„Þetta er allt á hreyfingu“ Björgunarsveitarmaður sem var á vakt í Grindavík í dag segir jörðina enn á hreyfingu í bænum. Hann segist merkja breytingar í þessari frá þeirri síðustu, hús halli meira og merki um jarðhræringar sjáist á malbiki. Innlent 13. febrúar 2024 23:12
Fékk flogakast vegna streitu og álags Ung hjón úr Grindavík segja erfitt að taka ákvörðun um að selja ríkinu glænýtt hús sitt í bænum. Það sé útilokað að finna sambærilega eign í nágrenni höfuðborgarsvæðisins fyrir verðið sem þau fá fyrir húsið. Þau segja að álagið undanfarna mánuði hafi tekið mikinn toll af þeim og vonast til að geta snúið einhvern tíma aftur heim. Innlent 13. febrúar 2024 20:00
Píparar áfram til taks Píparasveit almannannavarna verður áfram til taks fyrir íbúa Suðurnesja. Þetta kemur fram í stuttri tilkynningu frá almannavörnum. Innlent 13. febrúar 2024 18:35
Fara af neyðarstigi og á hættu- og óvissustig Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákveðið að fara af neyðarstigi Almannavarna vegna eldgoss á Reykjanesskaga, þar sem búið er að lýsa yfir goslokum. Innlent 13. febrúar 2024 12:19
Íbúar í Suðurnesjabæ geti fljótlega byrjað að kynda hús sín Suðurnesjabær enn án hita en vonast er til íbúar geti kynt hús sín um og eftir hádegi að sögn verkstjóra hjá HS veitum. Hiti sé kominn víðast hvar annars staðar á Suðurnesjum. Sérfræðingar hafa farið í fjölda útkalla vegna ástandsins síðasta sólahringinn. Innlent 13. febrúar 2024 11:51
Hægt verði að auka aðgengi að Grindavík Almannavarnir hafa endurmetið heildaráhættu fyrir Grindavík með tilliti til verðmætabjörgunar íbúa og fyrirtækja fyrir næstkomandi miðvikudag til föstudaga. Niðurstaðan er sú að hægt sé að opna fyrir aukið aðgengi að Grindavík. Innlent 12. febrúar 2024 23:16
Sjálfstæðismenn í Grindavík vilja rýmri aðgengisreglur Sjálfstæðisfélag Grindavíkur skorar á ríkisstjórnina að rýmka reglur um aðgengi íbúa að eignum sínum í Grindavík. Þetta kemur fram í ályktun félagsins. Innlent 12. febrúar 2024 22:35
Spáir næsta gosi 1. mars Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir líklegt að næsta eldgos á Reykjanesskaga verði í kringum 1. mars. Útlit sé fyrir að sama mynstur og hefur verið ríkjandi muni endurtaka sig. Þó geti jarðskjálfti eða annar atburður alltaf breytt stöðunni. Innlent 12. febrúar 2024 21:50
Kraftaverk við hitaveitulögnina Íbúar á Reykjanesi ættu allir að vera komnir aftur með heitt vatn á ný í síðasta lagi í nótt. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir að um kraftaverk sé að ræða en fjörutíu pípulagningamenn eru í viðbragðsstöðu í kvöld. Innlent 12. febrúar 2024 21:42
Blæs á gagnrýni um að ekkert hafi verið gert Forstjóri HS Orku vísar á bug gagnrýni á að ekki hafi verið lögð varalögn við Svartsengi. Vinna síðustu þriggja ára hafi nýst vel. Innlent 12. febrúar 2024 18:52
Fólk búið undir alls konar vendingar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsótti Svartsengi í dag og bar nýja hitaveitulögn augum. Hún segir þrekvirki hafa verið unnið á staðnum. Mikilvægt sé að byrja að líta til framtíðar og huga að náttúruvá í framtíðarskipulagi. Innlent 12. febrúar 2024 17:43
Fékk sér fiskibollur með starfsfólki HS veitna Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra leit við á starfsstöð HS veitna í dag þar sem boðið var upp á fiskibollur í tilefni dagsins. Lífið 12. febrúar 2024 14:33
Þeir unnu mikið afrek Mitt gamla stálhjarta sló mörg aukaslög í gleði og stolti þegar málmsuðu- og tæknimennirnir luku því gríðarlega vandasama verki í nótt að smíða og tengja hjáveitulögn yfir nýja hraunið og koma heita vatninu aftur til íbúanna. Skoðun 12. febrúar 2024 14:00
Íbúar verði að vera heima þegar vatnið kemur aftur á Arinbjörn Snorrason, fulltrúi almannavarna, segir mikilvægt að Suðurnesjamenn séu heima hjá sér og fylgist með þegar verið er að hleypa heitu vatni aftur inn á kerfin eftir viðgerð á Njarðvíkurlögn. Innlent 12. febrúar 2024 13:27
Heitt vatn komið í öll hús fyrir lok dags Heitavatnslögnin frá Svartsengi til Fitja er komin í lag og streymir heitt vatn nú inn í hús. Vonast er til að heitt vatn verði komið í öll hús fyrir lok dags og er fólki bent á að vera vakandi fyrir því hvort vatn flæði eðlilega inn í húsin. Innlent 12. febrúar 2024 12:14
