Ljótar sprungur en lítur miklu betur út en hann ímyndaði sér Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir Grindavík líta mun betur út en hann bjóst við. Nú þurfi Grindvíkingar að laga innviði svo að bærinn verði aftur íbúðarhæfur. Innlent 28. nóvember 2023 15:36
Hraunið reynst betur en vonir stóðu til Vinna við að reisa varnargarða til varnar virkjuninni að Svartsengi og Bláa lóninu hefur gengið betur en von var á. Sviðsstjóri hjá Verkís segir ástæðuna þá að betur hafi gengið að nýta jarðveg á svæðinu en búist var við í upphafi. Innlent 28. nóvember 2023 15:01
Ekki fundið einn einasta skjálfta í Grindavík í marga daga Bjarki Sigmarsson, sölumaður í verslun Vélsmiðju Grindavíkur, segir það góða tilfinningu að vera mættur aftur til vinnu. Hann segist ekki hafa fundið einn einasta skjálfta í bænum í marga daga. Innlent 28. nóvember 2023 14:53
Viðgerð á stóru sprungunni við Austurveg hafin Framkvæmdir eru hafnar við viðgerð á Austurvegi þar sem stóra sprungan myndaðist sem sést hefur á forsíðum helstu miðla heimsins. Innlent 28. nóvember 2023 14:36
Lögverndað siðleysi Klukkan tifar, það styttist í mánaðarmót. Þegar þessi orð eru skrifuð eru tæplega fjögur þúsund sálir frá kyrrlátu þorpi á suðvesturhorni lítils lands í norður Atlantshafi tvístraðar um eyjuna, margar á vergangi, húsnæðislausar og óttaslegnar með lítið í farteskinu annað en helstu nauðsynjar, kvíða og brostna framtíðardrauma. Skoðun 28. nóvember 2023 13:00
Opna stuðningstorg fyrir Grindvíkinga Almannavarnir, Rauði krossinn og íslenska fjarheilbrigðisfyrirtækið Kara Connect hefur komið rafrænu stuðningstorgi á laggirnar. Þar geta Grindvíkingar sótt sérhæfðan stuðning og heilbrigðisþjónustu sér að kostnaðarlausu frá og með deginum í dag. Innlent 28. nóvember 2023 10:28
Segja lífeyrissjóðina ekki mæta Grindvíkingum nægilega vel Forsvarsmenn verkalýðsfélaga í Grindavík segja lífeyrissjóði ekki mæta Grindvíkingum eins vel og bankar og íbúðalánasjóður. Þeir mótmæli við stærstu skrifstofur þar til það verði gert. Innlent 28. nóvember 2023 10:16
Framlengja lokun lónsins Stjórnendur Bláa lónsins hafa tilkynnt um framlengingu lokunar þess til 7. desember. Lónið hefur nú verið lokað síðan 9. nóvember vegna jarðhræringanna við Grindavík. Innlent 28. nóvember 2023 09:56
Rýmri tími til heimsókna og atvinnulífið mögulega af stað Rétt fyrir klukkan sex í morgun mældist stakur skjálfti upp á 3,5 stig í Vatnafjöllum í grennd við Heklu. Innlent 28. nóvember 2023 06:58
Frumvarp um laun Grindvíkinga samþykkt einróma Frumvarp félagsmálaráðherra um launagreiðslur til Grindvíkinga var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á Alþingi í dag. Innlent 27. nóvember 2023 19:30
Enn kvikuþrýstingur og hrinan kom á óvart Kvikugangurinn við Grindavík gæti verið breiðari en áður var áætlað og storknun hans gæti tekið mun lengri tíma, miðað við nýjustu líkön. Jarðskjálftafræðingur segir nýjustu jarðskjálftahrinu sýna að enn sé kvikuþrýstingur á svæðinu. Innlent 27. nóvember 2023 18:52
Mesta virknin áfram nærri Sýlingarfelli og Hagafelli Áfram er mesta jarðskjálftavirknin á Reykjanesskaga nærri Sýlingarfelli og Hagafelli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Innlent 27. nóvember 2023 16:07
Uppgötvaði holu fyrir utan heimilið: „Þetta bara hverfur hérna ofan í“ Þorleifur Hjalti Alfreðsson, íbúi í Grindavík og rafvirki, uppgötvaði risastóra holu undir garði heima hjá sér í dag þar sem krakkarnir hans leika sér allajafna í fótbolta. Hann kemur kústi ofan í holuna án þess að ná til botns. Innlent 27. nóvember 2023 15:30
„Við erum ekkert alveg búin með þennan atburð“ Jarðskjálftahviða var á kvikuganginum á Reykjanesi um miðnætti og segir jarðskjálftafræðingur það til marks um að enn sé kvika á hreyfingu í kvikuganginum. Ljóst sé að atburðinum sé ekki lokið. Innlent 27. nóvember 2023 11:57
Jarðskjálftahviða austur af Sýlingarfelli en engar vísbendingar um gosóróa Rétt fyrir miðnætti hófst jarðskjálftahviða á kvikuganginum á Reykjanesi, rétt austur af Sýlingarfelli. Hviðan stóð yfir í rúma klukkustund og mældust um 170 skjálftar, flestir undir tveimur að stærð. Innlent 27. nóvember 2023 06:13
„Það hefur heilmikið breyst en samt ekkert sérstaklega mikið“ Á fáeinum dögum virðist mat manna á stöðunni í Grindavík og nágrenni hafa gjörbreyst. Víðir Reynisson segir Almannavarnir líta á stöðuna núna sem einhverskonar logn en öll merki séu um að atburðarrásinni sé ekki lokið. Innlent 26. nóvember 2023 13:29
