Meistaradeildin

Meistaradeildin

Keppni hinna bestu í Evrópu.

Leikirnir




    Fréttamynd

    Carragher í sjöunda himni

    Jamie Carragher, varnarjaxlinn í Liverpool, var í sjöunda himni eftir sigur Liverpool á Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á Anfield í kvöld, en Carragher var af mörgum talinn besti maður vallarins.

    Sport
    Fréttamynd

    Riise vill stöðva Chelsea

    Norski varnarmaðurinn John Arne Riise segir sína menn í Liverpool eiga mjög góða möguleika á að stöðva Chelsea á leið sinni að þrennunni, en liðin mætast í síðari leik sínum í meistaradeildinni í kvöld.

    Sport
    Fréttamynd

    Liverpool í úrslit

    Liverpool er komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir frækinn sigur á Chelsea, 1-0, á Anfield í kvöld. Sigurinn var fyllilega verðskuldaður því þrátt fyrir að Chelsea væri mun meira með boltann í síðari hálfleik er þeir reyndu að freista þess að jafna leikinn, þá ógnuðu þeir marki Liverpool aldrei af viti.

    Sport
    Fréttamynd

    Gerrard í skýjunum

    Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, var í skýjunum eftir sigurinn gegn Chelsea í undanúrlitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

    Sport
    Fréttamynd

    Benitez segir að Chelsea muni tapa

    Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, virðist ekki ætla að vera með neina hógværð þegar kemur að leiknum við Chelsea í meistaradeild Evrópu annað kvöld.

    Sport
    Fréttamynd

    Eiður sakaður um leikaraskap

    Leikmenn enska knattspyrnuliðsins Liverpool saka Eið Smára Guðjónsen um að hafa látið sig detta viljandi til þess að Spánverjinn Xabi Alonso í liði Liverpool myndi fá gult spjald í leik Chelsea og Liverpool á miðvikudaginn. Vegna spjaldsins verður Alonso í leikbanni í seinni leik liðanna í Meistaradeild Evrópu sem fram fer á þriðjudaginn.

    Sport
    Fréttamynd

    Mourinho ánægður með sína menn

    Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var ánægður með leik sinna manna í gær þrátt fyrir markalaust jafntefli gegn Liverpool á Stamford Bridge. Mourinho segir að pressan verði á Liverpool á Anifeld, enda þurfi þeir að vinna. Chelsea dugi jafntefli ef skorað verður í leiknum.

    Sport
    Fréttamynd

    Cech ánægður með jafnteflið

    Markvörður Chelsea, Tékkinn Petr Cech, var hæst ánægður með markalausa jafnteflið gegn Liverpool í fyrri leik liðana í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi.

    Sport
    Fréttamynd

    Við getum komist komist í úrslit

    Rafael Benitez, framkvæmdastjóri Liverpool, telur lið sitt nú vera í bílstjórasætinu eftir 0-0 jafntefli gegn Chelsea í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á Stamford Bridge í kvöld. Liðin munu mætast öðru sinni á Anfield á þriðjudaginn eftir viku, með sæti í úrslitaleiknum í húfi, og Benitez telur sína menn geta náð góðum úrslitum í þeim leik.

    Sport
    Fréttamynd

    Chelsea og Liverpool skyldu jöfn

    Chelsea og Liverpool gerðu markalaust jafntefli í fyrri leik liðana í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Bæði lið fengu færi á að skora mark í kvöld en nýttu ekki tækifærin sín. Eiður Smári lék allan leikinn fyrir Chelsea og átti ágætan fyrri hálfleik, en sást ekki mikið í þeim seinni.

    Sport
    Fréttamynd

    Eiður Smári í byrjunarliðinu

    Eiður Smári er í byrjunarliði Chelsea sem tekur á móti Liverpool í fyrri leik liðana í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á Stamford Bridge í kvöld. Eiður mun spila í fremstu víglínu ásamt Didier Drogba en Damien Duff er ekki í hópnum vegna meiðsla.

    Sport
    Fréttamynd

    Jafnt í leikhléi á Stamford Bridge

    Þegar gengið er til búningsherbergja í leik Chelsea og Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu er staðan jöfn, 0-0. Bæði lið hafa fengið færi til að skora, Frank Lampard fékk dauðafæri en skaut yfir og John Arne Riise skaut beint á Cech úr úrvaldsfæri hinum megin. Þá varði Cech frábærlega skalla frá Milan Baros.

    Sport
    Fréttamynd

    Benitez segir miðjuna lykilinn

    Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir miðjumenn sína Steven Gerrard og Xabi Alonso vera lykilinn að því að sigra Chelsea í meistaradeildinni í kvöld.

    Sport
    Fréttamynd

    Egóið mitt stærra en nokkru sinni

    Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea segir að egó sitt sé stærra en nokkru sinni fyrr og hefur engar áhyggjur af viðureigninni við Liverpool í meistaradeildinni í kvöld.

    Sport
    Fréttamynd

    Eiður líklega í byrjunarliðinu

    Flest bendir til þess að Eiður Smári Guðjohnsen verði í byrjunarliði Chelsea í kvöld líkt og undanfarnar vikur og spili fremstur á miðjunni. Jose Mourinho segir lykilatriði að fara ekki á taugum þótt Chelsea vinni ekki leikinn í kvöld.

    Sport
    Fréttamynd

    Shevchenko ætlar í úrslitin

    Andriy Shevchenko, framherji AC Milan, sem skoraði fyrra mark sinna manna í gær í 2-0 sigri á PSV í undanúrslitum meistaradeildarinnar, segir Milan vera komið með gott veganesti í úrslitaleikinn.