Hafa flutt tæp tvö þúsund tonn af vatni í trukkum Starfsfólk Veitna hefur á undanförnum tveimur sólarhringum flutt nærri því tvö þúsund tonn af heitu vatni á tönkum til Suðurnesja. Unnið hefur verið að því sleitulaust með því markmiði að verja lagnakerfið á Suðurnesjum og auðvelda uppkeyrslu kerfisins. Innlent 12. febrúar 2024 12:07
Helgin köld en helstu áskoranir leystar Íbúar á Reykjanesi segja síðustu daga hafa verið nokkuð kalda vegna heitavatnsleysisins. Þeir mæta þó öllum áskorunum með miklu æðruleysi og redda sér þegar kemur að því að til dæmis komast í bað og vaska upp. Innlent 12. febrúar 2024 12:03
Landris hafið á ný undir Svartsengi Mælar á Svartsengissvæðinu sýna að landris sé hafið og að kvika sé farin að safnast undir Svartsengi að nýju. Enn sé of snemmt að gera líkanreikninga eða mæla nákvæma staðsetningu. Innlent 12. febrúar 2024 10:42
Hitaveitan í gang: Húseigendur hvattir til að vitja eigna sinna Viðgerð er lokið á hitaveituæðinni frá Svartsengi og heitt vatn farið að streyma í tanka á Fitjum. Unnið er að undirbúningi þess að hleypa inn á kerfið og geta viðskiptavinir vænst þess að heitt vatn fari að streyma á næstu klukkstundum. Innlent 12. febrúar 2024 09:18
Leiðandi leiðtogar Hver leiddi þig þín fyrstu skref á lífsins göngu ? Líklega einhver sem ann þér sama hvað. Einhver sem er þín fyrirmynd og leiðtogi sem skiptir máli fyrir þína framtíð. Einhver sem hlustar, hlúir að og gefur af sér sama hvað. Skoðun 12. febrúar 2024 09:00
Flúði kuldann heima og gisti í Kópavogi Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins er búsettur á Suðurnesjum en flúði kuldann þar og fór til Kópavogs. Innlent 12. febrúar 2024 08:37
Mikilvæg uppbygging orkuinnviða HS Orku á Reykjanesi Allra augu beinast nú að orkuinniviðum á Reykjanesskaga. Þar eru fordæmalausar aðstæður uppi sem valda því að heilt landsvæði hefur sem stendur ekki aðgengi að grunnþjónustu sem við Íslendingar teljum sjálfsagða. Skoðun 12. febrúar 2024 08:00
Vatn farið að streyma í heitavatnstanka á Fitjum Framkvæmdir við nýja hjáveitulögn Njarðvíkuræðarinnar gengu vonum framar í nótt og vatn er nú tekið að streyma inn í heitavatnstanka HS Orku á Fitjum. Innlent 12. febrúar 2024 07:46
Grindvíkingar gera ýmsar athugasemdir við uppkaupsfrumvarpið Alls hafa borist 172 umsagnir um drög að frumvarpi um kaup ríkisins á íbúðarhúsnæði í Grindavík, sem birt voru í samráðsgátt á föstudag. Umsagnartíminn rennur út í dag. Innlent 12. febrúar 2024 06:41
„Hér er um lengri tíma viðburði að ræða“ Orkumálastjóri segir ljóst að atburðirnir á Suðurnesjum komi til með að endurtaka sig og mikilvægt sé að innviðir séu undir það búnir. Vinnuvegur var lagður í nótt ofan á hraunið sem flæddi yfir Grindavíkurveg í núliðnu eldgosi. Innlent 11. febrúar 2024 21:00
„Það er í raun allt mjög einstakt við þetta verkefni“ Vinnuvegur var lagður í nótt ofan á heitt hraunið sem rann yfir Grindavíkurveg í síðustu viku. Skammt frá vinna tugir manna, allan sólarhringinn, við varasamar aðstæður að nýrri hjáveitulögn fyrir Suðurnesin. Innlent 11. febrúar 2024 18:45
Álag við þolmörk um kvöldmatarleyti og brýnt að raforkunotkun sé takmörkuð HS veitur biðla enn og aftur til íbúa Suðurnesja að fara sparlega með rafmagn um kvöldmatarleytið vegna ástandsins sem þar er en heitavatnslaust hefur verið síðan á fimmtudag. Innlent 11. febrúar 2024 17:56
Sporthúsið býður íbúum aðgang að sturtu ókeypis Sporthúsið í Reykjanesbæ hefur ákveðið að bjóða heitavatnslausum íbúum ókeypis í sturtu. Æfingaaðstaða þeirra er líka opin. Innlent 11. febrúar 2024 16:56
„Þetta er óþarfa tjón“ Jarðeðlisfræðingur segir andvaraleysi hafa ríkt í skipulagsmálum með tilliti til náttúruvár. Til að mynda hefði verið hægt að koma í veg fyrir tjón í Grindavík. Innlent 11. febrúar 2024 13:16
Sumir með heitt vatn en eiga alls ekki að nota það Heitt vatn rennur nú um kerfi einhverra húsa í Reykjanesbæ. Lögreglan á Suðurnesjum segir vatnið alls ekki vera til notkunar íbúa. Innlent 11. febrúar 2024 10:46