Forsetaskjall í bland við kynhlutlaust mál Á óvart kemur hvað viðhorfspistlar, lesendabréf, skoðanapistlar eða hvaða orð sem við gefum þessu fyrirbæri halda sínu og vel það. Ef við skoðum hvaða pistlar voru þeir mest lesnir á árinu má sjá hvað það var sem fólki lá helst á hjarta og þar kemur á daginn að forsetakandídatarnir voru mönnum ofarlega í huga. Lífið 16.12.2024 12:55
Myndir ársins: Miskunnarleysi hrauneðjunnar og sigurvíma frambjóðandans Sumum atburðum er erfitt, og jafnvel ómögulegt, að lýsa með orðum. Þess vegna eru ljósmyndir nauðsynlegur þáttur í fréttaflutningi vef- og prentmiðla. Ein mynd, römmuð inn af reyndu auga og tekin á hárréttu augnabliki, getur vakið tilfinningar sem erfitt væri að koma til skila til lesandans með öðrum hætti. Innlent 15.12.2024 11:00
Ekki ónæm fyrir oft ósanngjarnri gagnrýni Katrín Jakobsdóttir varð einn vinsælasti ef ekki vinsælasti stjórnmálamaður landsins samkvæmt könnunum fljótlega eftir að hún tók við mennta- og menningarmálaráðuneytinu í ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna að loknu efnahagshruninu árið 2009. Þær vinsældir héldu áfram eftir að hún varð forsætisráðherra við myndun ríkisstjórnar Vinstri grænna með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki þótt fylgi stjórnarinnar fjaraði hratt út á seinna kjörtímabili ríkisstjórnar hennar eftir kosningarnar 2021. Innlent 14.12.2024 08:02
Helgi í Góu og fyrrverandi borguðu brúsann Fyrirtæki í eigu Helga Vilhjálmssonar, Helga í Góu, styrktu forsetaframboð Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur, um fjögur hundruð þúsund krónur. Framboðið kostaði um 774 þúsund krónur. Innlent 12. september 2024 13:45
Framboð Höllu Hrundar kostaði rúmar 27 milljónir króna Forsetaframboð Höllu Hrundar Logadóttur kostaði 27,4 milljónir króna en það skilaði rúmlega 82 þúsund króna afgangi. Halla Hrund lagði framboðinu til hátt í tvær milljónir króna af eigin fé. Innlent 10. september 2024 10:54
Arnar setti yfir tíu milljónir króna í eigið framboð Arnar Þór Jónsson varði 25,6 milljónum króna í framboð sitt til forseta Íslands. Það er svipuð upphæð og Halla Tómasdóttir varði í sitt framboð. Arnar Þór setti rúmar tíu milljónir í frambðið úr eigin sjóðum. Innlent 6. september 2024 16:20
Tæplega átján milljónir fyrir 275 atkvæði Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, varði tæplega átján milljónum króna í framboð sitt til embættis forseta Íslands. Þetta kemur fram í uppgjöri sem Helga skilaði til Ríkisendurskoðunar. Innlent 6. september 2024 13:53
Kom út í plús eftir framboðið Kostnaður við framboð Jón Gnarrs til forseta nam 10.645.424 krónum en heildartekjur framboðsins voru 10.664.091 krónur og stóð framboðið því undir sér. Félagið Jón Gnarr sem var stofnað í apríl til að halda utan um framboðið kom því út í 18.667 króna plús. Innlent 6. september 2024 10:58
Framboð Katrínar mun dýrara en Höllu Katrín Jakobsdóttir varði rúmlega 57 milljónum króna í forsetaframboð sitt. Það er rúmlega tvöfalt það sem Halla Tómasdóttir eyddi í framboð sitt. Kaupfélag Skagfirðinga var á meðal fjölmargra styrktaraðila Katrínar. Innlent 6. september 2024 10:36
Átta milljónir úr eigin vasa Ástþór Magnússon fjármagnaði framboð sitt til forseta Íslands að langstærstum hluta úr eigin vasa. Framboðið kostaði 8,9 milljónir króna og greiddi Ástþór 7,8 milljónir úr eigin vasa. Innlent 6. september 2024 10:17
Framboð Höllu kostaði 26 milljónir Halla Tómasdóttir varði 26 milljónum króna í framboð sitt til forseta Íslands. Þetta kemur fram í skýrslu hennar til Ríkisendurskoðunar. Innlent 6. september 2024 10:07
Þénuðu hvorki né eyddu meiru en 550 þúsund Eiríkur Ingi Jóhannsson og Viktor Traustason, sem báðir gáfu kost á sér til embættis forseta Íslands, eyddu hvorki né þénuðu meiru en 550 þúsund krónum í tengslum við framboð sín. Þeir hafa báðir skilað inn yfirlýsingu þess efnis til Ríkisendurskoðunar. Innlent 3. september 2024 14:47
