar. Körfubolti 17. febrúar 2025 22:47
„Tinna Guðrún Alexandersdóttir var stórkostleg“ Haukakonur náðu fjögurra stiga forskoti á toppi Bónus deildar kvenna í körfubolta í gærkvöldi eftir sigur í spennuleik í Keflavík. Körfubolti 17. febrúar 2025 13:31
„Erum ekkert að fara slaka á“ Haukar gerðu sér góða ferð suður með sjó þar sem þær mættu Keflavík í Blue höllinni í kvöld þegar Bónus deild kvenna fór aftur af stað. Haukar voru fyrir leikinn á toppi deildarinnar og gátu með sigri styrkt stöðu sína þar. Eftir mikinn baráttu leik sem varð mun meiri spenna í lokin stóðu Haukar uppi sem sigurvegarar með einu stigi 96-97. Körfubolti 16. febrúar 2025 21:55
Njarðvík hafði betur í háspennuleik á Hlíðarenda Njarðvík lagði Val með tveggja stiga mun í æsispennandi leik að Hlíðarenda þegar liðin mættust í Bónus deild kvenna í körfubolta, lokatölur 76-78. Körfubolti 16. febrúar 2025 21:17
Háspennuleikir á Akureyri og Króknum Það voru vægast sagt spennandi leikir sem fóru fram í Bónus deild kvenna í körfubolta á Akureyri og Sauðárkróki í dag. Körfubolti 15. febrúar 2025 21:15
Grindavík upp úr fallsæti með sigri á botnliði Aþenu Grindavík vann 15 stiga sigur á botnliði Aþenu í fallbaráttuslag Bónus deildar kvenna í körfubolta, lokatölur 105-90. Körfubolti 15. febrúar 2025 17:59
Íslensku félögin greiddu KKÍ 44 milljónir til að skrá leikmenn Það hefur sjálfsagt ekki farið framhjá mörgum hve mikið líf var á félagaskiptamarkaðnum í íslenskum körfubolta þar til að glugginn lokaðist á dögunum. Samtals greiddu íslensku félögin um 44 milljónir króna í gjöld til KKÍ vegna félagaskipta og leikheimilda erlendra leikmanna. Körfubolti 14. febrúar 2025 09:02
Enn sami Siggi Ingimundar og áður: „Og bara rúmlega það“ Margfaldi Íslands- og bikarmeistarinn í körfubolta, Sigurður Ingimundarson, segist enn vera sami þjálfarinn og rúmlega það frá því að hann var síðast í starfi árið 2016. Honum rann blóðið til skyldunnar þegar að kallið kom frá félaginu hans, Keflavík á dögunum. Körfubolti 13. febrúar 2025 09:00
Meistarar verja Brynjar: „Allt er þetta ástríða og væntumþykja“ Evrópubikarmeistarinn Björgvin Páll Gústavsson og Íslandsmeistarinn Höskuldur Gunnlaugsson hafa tekið upp hanskann fyrir körfuboltaþjálfarann Brynjar Karl Sigurðsson eftir ásakanir í hans garð um ofbeldisfulla hegðun í þjálfun. Körfubolti 6. febrúar 2025 12:31
Brynjar Karl krefst þess að ÍSÍ láti af meintu níði í garð Aþenu Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari körfuboltaliðs Aþenu, er afar ósáttur við ályktun ÍSÍ svo vægt sé til orða tekið; þess efnis að þjálfarar láti af ofbeldi í störfum sínum. Brynjar Karl óskar þess að ÍSÍ láti af níði í garð stelpnanna í liði sínu. Körfubolti 4. febrúar 2025 16:58
Líta það alvarlegum augum þegar þjálfari niðurlægir iðkendur Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands segist fordæma allt ofbeldi í íþróttahreyfingunni. Sambandið bendir á að þjálfarar eigi að gæta að málfari og hegðun sinni, og beiti sér gegn öllu ofbeldi. Sport 3. febrúar 2025 19:05
Aþenustelpur hafna því alfarið að vera beittar ofbeldi Leikmenn körfuboltaliðs Aþenu í efstu deild kvenna hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þær hafna því alfarið að vera beittar ofbeldi af hálfu þjálfara síns Brynjars Karls Sigurðssonar. Körfubolti 3. febrúar 2025 13:04
