Staðfesti gæsluvarðhald vegna brota gegn sextán stúlkum Landsréttur hefur staðfest úrskurð um áframhaldandi gæsluvarðhald manns á sjötugsaldri sem ákærður hefur verið fyrir kynferðisbrot gegn sextán stúlkum. Sú yngsta er aðeins ellefu ára gömul. Innlent 27. maí 2022 19:09
Þóru létt eftir að hafa lagt Óperuna í launadeilu fyrir Landsrétti Landsréttur hefur snúið við niðurstöðu héraðsdóms í máli Þóru Einarsdóttur gegn Íslensku óperunni, Þóru í vil. Þóra, sem er ein fremsta óperusöngkona þjóðarinnar, höfðaði málið vegna greiðslu vangoldinna launa. Dómurinn var kveðinn upp í Landsrétti í dag. Innlent 27. maí 2022 15:24
Þurfa ekki að greiða fyrir þá sem borguðu ekki fyrir bílastæðin Brimborg ehf. þarf ekki að greiða Rekstrarfélagi Hafnartorgs rúmar fimmtíu þúsund krónur í deilu félaganna um hvort að Brimborg bæri ábyrgð á því að greiða fyrir þá viðskiptavini bílaleigu félagsins sem nýttu sér bílastæði við Hafnartorg án þess að greiða fyrir það. Innlent 25. maí 2022 22:00
Sagði vinkonu stökkva á vagninn vegna annarrar nauðgunarkæru Karlmaður hefur verið sýknaður af nauðgun árið 2009 þar sem dómurinn taldi ákæruvaldið ekki hafa tekist að sanna sekt hans. Fá sönnunargögn lágu fyrir í málinu og byggði málið að miklu leyti á framsögu vitna. Innlent 24. maí 2022 16:29
Lenti á hausnum vegna vindhviðu en fær bætur Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest bótaskyldu veitingarstaðarins Bryggjunnar á Akureyri vegna líkamstjóns sem kona varð fyrir á leið sinni inn á veitingastaðinn í september 2015. Innlent 24. maí 2022 14:00
Kannaðist ekki við versnandi ástand konunnar sem hún féfletti Kona sem var sakfelld fyrir að féfletta tvær aldraðar systur með heilabilun hélt því fram að hún hefði ekki tekið eftir að andlegri heilsu annarrar þeirrar hefði hrakað fyrr en skömmu áður en yfirvöld hófu rannsókn á mögulegum auðgunarbrotum hennar. Fjöldi vísbendinga höfðu þó komið fram um að önnur systirin væri haldin elliglöpum. Innlent 24. maí 2022 10:24
Fyrrverandi skipstjóri á Herjólfi dæmdur í mánaðarfangelsi Héraðsdómur Suðurlands dæmdi fyrrverandi skipstjóra á Herjólfi í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að sigla Vestmannaeyjaferjunni ítrekað án þess að hafa gild atvinnuréttindi og skrá aðra skipstjóra í sinn stað án þeirra vitundar. Innlent 23. maí 2022 11:40
Gert að greiða rúmlega 36 milljóna króna sekt vegna skattsvika Kona, sem sat í stjórn einkahlutafélagsins Hæ ehf., hefur verið gert að greiða rúmlega 36 milljóna króna sekt til ríkissjóðs fyrir skattalagabrot á árunum 2016 og 2017. Innlent 20. maí 2022 17:39
Ríkið þarf að greiða olíufélögum rúmlega hálfan milljarð Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða Skeljungi 448 milljónir króna í dómsmáli sem snerist um endurgreiðslu flutningsjöfnungargjalds. Ríkið þarf jafn framt að greiða Atlantsolíu 86 milljónir vegna sambærilegs máls. Viðskipti innlent 20. maí 2022 15:50
Kynferðisbrotamenn reyni að nálgast börn í auknum mæli á Snapchat Ábendingum til lögreglu um meinta kynferðisbrotamenn á samskiptaforritinu Snapchat hefur fjölgað á undanförnum árum. Þetta segir lögregla sem telur óvíst hvort lögregla hafi lagalegar heimildir til að loka slíkum reikningum. Innlent 20. maí 2022 12:07
