Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Fjölnir 92-77 | Haukar ekki í neinum vandræðum Haukar unnu flottan sigur á Fjölni í Subway-deild kvenna í kvöld; 92-77 voru lokatölurnar í Ólafssal. Sigurinn þýðir að Haukar halda í við topplið Keflavíkur Körfubolti 7. desember 2022 23:15
Keflavík áfram á toppnum og Njarðvík valtaði yfir Breiðablik Keflavík vann 12 stiga sigur á ÍR þegar liðin mættust í Breiðholti í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur 63-75. Þá vann Njarðvík stórsigur á Breiðabliki, lokatölur í Kópavogi 76-100. Körfubolti 7. desember 2022 22:45
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 73-63 | Valskonur áfram á sigurbraut Valur vann sterkan sigur á Grindavík í 12. umferð Subway-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Lokatölur 73-63 heimaliðinu í vil sem eltir þannig Keflavík og Hauka eins og skugginn. Körfubolti 7. desember 2022 20:00
„Við vorum aldrei að fara að búast við því að vinna alla leiki í vetur“ Það brá skiljanlega ekki fyrir brosi á vörum Harðar Axels Vilhjálmssonar, þjálfara liðs Keflavíkur í Subway-deild kvenna í körfubolta, eftir að lið hans beið sinn fyrsta ósigur á þessari leiktíð gegn Val. Körfubolti 4. desember 2022 22:45
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Valur 75-84 | Valskonur fyrstar til að leggja Keflavík að velli Sigurganga Keflavíkurkvenna í Subway deildinni var stöðvuð í kvöld. Umfjöllun og viðtöl eru væntanleg á Vísi. Körfubolti 4. desember 2022 22:31
Auðvelt hjá Njarðvík gegn ÍR | Góð ferð Hauka til Grindavíkur Meistaralið Njarðvíkur átti ekki í neinum vandræðum með botnlið ÍR þegar liðin áttust við í Subway deildinni í kröfubolta í kvöld. Körfubolti 4. desember 2022 21:10
Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - Breiðablik 93-51 | Breiðablik fékk skell með nýjan þjálfara Fjölnir valtaði yfir Breiðablik í fyrsta leik Jeremy Smith sem tók við Breiðabliki eftir að Yngva Gunnlaugssyni var sagt upp störfum. Fjölnir fór hægt af stað og var þremur stigum undir eftir fyrsta fjórðung en tók síðan yfir leikinn í öðrum leikhluta og keyrði yfir Breiðablik það sem eftir var leiks. Fjölnir vann á endanum 42 stiga sigur 93-51. Körfubolti 4. desember 2022 20:22
Hildur Björg aftur í Val Hildur Björg Kjartansdóttir er snúin aftur að Hlíðarenda eftir dvöl í Belgíu. Körfubolti 4. desember 2022 17:43
„Auðvitað er þetta ótrúlega erfitt andlega“ Körfuboltakonan Helena Sverrisdóttir úr Haukum vonast til að komast aftur á völlinn fyrir áramót en hún jafnar sig eftir liðþófaaðgerð. Hún segir taka á að vera utan vallar en hlakkar mikið til að komast aftur á parketið. Körfubolti 29. nóvember 2022 15:00
„Forsendubrestur frá því að ég var ráðinn“ Yngvi Gunnlaugsson tók við kvennaliði Breiðabliks í körfubolta í sumar en fimm mánuðum síðar er hann hættur. Brotthvarf lykilleikmanna réði þar mestu. Körfubolti 25. nóvember 2022 09:01
Yngvi mun ekki klára tímabilið í Kópavogi Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur gefið frá sér yfirlýsingu þess efnis að Yngvi Gunnlaugsson mun ekki klára tímabilið sem þjálfari meistaraflokks kvenna sem leikur í Subway deild kvenna. Jeremy Smith, leikmaður karlaliðs Breiðabliks, mun stýra liðinu út tímabilið. Körfubolti 21. nóvember 2022 20:47
