„Líður eins og ég hafi svikið þjóð mína“ Manuel Akanji, miðvörður Sviss og Manchester City, var skiljanlega miður sín eftir að hafa verið sá eini sem ekki náði að skora í vítaspyrnukeppni Sviss og Englands í 8-liða úrslitum EM í fótbolta í kvöld. Fótbolti 6. júlí 2024 20:38
Fyrsta mark Bryndísar skipti sköpum Landsliðsframherjinn Bryndís Arna Níelsdóttir skoraði sitt fyrsta mark sem atvinnumaður í fótbolta í dag þegar hún skoraði dýrmætt mark fyrir Växjö í sænsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 6. júlí 2024 19:15
FHL jók forskotið og dýrmætur sigur Þróttar Leikið var í Lengjudeildum karla og kvenna í dag og eru Austfirðingar í góðum málum í Lengjudeild kvenna þegar mótið er rúmlega hálfnað, með sex stiga forskot á toppnum. ÍBV færðist nær toppi Lengjudeildar karla og Þróttur vann dýrmætan sigur í botnbaráttunni. Íslenski boltinn 6. júlí 2024 19:02
Hollendingar lentu undir en mæta Englandi Þrátt fyrir að lenda undir gegn Tyrkjum tókst Hollendingum að tryggja sér fjórða og síðasta sætið í undanúrslitum EM karla í fótbolta, með 2-1 sigri í slag þjóðanna í Berlín í kvöld. Fótbolti 6. júlí 2024 18:30
„Ég hef aldrei skammast mín jafn mikið“ „Ég hef aldrei skammast mín jafn mikið, held ég, tengt fótbolta,“ sagði Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, eftir 8-0 tap upp á Skaga gegn heimamönnum í Bestu deildinni í fótbolta í dag. Íslenski boltinn 6. júlí 2024 17:15
Viktor með fernu: „Eitthvað sem ég vissi alltaf að byggi í mér“ „Maður er bara hálfdofinn. Auðvitað er maður glaður, en þetta er bara ótrúlegt, maður bjóst ekki við þessu,“ sagði Viktor Jónsson eftir leik ÍA og HK upp á Skaga þar sem Viktor skoraði fjögur af átta mörkum heimamanna í 8-0 sigri í 13. umferð Bestu deildar karla. Íslenski boltinn 6. júlí 2024 17:06
Fyrsta mark Eggerts eftir mínútu á vellinum Eggert Aron Guðmundsson skoraði með afar laglegum hætti sitt fyrsta mark í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Lið hans Elfsborg vann þá 3-0 sigur á Brommapojkarna. Fótbolti 6. júlí 2024 16:57
Pálmi Rafn: Á von á því að Ægir Jarl sé á förum KR gerði 1-1 jafntefli gegn Stjörnunni á heimavelli. Pálmi Rafn Pálmason, þjálfari KR, var ósáttur með stigið og greindi frá því að Ægir Jarl Jónsson væri að öllum líkindum á förum frá liðinu. Sport 6. júlí 2024 16:38
Uppgjör og viðtöl: Valur-Fylkir 4-0 | Valsmenn ekki í vandræðum með botnliðið Valsmenn voru ekki vandræðum með botnlið Fylkis í leik liðanna í kvöld en lokatölur voru 4-0. Gylfi Þór skoraði eitt sem og Adam Ægir en Patrick Pedersen skoraði tvíveigis. Íslenski boltinn 6. júlí 2024 16:15
Uppgjörið: Vestri-Breiðablik 2-2 | Fyrsta stig Vestra á Ísafirði en eru Blikar að missa af lestinni? Vestri og Breiðablik gerðu 2-2 jafntefli á Kerecis-vellinum á Ísafirði í dag. Það dugar Blikum skammt í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn en stigið var það fyrsta sem Vestri fær á nýja heimavellinum sínum. Íslenski boltinn 6. júlí 2024 16:00
Uppgjörið og viðtöl: KR-Stjarnan 1-1 | Axel Óskar tryggði heimamönnum stig KR og Stjarnan gerðu 1-1 jafntefli og KR er án sigurs í síðustu sex leikjum. Allt benti til þess að Stjarnan myndi vinna 0-1 en Axel Óskar Andrésson jafnaði í uppbótartíma. Íslenski boltinn 6. júlí 2024 15:55
Uppgjörið: ÍA-HK 8-0 | HK-ingar hnepptir í þrældóm á Írskum dögum Það má með sanni segja að ÍA hafi boðið upp á flugeldasýningu þegar liðið mætti HK í 13. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Íslenski boltinn 6. júlí 2024 15:50
Öll vítin inn og England í undanúrslit Englendingar nýttu öll fimm víti sín og komust þannig í undanúrslit EM í fótbolta eftir sigur á Sviss í vítaspyrnukeppni. Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma en fyrsta víti Sviss í vítakeppninni fór í súginn. Fótbolti 6. júlí 2024 15:30
Uppgjörið: Tindastóll-Stjarnan 0-0 | Víti í súginn og markalaust í Skagafirði Tindastóll og Stjarnan gerðu markalaust jafntefli á Sauðárkróki í dag, í 12. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Íslenski boltinn 6. júlí 2024 15:30
