Formúla 1

Formúla 1

Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.

Fréttamynd

Hamilton frábær í Bandaríkjunum

Lewis Hamilton ók frábærlega í bandaríska kappakstrinum í gær þegar hann kom í mark á undan Sebastian Vettel. Fernando Alonso stóð á verðlaunapallinum með þeim en þetta var í fyrsta sinn sem þessir þrír ökuþórar deildu verðlaunapallinum.

Formúla 1
Fréttamynd

Hamilton vann í Bandaríkjunum

Lewis Hamilton, ökuþór McLaren-liðsins í Formúlu 1, vann frábæran bandarískan kappakstur nú rétt í þessu. Hann ræsti annar og háði meistaralega baráttu við Sebastian Vettel um fyrsta sætið. Vettel varð annar.

Formúla 1
Fréttamynd

Massa fær fimm sæta refsingu á ráslínu

Felipe Massa, ökuþór Ferrari í Formúlu 1, fær fimm sæta refsingu á ráslínunni fyrir bandaríska kappaksturinn sem hefst nú eftir tæpan klukkutíma. Alonso færist því úr áttunda sæti í það sjöunda og yfir á hreinni hluta brautarinnar.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel á ráspól í sínum hundraðasta kappakstri

Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull ræsir fremstur í bandaríska kappakstrinum á morgun. Hann átti besta tíma í öllum tímatökulotunum. Lewis Hamilton ræsir annar. Fernando Alonso, helsti keppinautur Vettel, ræsir aðeins áttundi.

Formúla 1
Fréttamynd

Blaðamannafundur Formúlunnar í beinni á Vísi

Vísir mun sýna beint frá blaðamannafundi Formúlu 1 kappakstursins sem hefst nú klukkan 19.00. Það er því miður ekki hægt að sýna frá honum á Stöð 2 Sport en Formúluaðdáendur geta séð hann á Vísi í staðinn.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel fljótastur á fyrsta degi í Bandaríkjunum

Heimsmeistarinn Sebastian Vettel var fljótastur á fyrstu æfingum um nýju kappakstursbrautina í Bandaríkjunum í dag. Hann setti besta tímann á síðustu ferð sinni yfir rásmarkið, heilli sekúndu á eftir Lewis Hamilton á McLaren.

Formúla 1
Fréttamynd

Villeneuve: Vettel er enn barn

Sebastian Vettel á enn eftir að þroskast sem Formúla 1 bílstjóri, ef eitthvað er að marka orð Jacques Villeneuve, fyrrum heimsmeistara í Formúlu 1. Villeneuve segir Vettel hegða sér eins og barn.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel segir Alonso eiga titilinn jafn mikið skilið

Heimsmeistarinn Sebastian Vettel, sem ekur fyrir Red Bull í Formúlu 1, segir keppinaut sinn, Fernando Alonso hjá Ferrari, eiga titilinn jafn mikið skilið og hann sjálfur. Báðir hafa ekið frábærlega í ár þó segja megi að Alonso hafi sýnt meiri áræðni.

Formúla 1
Fréttamynd

McLaren: Áhætta að ráða Perez

Martin Whitmarsh, liðsstjóri McLaren-liðsins í Formúlu 1, viðurkennir að í því felist áhætta að ráða hinn unga Sergio Perez til að aka öðrum McLaren-bílnum á næsta ári í stað Lewis Hamilton.

Formúla 1
Fréttamynd

Newey óhræddur um borð í eigin bílum

Adrian Newey, aðalhönnuður Red Bull-liðsins, ók sínum frægu kappakstursbílum í fyrsta sinn á dögunum undir dyggri handleiðslu David Coulthard, sem á sínum tíma ók fyrir Williams, McLaren og Red Bull í Formúlu 1.

Formúla 1
Fréttamynd

Raikkönen þarf frelsi til að blómstra

Kimi Raikkönen þarf að hafa svigrúm til að einbeita sér að akstrinum, segir Eric Boullier, liðstjóri Lotus-liðsins í Formúlu1. Með því að skapa það umhverfi umhverfis Finnan fljúgandi vann Lotus-Renault sinn fyrsta sigur í Formúlu 1.

Formúla 1
Fréttamynd

Alonso minnkaði forskot Vettels í tíu stig

Lotus-ökuþórinn Kimi Raikkönen vann kappaksturinn í Abu Dhabi í dag. Þetta er fyrsti sigur Raikkönen síðan hann snéri aftur í Formúlu 1 í ár. Vettel ræsti af viðgerðarsvæðinu en endaði þriðji.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel refsað og ræsir aftastur

Sebastian Vettel hefur verið færður á aftasta rástað fyrir Formúlu 1-kappaksturinn í Abu Dhabi á morgun. Vettel þurfti að stöðva bilinn áður en hann komst til baka inn á viðgerðarsvæðið.

Formúla 1
Fréttamynd

Mótið í Abu Dhabi lykillinn að titlinum

Kappaksturinn í Abu Dhabi um helgina er mjög mikilvægur fyrir framvindu heimsmeistaratitilbaráttunnar í ár. Sebastian Vettel, ökuþór Red Bull-liðsins, hefur þrettán stiga forystu á Fernando Alonso, ökuþór Ferrari-liðsins, þegar þrjú mót eru eftir af tímabilinu.

Formúla 1
Fréttamynd

Hamilton og Vettel fljótastir í Abu Dhabi

Breski ökuþórinn Lewis Hamilton sem ekur McLaren-bíl í Formúlu 1 ók hraðast um kappakstursbrautina í Abu Dhabi á fyrstu æfingum keppnisliða þar í morgun. Kappaksturinn fer fram á sunnudag.

Formúla 1
Fréttamynd

Hulkenberg ekur fyrir Sauber 2013

Þýski ökuþórinn Nico Hulkenberg mun aka Sauber-bíl á næsta ári. Þetta staðfesti liðið í gær en þjóðverjinn hefur verið orðaður við Sauber síðan Sergio Perez tilkynnti að hann væri á förum.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel vann í fjórða sinn í röð

Heimsmeistarinn ungi, Sebastian Vettel, sem ekur fyrir Red Bull í Formúlu 1 leiddi indverska kappaksturinn af ráspól og til enda í dag. Hann hefur nú 13 stiga forskot á Fernando Alonso um heimsmeistaratitilinn.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel og Webber ræsa fremstir í Indlandi

Heimsmeistarinn Sebastian Vettel ræsir indverska kappaksturinn af ráspól í Red Bull-bílnum sínum, við hliðina á liðsfélaga sínum Mark Webber. McLaren bílarnir voru mun nær Red Bull en væntingar stóðu til.

Formúla 1
Fréttamynd

Red Bull verður að nota gallaðan rafal

Renault-vélaframleiðandinn í Formúlu 1 bar Red Bull, Lotus, Williams og Caterham-liðunum leiðinleg tíðindi á dögunum því liðin þurfa að nota gallaðan rafal í síðustu tveimur mótum ársins í Bandaríkjunum og í Brasilíu.

Formúla 1
Fréttamynd

Mótinu í New York frestað um ár

Það verður ekki keppt í New Jersey á næsta ári eins og ráðgert var. Bernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, og Leo Hindery mótshaldari hafa staðfest þetta en undirbúningur vestra er á eftir áætlun.

Formúla 1
Fréttamynd

Ferrari blæs til sóknar í Indlandi

Það fer að koma síðasti séns fyrir Ferrari og Fernando Alonso að gera almennilega atlögu að heimsmeistaratitlinum. Sebastian Vettel og Red Bull-liðið hans eru í gríðargóðu formi.

Formúla 1