Er Keflavík óstöðvandi? Keflavík hefur farið frábærlega af stað í Subway-deild kvenna í körfuknattleik og er ósigrað eftir tíu umferðir. Velgengni Keflavíkur var rædd í síðasta þætti af Subway körfuboltakvöldi þar sem þeirri spurningu var velt upp hvort liðið væri hreinlega óstöðvandi. Körfubolti 19. nóvember 2022 10:31
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Keflavík 63-68 | Keflavík með fullt hús eftir tíu leiki Keflavík vann Hauka í Ólafssal 63-68. Þetta var sannkallaður toppslagur í Subway deild-kvenna. Keflavík spilaði frábærlega í öðrum leikhluta og þrátt fyrir að Haukar komu til baka hélt Keflavík sjó og kláraði leikinn. Körfubolti 16. nóvember 2022 23:00
„Þurfum að læra að góð lið byrja ekki illa á heimavelli“ Haukar töpuðu gegn toppliði Keflavíkur í Ólafssal 63-68. Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, var svekktur með hvernig Haukar spiluðu í fyrri hálfleik. Sport 16. nóvember 2022 22:30
Valur rétt marði ÍR en Njarðvík burstaði Fjölni Valur vann nauman sigur á botnliði ÍR í Subway-deild kvenna í körfuknattleik í dag. Kiana Johnson skoraði sigurkörfuna þegar þrjár sekúndur voru eftir en ÍR hefur ekki unnið leik í deildinni í vetur. Þá vann Njarðvík stórsigur á Fjölni suður með sjó. Körfubolti 16. nóvember 2022 21:13
Yngvi: Fólk getur blásið í hvaða setti sem er „Fínn fyrri hálfleikur af okkar hálfu, vantaði svolítið orku komandi inn í þriðja leikhluta og að sama skapi voru Grindavíkurstelpur mjög grimmar og hittu eins og óður maður. Það er erfitt að hemja þær þegar sá gállinn er á þeim. Þær eru búnar að spila vel að undanförnu og sýndu styrk sinn í þriðja leikhluta. Heilt yfir er ég ekkert ósáttur,“ sagði Yngvi Gunnlaugsson, þjálfari Breiðabliks, eftir tap gegn Grindavík í Subway deild kvenna í kvöld. Körfubolti 16. nóvember 2022 20:39
Umfjöllun og viðtal: Breiðablik - Grindavík 65-89 | Grindavík stakk af í þriðja leikhluta gegn Kanalausum Blikum Grindavík vann 89-65 sigur á Breiðabliki í Subway-deild kvenna í körfuknattleik í kvöld. Sigurinn var sá fjórði í vetur hjá Grindavík en Blikar voru hins vegar að tapa sínum fjórða leik í röð. Körfubolti 16. nóvember 2022 20:00
„Hún er ekki komin inn í þetta ennþá og er heillum horfin“ „Við getum ekkert dæmt, hún er búin að vera rúmlega viku hjá liðinu. Hún á eftir að venjast liðinu og liðið á eftir að venjast henni,“ sagði Ólöf Helga Pálsdóttir, sérfræðingur Körfuboltakvölds um Isabellu Ósk Sigurðardóttur í leik Njarðvíkur og Grindavíkur í síðustu umferð Subway deild kvenna. Körfubolti 12. nóvember 2022 07:00
„Hún er að verða einn af mínum uppáhaldsleikmönnum í deildinni“ Eva Margrét Kristjánsdóttir hefur spilað frábærlega með Haukaliðinu í Subway deild kvenna í vetur og átti stórleik á miðvikudagskvöldið þegar Haukakonur sóttu sigur á Hlíðarenda. Körfubolti 11. nóvember 2022 16:31
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 76-89 | Sjötti sigur Hauka í röð Haukar unnu sinn sjötta sigur í röð í Subway deild-kvenna í kvöld. Haukar unnu þrettán stiga sigur á Val 76-89. Haukar tóku frumkvæðið í fyrri hálfleik og voru mest tuttugu stigum yfir. Þrátt fyrir nokkur stutt áhlaup Vals lentu Haukar aldrei undir og fögnuðu sigri að lokum. Körfubolti 9. nóvember 2022 23:00
„Stelpurnar létu áhlaup Vals ekki buga sig sem var snilld“ Haukar unnu þrettán stiga útisigur á Val 76-89 í Subway deild-kvenna. Þetta var sjötti sigur Hauka í röð og var Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, ánægður með sigurinn. Sport 9. nóvember 2022 22:30