„Mikill skellur fyrir stóran hóp af fólki“ Lögmaður gagnrýnir harðlega að hefja eigi aftur brottvísanir á hælisleitendum í stórum stíl. Umbjóðendur hans hafi fest hér rætur í faraldrinum. Hann hafnar því sem hann kallar alhæfingu ríkislögreglustjóra, sem segir 250 manns dvelja hér án heimildar eftir að hafa neitað að undirgangast sóttvarnareglur. Innlent 20. maí 2022 11:31
Brynjar dæmdur fyrir þrjár nauðganir og margvísleg önnur brot gegn ungum stúlkum Brynjar Joensen Creed, sem ákærður var í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli, hefur verið dæmdur í sex ára óskilorðsbundið fangelsi. Dómur í málinu gegn Brynjari var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness á þriðja tímanum. Innlent 19. maí 2022 15:35
Dæmdur fyrir að stinga mann í bakið og bíta og hóta lögreglumanni lífláti Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann í átján mánaða fangelsi meðal annars fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa stungið mann í bakið með borðhníf og sömuleiðis fyrir að hafa bitið og hótað lögreglumanni lífláti. Innlent 18. maí 2022 07:50
Gísli dæmdur fyrir líkamsárás: Brotaþola létt eftir tveggja ára bið og tjáir sig um ofbeldið Gísli Hauksson, einn stofnenda fjárfestingasjóðsins GAMMA, hefur verið dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi í nánu sambandi. Fyrrverandi sambýliskona Gísla segist þakklát því að málinu sé lokið fyrir dómstólum, tveimur árum eftir árásina, Innlent 17. maí 2022 14:54
Þolendur ofbeldis gerðir að skotmarki í dómsal Fyrirlitning, mismunun og þöggun gegn þolendum kynbundins ofbeldis lifir góðu lífi í íslensku samfélagi. Fjallað hefur verið um þennan rótgróna vanda okkar fámennu þjóðar í erlendum fjölmiðlum, sem hafa sýnt vaxandi áhuga á feminískri baráttu á Íslandi. Skoðun 16. maí 2022 13:31
Greiði rúmlega sex milljónir króna vegna uppsagnar þungaðrar konu Ferðaþjónustufyrirtæki hefur verið dæmt til að greiða konu skaðabætur upp á ríflega sex milljónir króna vegna þess að henni var sagt upp með ólögmætum hætti skömmu eftir að hún tilkynnti að hún væri barnshafandi. Innlent 13. maí 2022 20:01
Fyrrverandi formaður dæmdur til að greiða húsfélagi 2,8 milljónir Kona, sem gengdi hlutverki formanns í húsfélags Efstasunds 100, hefur verið dæmd til að greiða húsfélaginu rúmar 2,8 milljónir króna. Konan hafði dregið sér fé úr húsfélaginu þegar hún var þar formaður á árunum 2017 til 2019. Innlent 13. maí 2022 17:43
„Ég sá að löggurnar sem voru í dómnum voru bara sofandi“ Gabríel Douane Boama, sem strauk úr Héraðsdómi Reykjavíkur í apríl, segir lífið í fangelsi ágætt. Hann segist hafa flúið úr héraðsdómi þegar hann sá að lögreglumennirnir hafi ekki veitt honum næga athygli og hann hafi vitað að hann næði að flýja. Innlent 13. maí 2022 07:01
Bílabúð Benna fær ekki að áfrýja og þarf að greiða milljónir Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Bílabúðar Benna um áfrýjun á máli er varðar gallaða Porsche bifreið. Bifreiðasalan þarf að greiða milljónir vegna riftunar á kaupsamningi. Innlent 12. maí 2022 18:53
Braust inn í tvær skartgripaverslanir á Laugavegi með viku millibili 45 ára karlmaður hefur verið dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir tvö innbrot í skartgripaverslanir á Laugaveginum í apríl 2020. Innbrotin voru gerð með viku millibili og hafði hann rándýra skartgripi upp úr krafsinu. Innlent 12. maí 2022 13:29