    Sport
    Fréttamynd

    Kewell í hópnum hjá Liverpool

    Ástralski miðjuleikmaðurinn Harry Kewell hjá Liverpool hefur gefið kost á sér í leikmannahóp Liverpool, sem mætir Chelsea annað kvöld í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

    Sport
    Fréttamynd

    Ancelotti sefur ekki

    Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri AC Milan sagðist í gær ekki búast við því að sofa vel í nótt, vegna leiksins við PSV í undanúrslitum meistaradeildarinnar í kvöld og sagði að slíkt ætti eflaust eftir að henda kollega sinn hjá hollenska liðinu.

    Sport
    Fréttamynd

    Stam vill ekki vanmeta PSV

    Hollensi varnarmaðurinn Jaap Stam hjá AC Milan segist þekkja vel til fyrrum félaga sinna í PSV Eindhoven og varar liðsmenn Mílanóliðsins við vanmati á löndum sínum í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í Mílanó í kvöld.

    Sport
    Fréttamynd

    Liverpool mætir í Evrópugírnum

    Mikil eftirvænting ríkir á Englandi fyrir viðureign ensku liðanna í Meistaradeildinni í kvöld. Chelsea er af flestum talið mun sigurstranglegra liðið, ekki síst þegar horft er til þess að Lundúnaliðið hefur unnið alla þrjá leiki liðanna í vetur.

    Sport
    Fréttamynd

    PSV ætla að koma á óvart

    Gus Hiddink, þjálfari PSV Eindoven, segir sýna menn staðráðna í að koma á óvart í Meistaradeildinni í kvöld, þegar þeir sækja AC Milan heim.

    Sport
    Fréttamynd

    Liverpool-menn bjartsýnir

    Rafael Benitez og forráðamenn Liverpool virðast nær öruggir um að liðið vinni Meistaradeildina í ár, ef marka má baráttu þeirra um þessar mundir fyrir því að liðið komist í keppnina að ári ef það vinnur hana í nú, þó svo að það hafni ekki í einu af fjóru efstu sætum ensku deildarinnar.

    Sport
    Fréttamynd

    Ekki hræddir við Chelsea

    Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri AC Milan, vill að Mílanóborg hljóti uppreisn æru þegar hans menn mæta PSV Eindhoven í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld, eftir ólætin sem settu blett á leik liðsins í síðustu umferð.

    Sport
    Fréttamynd

    Uefa tilkynnir leikstaði

    Uefa tilkynnti í dag að úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu muni fara fram á The Stade de France í París á næsta ári og úrslitaleikur Uefa keppninnar í Eindhoven. Árið 2007 mun Aþena hýsa úrslitaleik Meistaradeildarinnar á meðan úrslitaleikur Uefa keppninnar sama ár mun fara fram á Hampden Park í Glasgow.

    Sport
    Fréttamynd

    Aldrei neitt gert á Ítalíu

    Roberto Mancini knattspyrnustjóri Inter Milan er hoppandi fúll út í UEFA vegna refsingar þeirrar sem félagið var úrskurðuð í gær föstudag vegna ólátanna á Meistaradeildarleiknum gegn AC Milan í vikunni. Inter var dæmt til að leika næstu 4 heimaleiki sína í Evrópukeppni fyrir luktum dyrum. "<em>Við getum og ættum að gera eitthvað en aldrei er nokkurn tímann gert á Ítalíu</em>."

    Sport
    Fréttamynd

    Inter sleppur vel

    Lið Inter Milan á Ítalíu sleppur með ótrúlega væga refsingu eftir ólætin í stuðningsmönnum liðsins í leiknum við grannaliðið AC Milan í Meistaradeildinni á dögunum.

    Sport
    Fréttamynd

    Chelsea reynslunni ríkari

    Eiður Smári Guðjohnsen segir í viðtali við enska blaðið <em>The Sun</em> í morgun að Chelsea hafi lært sína lexíu í undanúrslitum Meistaradeildarinnar fyrir ári síðan þegar Mónakó sló Chelsea út. Hann segist ekki vilja upplifa þau vonbrigði aftur.

    Sport
    Fréttamynd

    Capello: Liverpool voru frábærir

    Framkvæmdastjóri Juventus, Ítalinn Fabio Capello, viðurkenndi í gær að lið hans hefði ekki haft nein svör við varnarleik Liverpool í leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi, en leiknum lyktaði með markalausu jafntefli. Liverpool vann fyrri leikinn á Anfield 2-1 og komst því áfram í undanúrslitin.

    Sport
    Fréttamynd

    PSV hefur jafnað gegn Lyon

    Alex da Dias Costa hefur jafnað metin fyrir PSV Eindhoven gegn Lyon í Meistaradeildinni og er staðan í leik liðanna orðin 1-1. Markið kom á 66. mínútu en Sylvain Wiltord hafði komið Lypon yfir á 10. mínútu. Verði þetta úrslit leiksins þarf að framlengja hann þar sem fyrri leik liðanna lauk einnig 1-1.

    Sport
    Fréttamynd

    Liverpool sló út Juventus

    Liverpool tryggði sér í kvöld farseðilinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í fyrsta sinn með því að slá út Juventus en liðin gerðu markalaust jafntefli á Delle Alpi heimavelli Juve. Samtals vinnur Liverpool rimmuna 2-1 eftir sigur í fyrri leik liðanna fyrir viku. Leikur PSV Eindhoven og Lyon er farinn í framlengingu en honum lauk 1-1, eins og fyrri leik liðanna.

    Sport