Við mætum svakalega sterkar til leiks í fjórða leikhlutanum, spilum frábæra vörn og klárum leikinn Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, var að eigin sögn kófsveittur í leikslok í Grindavík, en hans konur náðu aðeins að hleypa blóðþrýstingnum hjá honum upp í lokin, í leik sem þær voru í raun búnar að klára snemma í fjórða leikhluta. Körfubolti 9. nóvember 2022 22:15
Ekkert fær Keflavík stöðvað og Fjölnir vann dramatískan sigur Keflavík rúllaði yfir Breiðablik í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur 82-47 Ekkert virðist fá Keflavík stöðvað sem hefur unnið fyrstu níu leiki sína í deildinni. Í Grafarvogi vann Fjölnir nauman sigur á ÍR. Körfubolti 9. nóvember 2022 21:16
Umfjöllun: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Íslandsmeistararnir aftur á sigurbraut Grindavík tók á móti Njarðvík í HS Orku höllinni í Subway deild kvenna í kvöld. Fyrir leikinn hafði Grindvíkingum loks tekist að tengja saman nokkra sigra í deildinni en Njarðvík bókfærðu sitt fjórða tap í síðasta leik gegn Keflavík, og eflaust staðráðnar í að tapa ekki öðrum Suðurnesjaslagnum í röð. Það kom þó ekki á daginn þar sem gestirnir unnu að lokum fjögurra stiga sigur í hörkuleik. Körfubolti 9. nóvember 2022 20:00
Grindavík vann í Grafarvogi og ÍR skoraði eitt stig í fyrsta leikhluta gegn Haukum Grindavík gerði góða ferð í Grafarvog í Subway-deild kvenna í kvöld. Þær unnu þar 84-80 sigur gegn Fjölni. Þá unnu Haukar stórsigur gegn botnliði ÍR. Körfubolti 2. nóvember 2022 23:33
Isabella Ósk: Ég fann það bara fyrir sjálfa mig og mína framtíð í körfubolta að ég vildi reyna að vera í toppslag í ár Isabella Ósk Sigurðardóttir fór beint í eldlínuna í sínum fyrsta leik með Njarðvík í kvöld, þegar liðið mætti grönnum sínum í hörkuleik. Það var hart tekist á og margar villur dæmdar, þá sérstaklega á heimakonur. Körfubolti 2. nóvember 2022 22:46
Umfjöllun og viðtal: Njarðvík - Keflavík 73-80 | Toppliðið vann meistarana í Suðurnesjaslag Topplið Keflavíkur í Subway-deild kvenna í körfuknattleik vann í kvöld góðan sigur á nágrönnum sínum frá Njarðvík. Lokatölur 80-73 fyrir Keflavík sem heldur áfram góðu gengi sínu í deildinni. Körfubolti 2. nóvember 2022 22:20
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Valur 63-90 | Fjórði deildarsigur Vals í röð Valur vann tuttugu og sjö stiga útisigur á Breiðabliki í Subway deild-kvenna. Breiðablik byrjaði á að gera fyrstu sjö stigin í leiknum en fleira var það ekki hjá heimakonum. Það tók Val aðeins fimm mínútur að komast yfir og eftir það leit Valur aldrei um öxl og leikurinn var gott sem búinn í hálfleik þar sem Valur var sextán stigum yfir.Leikurinn endaði með 27 stiga sigri Vals 63-90. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. Körfubolti 2. nóvember 2022 20:45
„Ég er ráðinn til að þjálfa lið og ætla ekki að vorkenna mér þrátt fyrir að lykilleikmenn séu farnir“ Breiðablik fékk skell gegn Val á heimavelli. Valur vann sannfærandi tuttugu og sjö stiga sigur 63-90. Yngvi Gunnlaugsson, þjálfari Breiðabliks, sá margt jákvætt í leik Breiðabliks. Sport 2. nóvember 2022 20:10
Isabella Ósk til liðs við Íslandsmeistarana Isabella Ósk Sigurðardóttir er gengin til liðs við Íslandsmeistara Njarðvíkur og mun leika með þeim út tímabilið í Subway deild kvenna í körfubolta. Körfubolti 31. október 2022 19:31