
Spá næsta eldgosi á milli Sýlingarfells og Hagafells
Sérfræðingar Veðurstofunnar telja líklegt að kvikusöfnun og landris við Svartsengi leiði til eldgoss á milli Sýlingarfells og Hagafells. Líkur á eldgosi aukast með hverjum degi sem líður.
Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það níunda varð norðan Grindavíkur í ágúst 2024.
Sérfræðingar Veðurstofunnar telja líklegt að kvikusöfnun og landris við Svartsengi leiði til eldgoss á milli Sýlingarfells og Hagafells. Líkur á eldgosi aukast með hverjum degi sem líður.
Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, eða RAX, náði myndunum hér fyrir neðan úr lofti í grennd við gosstöðvarnar við Sundhnúk. Önnur er tekin áður en gosið hófst og sú seinni eftir að því lauk í gær.
Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig af neyðarstigi niður á hættustig vegna eldgos á Reykjanesskaga.
Skýrt landris er við Svartsengi samkvæmt GPS mælum á svæðinu. Jarðeðlisfræðingur segir þrjár sviðsmyndir í boði en að erfitt sé að segja til um það hvað gerist næst. Enn sé nokkur hætta á svæðinu.
Rólegt var á Reykjanesskaga í nótt og lítil jarðaskjálftavirkni á svæðinu.
Kvikusöfnun virðist hafin að nýju undir Svartsengi. Vísindamenn segja þessa atburðarás og þetta stutta eldgos, sem lauk í dag, helst minna á Kröfluelda.
Eldgosinu við Sundhnúksgíga virðist lokið. Nýjar myndir frá gosstöðvunum sýna að enn er glóð í nýja hrauninu en virkni er alveg dottin niður. Bæjarstjóra Grindavíkur segir goslok góðar fréttir - en vill ekki fagna of fljótt.
Veðurstofa Íslands gefur út hættumatskort vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Á kortinu sem nú gildir segir m.a. að töluverð hætta sé á gosopnun án fyrirvara í Grindavík auk þess sem hætta sé á sprunguhreyfingum, jarðskjálftum ásamt fleiru. Á hluta Grindavíkurvegar og Bláalónsvegar metur Veðurstofan mjög miklar líkur á skyndilegri gosopnun ásamt öðrum hættum af völdum jarðhræringanna.
Fyrrverandi hæstaréttardómarinn Jón Steinar Gunnlaugsson hefur tekið að sér mál nokkurra Grindvíkinga sem hyggja á málshöfðun á hendur ríkinu vegna lokana í Grindavík. Jón telur stjórnvöldum ekki heimilt að banna Grindvíkingum að fara til sinna heima, en þeir hafa búið við strangar takmarkanir um hvort og hvenær þeir mega vera í bænum frá því snemma í nóvember.
Vísbendingar eru um að kvikusöfnun sé hafin að nýju undir Svartsengi. Náttúruvásérfræðingur segir sérfræðinga búa sig undir möguleikann á ítrekaðri virkni.
Guadalupe Megías, fréttamaður spænska ríkissjónvarpsins, kom til Íslands í gær til að flytja fréttir af eldgosinu við Grindavík. Innan við sólarhring síðar er gosinu lokið.
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, segir mjög litlar líkur á því að það gjósi í eða við Grindavík. Líklegt verði að telja að annað gos verði á svæðinu þar sem eldgos hófst á mánudagskvöld og lauk í morgun.
Gosinu við Sundhnúksgíga er lokið. Slokknað er í öllum gígum, en glóð er enn sjáanleg. Erfitt er þó að segja til um framhaldið.
Gosvirkni við Sundhnúksgíga er áfram sýnileg, en virðist heldur minni en í gær.
Vísindamenn á flugi yfir gosstöðvunum á Reykjanesskaga í morgun sáu enga gosvirkni. Virðist sem slokknað sé í gígum en glóð eru enn sjáanleg í hraunbreiðunni. Enn er þó of snemmt að lýsa yfir goslokum þar sem hraun gæti flætt í lokuðum rásum.