Íslenskur markvörður orðaður við Frey og félaga Belgískir fjölmiðlar halda áfram að orða íslenska knattspyrnumenn við belgíska efstu deildarfélagið KV Kortrijk. Það kemur ef til vill ekki á óvart þar sem Freyr Alexandersson sótti fjölda Íslendinga til Lyngby þegar hann var þar. Fótbolti 6. júlí 2024 15:01
Jóhann Berg áfram hjá Burnley Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við enska knattspyrnufélagið Burnley. Enski boltinn 6. júlí 2024 14:18
Fyrirliðinn Morata ekki í banni í undanúrslitunum Álvaro Morata, fyrirliði Spánar, verður til taks þegar Spánn mætir Frakklandi í undanúrslitum Evrópumóts karla í knattspyrnu. Það virtist sem Morata hefði fengið gult spjald og yrði því í leikbanni en það var á misskilningi byggt. Fótbolti 6. júlí 2024 14:00
Lehmann elti kærastann til Ítalíu: „Draumur að geta verið hjá sama félagi“ Alisha Lehmann er gengin í raðir Juventus frá Aston Villa. Eltir hún kærasta sinn Douglas Luiz sem samdi við Juventus á dögunum. Þá hefur Chelsea fengið framherjann Sandy Baltimore frá París Saint-Germain. Fótbolti 6. júlí 2024 12:30
Sky biður Nottingham Forest afsökunar Sky Sports hefur beðið Nottingham Forest afsökunar á ummælum sem sparkspekingurinn Gary Neville lét falla á síðustu leiktíð. Enski boltinn 6. júlí 2024 11:30
Saka og Trippier vængbakverðir gegn Sviss Enskir fjölmiðlar telja sig hafa öruggar heimildir fyrir því að England muni spila með þrjá miðverði gegn Sviss í 8-liða úrslitum Evrópumóts karla í knattspyrnu í dag. Fótbolti 6. júlí 2024 11:00
Frakkar í undanúrslit án þess að skora mark í opnum leik Frakkland mætir Spáni í undanúrslitum Evrópumóts karla í knattspyrnu. Frakkar hafa ekki enn skorað mark í opnum leik en þeir þurftu vítaspyrnukeppni til að slá Portúgal úr leik. Fótbolti 6. júlí 2024 10:16
Kanada óvænt í undanúrslitin Kanada mun mæta ríkjandi heimsmeisturum í Argentínu í undanúrslitum Suður-Ameríkukeppninnar í knattspyrnu eftir sigur á Venesúela í vítaspyrnukeppni. Fótbolti 6. júlí 2024 09:30
Dagskráin í dag: Barist í Bestu deildunum og í tímatöku á Silverstone Leikir í Bestu deild karla og kvenna í fótbolta auk tímatökunnar í Formúlu 1 eru á meðal þess sem sjá má í beinni útsendingu á sporstöðvum Stöðvar 2 og Vodafone í dag. Sport 6. júlí 2024 07:00
Man. Utd bannað að kaupa varnarmann en leyft að spila Fjármálaráð UEFA, knattspyrnusambands Evrópu, hefur ákveðið að leyfa bæði Manchester United og Manchester City að taka þátt í Evrópukeppnum á næstu leiktíð, en bannað United að kaupa eftirsóttan varnarmann frá Nice. Enski boltinn 5. júlí 2024 23:00
Þessi ömurlega sápuópera haldi áfram þar til Ronaldo segi stopp Fótboltaspekingurinn Óskar Hrafn Þorvaldsson sparaði ekki stóru orðin í garð Cristiano Ronaldo í kvöld, í umræðum á RÚV um leik Portúgals og Frakklands á EM. Fótbolti 5. júlí 2024 22:17
Frakkar sluppu inn í undanúrslit Cristiano Ronaldo og félagar í portúgalska landsliðinu eru úr leik á EM eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Frökkum, í 8-liða úrslitum í Þýskalandi í kvöld. Fótbolti 5. júlí 2024 21:44
Hetja Spánar hermdi eftir pabba á sama stað Mikel Merino, hetja Spánar í sigrinum gegn Þýskalandi á EM í kvöld, hermdi eftir fagnaðarlátum föður síns sem skoraði á sama velli fyrir 33 árum síðan. Fótbolti 5. júlí 2024 20:50
Shaw gæti mætt Sviss en Trippier frábær í að tala Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, greindi frá því á blaðamannafundi í dag að vinstri bakvörðurinn Luke Shaw, leikmaður Manchester United, væri klár í slaginn gegn Sviss á morgun í 8-liða úrslitum EM í fótbolta. Fótbolti 5. júlí 2024 20:01
Áfram fullkomið hjá Guðrúnu Guðrún Arnardóttir stóð í miðri vörn Rosengård þegar liðið hélt hreinu og vann 3-0 útisigur á Vittsjö í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 5. júlí 2024 19:01
Óvænt hetja bjargaði Spáni frá vító Gestgjafar Evrópumótsins, Þjóðverjar, eru úr leik eftir dramatískt tap í átta liða úrslitum gegn Spáni í kvöld, 2-1, í framlengdum leik. Fótbolti 5. júlí 2024 18:46