130 skjálftar frá miðnætti Frá miðnætti hafa um 130 skjálftar mælst við kvikuganginn á Reykjanesskaga, allir undir 1 að stærð. Í gær mældust tæplega 510 skjálftar, sá stærsti 2,3 að stærð um klukkan hálf fjögur með upptökum rétt austan við Sýlingafell. Búast má við aukinni skjálftavirkni vegna landriss í Svartsengi. Innlent 26. nóvember 2023 08:49
Staðráðin í að snúa aftur „hvað sem það kostar“ Grindvíkingar fengu að fara með flutningabíla inn í bæinn í dag, til að vitja fleiri muna en þeirra nauðsynja sem þeir hafa hingað til getað sótt. Þeir íbúar sem fréttastofa hitti á eru staðráðnir í að Hflytja aftur heim. Hugsanlegt er að hluti kvikunnar undir bænum sé storknaður. Innlent 25. nóvember 2023 19:52
Líkur á gosi í Grindavík fari hratt þverrandi Talið er að kvikan undir kvikuganginum undir Grindavík sé storknuð að hluta til. Verulega hefur dregið úr skjálftavirkni þar og fara líkur á gosi hratt þverrandi með hverjum degi. Innlent 25. nóvember 2023 16:45
Heimilt að fara inn í Grindavík með flutningabíla Íbúar í Grindavík hafa í dag heimild til að fara inn í bæinn með flutningabíla. Heimildin gildir frá klukkan níu til fjögur. Í næstu viku verður boðið upp á aðstoð við flutninga. Innlent 25. nóvember 2023 09:16
Sáralitlar líkur á gosi úr sprungunni Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir sáralitlar líkur á því að það gjósi úr sprungunum sem mynduðust í miðjum Grindavíkurbæ. Mestar líkur eru á gosi við Svartsengi. Innlent 24. nóvember 2023 18:15
Svæðið milli Hagafells og Sýlingarfells áfram líklegast Áfram eru taldar líkur á eldgosi yfir kvikuganginum á Reykjanesskaga. Í dag hafa tæplega 300 skjálftar mælst frá miðnætti. Þetta kemur fram í samantekt á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 24. nóvember 2023 12:36
Húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga fyrir 240 milljónir á mánuði Ríkisstjórnin samþykkti á ríkisstjórnarfundi í dag stuðningsaðgerðir til að mæta húsnæðisþörfum Grindvíkinga vegna jarðhræringa á svæðinu. Aðgerðirnar fela meðal annars í sér tímabundinn fjárhagslegan stuðning vegna aukins húsnæðiskostnaðar Grindvíkinga. Innlent 24. nóvember 2023 11:59
Bein útsending: Blaðamannafundur um húsnæðisstuðning við Grindvíkinga Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum klukkan 11:30 í dag. Á fundinum munu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra ræða húsnæðisstuðning við íbúa Grindavíkur. Innlent 24. nóvember 2023 11:08
Verðbólga jókst verulega í kjölfar gossins í Heimaey „Það er erfitt að bera saman hugsanlegar efnahagsaðgerðir nú og á tíma Vestmannaeyjagossins fyrir 50 árum vegna þess hve mikið hagkerfið hefur breyst. Sérstaklega er umgjörð peningamála nú allt önnur.“ Innlent 24. nóvember 2023 09:41
Ég um mig frá mér til ég ræð Forkastanlegt bann það sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur af kunnuglegri ofurforsjárhyggju og fruntaskap sett á vegna núverandi atburða í Grindavík er ekki einvörðungu að verða okkur til atlægis úti í heimi heldur eru gjörðir hans og þvermóðska lílkleg til þess að valda landinu og ferðaþjónustunni stórum skaða sem hæglega getur hlaupið á miljörðum. Skoðun 24. nóvember 2023 09:01
Boða til blaðamannafundar um húsnæðisstuðning við Grindvíkinga Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar þar sem fjallað verður um húsnæðisstuðning við íbúa Grindavíkur í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesskaga síðustu vikurnar. Fundurinn hefst klukkan 11:30. Innlent 24. nóvember 2023 08:41
Íbúar í Grindavík fá rýmri heimildir á morgun Íbúum í Grindavík verður leyft að fara á fólksbílum inn í bæinn á morgun til að sækja verðmæti. Þá verða sendibílar og aðrir bílar allt að 3,5 tonn í heildarþyngd og kerrur auk þess leyfðar. Þá verður ekki haldinn upplýsingafundur almannavarna á morgun. Innlent 23. nóvember 2023 19:15
Elsta steinhús bæjarins ónýtt Elsta steinhús Grindavíkur er stórskemmt eftir hamfarir síðustu daga. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur beint því til íbúa þess að tæma það alveg. Þrjár fjölskyldur bjuggu í húsinu. Innlent 23. nóvember 2023 16:52
„Maður vill ekkert meira en að búa áfram á þessu heimili“ Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er einn fjölmargra Grindvíkinga sem fengu að fara heim til sín í dag að sækja verðmæti. Fulltrúar fréttastofu fengu að líta við hjá honum og sjá skemmdirnar. Innlent 23. nóvember 2023 14:22