Altjónslisti frá Náttúrutryggingum Íslands (NTÍ) yfir hús í Grindavík verður tekinn fyrir af bæjarstjórn Grindavíkurbæjar á milli jóla og ný árs. Íbúi segist hafa fengið þau svör að ekki verði hægt að bæta tjón fyrr en afstaða liggi fyrir í málinu.
Grindvíkingur segir fregnir af eldgosinu hafa slegið íbúa afar illa. Hann segist hafa verið dofinn líkamlega og andlega fyrst um sinn og að það sé erfitt að lifa í svona óvissu.
Uppfært hættumat Veðurstofunnar gerir ráð fyrir töluverðri hættu á gosopnun í Grindavík. Áður var hættan talin mikil. Náttúruvársérfræðingur segir stöðuna geta breyst hratt, eins og hún hafi þegar gert. Því sé ómögulegt að segja til um framhaldið.
Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, segir að á meðan gosið sé í gangi sé ekki öruggt að gista í Grindavík. Áhersluna sé að tryggja öryggi og velferð þeirra en aðbúnaður fyrir ferðamenn og þá sem vilja bera gosið augum sé aftarlega á listanum. Því segir hann göngustíg að gosstöðvunum ekki í forgangi, en seinna meir gæti það verið sett í skoðun.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina munu leggja til að húsnæðisstuðningur ríkisins við Grindvíkinga verði framlengdur út veturinn. Hann átti að renna sitt skeið í lok febrúar.
Fjölskyldufaðir sem býr í Grindavík óttast að þjóðin muni fá leið á Grindvíkingum og að fjara muni undan hjálpseminni sem var svo mikil í upphafi. Nú sé ljóst að Grindvíkingar muni þurfa á stuðningi og skilningi að halda lengur en áður var talið. Margir viti ekki einu sinni hvar þeir muni búa á nýju ári.
Eldgosið við Sundhnúksgíga hefur verið mikið sjónarspil þó nokkuð hafi dregið úr krafti þess síðan það hófst á mánudagskvöld. Ragnar Axelsson ljósmyndari, betur þekktur sem RAX, var við gosstöðvarnar í gærkvöldi og náði mögnuðum myndum af nýrri jörð myndast.
„Eins og alltaf, byrjum við á stóru fréttinni frá Íslandi.“ Þetta sagði Stephen Colbert, stjórnandi The Late Show, í upphafi þáttar síns á CBS í gærkvöldi. Þar ræddi hann á léttum nótum um eldgosið á Reykjanesi og nafn Þorvalds Þórðarsonar.
Upplýsingafundur almannavarna vegna eldgossins við Sundhnúksgíga hefst klukkan 14.
Íbúi í Grindavík segir sárt að sjá landsmenn horfa á eldgosið við Sundhnúksgíga sem afþreyingu á meðan Grindvíkingar glíma við erfiðar tilfinningar. Grindvíkingar þurfi meiri vissu um hvað taki við á komandi mánuðum.
Eftir fund aðgerðastjórnar og vettvangsstjórnar nú í morgun hefur Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákveðið að banna alla umferð og viðveru í Grindavíkurbæ á meðan nýtt hættumatskort er í gildi.
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segist telja eldgosið í Sundhnúksgígum vera komið á lokastig. Breytist ekkert gæti það verið búið um helgina.
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur stendur enn við þá skoðun sína að Grindavíkurbær sé ekki í hættu vegna eldgoss og að leyfa eigi bæjarbúum að snúa aftur heim til sín.
Eldgosið á Reykjanesskaga hefur minnkað mjög frá því sem það var í upphafi á mánudagskvöld. Jarðeðlisfræðingur segir það farið að líkjast þeim eldgosum sem hafa orðið á Reykjanesskaga á síðustu árum.
Nokkuð var um að vera hjá viðbragðsaðilum við gosstöðvarnar þó nóttin hafi verið tíðindalítil heilt yfir. Samskiptastjóri almannavarna segir viðbragðsaðila skilja vilja fólks til að berja eldgosið augum en aðstæður séu ekki hliðhollar til skoðunarferða.