Ekkert uppgjör frá tveimur framboðum og Halla og Katrín síðastar að skila Allir nema tveir frambjóðendur til embættis forseta Íslands hafa skilað til Ríkisendurskoðunar fjárhagslegu uppgjöri vegna framboðs til embættisins. Frestur til að skila inn uppgjöri rann út í gær þegar þrír mánuðir voru liðnir frá forsetakosningum. Innlent 3. september 2024 10:35
„Ég gaf ykkur mitt besta“ „Ég gerði mörg mistök á ferli mínum en ég gaf ykkur mitt besta,“ sagði Joe Biden Bandaríkjaforseti þegar hann steig á svið á landsþingi Demókrataflokksins í gærkvöldi. Erlent 20. ágúst 2024 07:05
Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Framboðsteymi Katrínar Jakobsdóttur er á lokametrunum við að gera upp framboð hennar til forseta, og hefur leitað til stuðningsmanna til að loka gatinu. Innlent 15. ágúst 2024 21:50
Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins Halla Tómasdóttir tók við embætti forseta Íslands við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu í dag. Dagskráin hófst með helgistund í Dómkirkjunni klukkan 15:30 en embættistakan var í beinu streymi á Vísi frá klukkan 15:00. Innlent 1. ágúst 2024 14:16
Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins Halla Tómasdóttir verður sett í embætti sem sjöundi forseti Íslenska lýðveldisins í dag, önnur kvenna til að gegna embættinu. Í fyrsta sinn í lýðveldissögunni verða þrír fyrrverandi forsetar viðstaddir athöfnina. Innlent 1. ágúst 2024 12:31
Guðni lítillátur þegar hann sagði að allt myndi bjargast án hans Í dag fór fram síðasti ríkisráðsfundur Guðna Th. Jóhannessonar í embætti forseta Íslands. Forsætisráðherra segir skilaboð forsetans fráfarandi á fundinum þau að ríkisstjórnin komi til með að spjara sig án hans, lítillát skilaboð sem hann segir endurspegla karakter Guðna vel. Innlent 31. júlí 2024 21:34
Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar gerir athugasemdir við frétt Vísir og auglýsingu Ástþórs Magnússonar hjá Islandus Bílum og fyrrverandi forsetaframbjóðanda. Hann telur ýmislegt óljóst og að Ástþór sé ekki að bjóða upp á sambærilegan bíl og þann sem Halla Tómasdóttir fær. Innlent 31. júlí 2024 16:41
Von á rúmlega þrjú hundruð gestum við embættistöku Höllu Von er á rúmlega þrjú hundruð gestum við embættistöku forseta Íslands þegar Halla Tómasdóttir verður sett í embætti á morgun. Athöfnin verður með nokkuð hefðbundnu sniði, en þó með nokkrum undantekningum. Vegna öryggiskrafna Alþingis komast færri fyrir í þinghúsinu, og því munu sérstakir gestir Höllu fylgjast með úr nýbyggingu þinghússins, Smiðju. Innlent 31. júlí 2024 12:31
Halla verði að upplýsa um bílakaupin Sérfræðingar í siðfræði og almannatengslum segja nauðsynlegt fyrir traust og gagnsæi að tilvonandi forsetahjón upplýsi um hvaða afslátt þau fengu þegar þau keypu nýjan bíl hjá Brimborg. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir fréttastofu hafa svör ekki borist um það. Innlent 27. júlí 2024 21:30
Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Hvorki Halla Tómadóttir né forstjóri Brimborgar hafa gefið upp hversu mikinn afslátt tilvonandi forsetahjón fengu þegar þau keyptu bíl af umboðinu. Sölumaður umboðsins kallar hins vegar afsláttinn skyldmennakjör. Sérfræðingur í siðfræði segir mikilvægt að fullkomið gagnsæi ríki í málinu. Greiði fyrir greiða sé ekki við hæfi hjá tilvonandi forseta Íslands. Innlent 27. júlí 2024 12:22
Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar, biðst velvirðingar fyrir hönd Brimborgar á myndbirtingu frá afhendingu bílsins, sem verðandi forsetahjónin festu kaup á á dögunum. Hann segir að misskilningur hafi orðið um að heimild til myndatöku gilti sem heimild til birtingar. Það sé ekki óalgengt að myndir frá afhendingu nýrra bíla séu birtar með þessum hætti. Innlent 27. júlí 2024 08:03
Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Stjórnsýslufræðingur segir bílamál Höllu Tómasdóttur vera óheppilegt og mjög klaufalegt fyrir verðandi forseta. Lykilmáli skipti að hjónin hafi ekki fengið nýjan Volvo-rafbíl á betri kjörum en almenningi býðst. Innlent 26. júlí 2024 20:36