Gaf sautján stoðsendingar og Ármannsstelpur áfram einar taplausar Ármann fagnaði ellefta sigri sínum í röð í 1. deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi þegar Laugardalsliðið vann fimmtíu stiga stórsigur á b-liði Keflavíkur. Körfubolti 1. febrúar 2025 12:22
„Markmiðið mitt er að enginn vill mæta okkur í fyrstu umferð úrslitakeppninnar“ Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur var að vonum svekktur með tap liðsins gegn Haukum nú í kvöld. Þorleifur segir að sitt lið hafi verið lélegt í dag og að hann taki þetta tap á sig. Körfubolti 29. janúar 2025 21:41
Sóknarleikur í fyrirrúmi þegar Njarðvík lagði Hamar/Þór Njarðvík vann góðan útisigur á Hamar/Þór í Bónus-deild kvenna í kvöld. Gestirnir brutu 100 stiga múrinn og heimaliðið var ekki langt frá því. Körfubolti 29. janúar 2025 21:19
Segir hegðun Brynjars Karls „ekkert annað en ofbeldi“ Körfuknattleiksþjálfarinn Brynjar Karl Sigurðsson mætti í ansi áhugavert viðtal eftir að lið hans Aþena tapaði áttunda leik sínum í röð í Bónus-deild kvenna í körfubolta. Gekk Brynjar Karl svo langt að kalla leikmenn sína „fokking aumingja“ í viðtalinu og mörgum virðist misboðið ef marka má færslu Bjarneyjar Lárudóttir Bjarnadóttur á Facebook. Körfubolti 29. janúar 2025 20:03
Uppgjörið: Haukar - Grindavík 88-80 | Toppliðið endurheimti tveggja stiga forskotið Topplið Hauka tók á móti Grindavík í lokaleik 16. umferðar Bónus-deildar kvenna í körfubolta nú í kvöld. Eftir spennandi leik fór svo að lokum að Haukar unnu sanngjarnan sigur 88-80 og koma sér því í 26 stig og sitja einar á toppnum. Körfubolti 29. janúar 2025 18:33
Dagskráin í dag: Gummi með átján bolta á lofti á lokakvöldi Það verður heldur betur hamagangur á Stöð 2 Sport 2 í kvöld þegar lokaumferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta fer fram. Átján leikir verða spilaðir á sama tíma. Fótbolti 29. janúar 2025 06:01
„Fokking aumingjar“ Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari Aþenu, þurfti að horfa upp á áttunda tapið í röð þegar liðið tók á móti Þór Akureyri í kvöld. Hann segir sínar konur aumingja, þær skorti karakter og þess vegna tapi liðið. Sjálfur ber hann af sér alla sök á taphrinunni og telur enga þörf á breytingum í sinni nálgun. Körfubolti 28. janúar 2025 23:59
Þórskonur eiga von á nýjum leikmanni: „Til að hjálpa okkur að halda þessari sigurgöngu áfram“ Amandine Toi varð stigahæst í öruggum sigri gegn Aþenu í sextándu umferð Bónus deildar kvenna. Þór Akureyri hefur nú unnið tíu leiki í röð og jafnað toppliðið að stigum. Sem stendur er leikmannahópur liðsins fremur þunnskipaður en Amandine vonast til að bæta leikmönnum við áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðamótin. Körfubolti 28. janúar 2025 22:40
Keflavík stakk af á Króknum og heldur sig við toppinn Eftir jafnan fyrri hálfleik vann Keflavík stórsigur gegn Tindastóli á Sauðárkróki í kvöld, 97-69, í Bónus-deild kvenna í körfubolta. Körfubolti 28. janúar 2025 21:18
Uppgjörið: Aþena - Þór Ak. 85-95 | Tíundi deildarsigur Þórs í röð Þór Akureyri hélt sigurgöngu sinni í Bónus deild kvenna áfram í kvöld og vann tíunda leikinn í röð gegn Aþenu, neðsta liði deildarinnar sem hefur nú tapað síðustu átta leikjum. Lokatölur í Breiðholtinu 85-95. Körfubolti 28. janúar 2025 21:00