Tíu mánaða skilorð fyrir heimilisofbeldi og fyrir að bíta í læri lögreglumanns Karlmaður hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni, umferðarlagabrot, ofbeldi í nánu sambandi og brot á barnaverndarlögum. Maðurinn er þar að auki sviptur ökurétti í tvö og hálft ár og til að greiða 210 þúsund króna sekt í ríkissjóð. Innlent 12. maí 2022 13:17
Grunaður um nauðgun, ránstilraunir og líkamsárásir Karlmaður á fertugsaldri sem grunaður er um mörg brot á undanförnum vikum, þar á meðal nauðgun, ránstilraunir og líkamsárásir, var í dag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald til 8. júní, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 11. maí 2022 18:57
Dæmdur í fimmtán mánuði fyrir sérstaklega hættulega hnífstunguárás Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir hótun og sérstaklega hættulega líkamsárás. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn einnig til að greiða brotaþola 600 þúsund krónur í miskabætur. Innlent 11. maí 2022 16:26
Ákærður fyrir að hafa keypt kynlífstæki fyrir fimm stúlkur og svo nauðgað þeim Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað fjórum ólögráða stúlkum, sumum oftar en einu sinni, ítrekað og beitt þær allar, auk þeirrar fimmtu, ítrekuðu kynferðisofbeldi og -áreiti. Aðalmeðferð í málinu er lokið fyrir Héraðsdómi Reykjaness og er dómsuppsaga á dagskrá 19. maí næstkomandi. Þinghald í málinu er lokað. Innlent 11. maí 2022 12:50
Gísli Hauksson játaði brot í nánu sambandi Gísli Hauksson, einn stofnenda fjárfestingasjóðsins GAMMA, játaði í dag fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að hafa í maí árið 2020 ráðist á þáverandi sambýliskonu sína. Innlent 10. maí 2022 18:18
Ósannað að blekkingar hafi skilað zúistabræðrum milljónum Tveir bræður sem reka trúfélagið Zuism voru sýknaðir af ákæru um fjársvik og peningaþvætti þar sem ósannað var talið að meintar blekkingar þeirra hafi verið ástæða þess að ríkið greiddi þeim tugi milljóna króna í sóknargjöld. Innlent 9. maí 2022 15:51
Ekki vanhæfur þrátt fyrir „óviðeigandi“ ummæli Þrátt fyrir að tvenn ummæli staðgengils lögreglustjórans á Norðurlandi eystra í garð fjölmiðlafólks séu talin óheppileg og óviðeigandi er hann ekki vanhæfur til að fara með rannsókn á meintu broti gegn friðhelgi Páls Steingrímssonar skipstjóra. Innlent 9. maí 2022 13:08
Þórður Snær segist ekki lengur geta setið undir óhróðri Páls Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans og Arnar Þór Ingólfsson ætla að stefna Páli Vilhjálmssyni bloggara og framhaldsskólakennara fyrir meiðyrði. Innlent 9. maí 2022 12:24
Frænka situr uppi með kostnaðinn eftir deilur um faðerni Kona nokkur hefur verið dæmd til að greiða ekkju bróður síns og syni hans málskostnað og kærumálskostnað vegna faðernismáls sem hún höfðaði eftir að bróðir hennar féll óvænt frá. Dómur var kveðinn upp í Landsrétti á dögunum. Innlent 7. maí 2022 16:27
Faðir dæmdur fyrir ofbeldi gegn fjórtán ára dóttur Faðir á Austurlandi hefur verið dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi gegn dóttur sinni í október 2020. Hún var fjórtán ára þegar brotið átti sér stað. Innlent 7. maí 2022 15:52