Detroit - Cleveland í beinni í kvöld Fimmti leikur Detroit Pistons og Cleveland Cavaliers í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn á miðnætti í nótt. Staðan í einvíginu er jöfn 2-2 eftir að Cleveland lenti undir 2-0 en náði að jafna metin í heimaleikjum sínum tveimur. Það verður því mikið undir þegar liðin mætast í Detroit í kvöld. Körfubolti 31. maí 2007 18:13
San Antonio í úrslit NBA deildarinnar San Antonio tryggði sér í nótt sigur í viðureign sinni við Utah Jazz og er þar með komið í úrslit NBA deildarinnar. Leikurinn endaði 109 - 84 Spurs í vil. Tim Duncan og Tony Parker, verðandi eiginmaður Evu Longoriu, settu báðir 21 stig í leiknum. Þetta er í þriðja sinn á síðastliðnum fimm árum sem Spurs kemst í úrslit NBA. Þar mun liðið eiga við annað hvort Detroit Pistons eða Cleveland Cavaliers en staðan í þeirra viðureign er 2 - 2. Körfubolti 31. maí 2007 10:55
San Antonio í úrslit San Antonio Spurs tryggði sér í nótt sæti í lokaúrslitum NBA deildarinnar í þriðja sinn á fimm árum með því að rótbursta Utah Jazz 109-84 á heimavelli í fimmta leik liðanna. Heimamenn náðu 23 stiga forystu snemma í öðrum leikhluta og var sigur liðsins aldrei í hættu. San Antonio mætir Detroit eða Cleveland í úrslitaeinvíginu sem hefst í San Antonio þann 7. júní. Körfubolti 31. maí 2007 04:18
Williams og Fisher tæpir hjá Utah í nótt San Antonio Spurs getur tryggt sér sæti í úrslitum NBA deildarinnar í kvöld með heimasigri á Utah Jazz í fimmta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar. Leikurinn verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan eitt eftir miðnætti. Tveir af byrjunarliðsmönnum Utah eru tæpir fyrir leikinn. Körfubolti 30. maí 2007 19:10
Kobe Bryant vill fara frá LA Lakers Kobe Bryant gaf það út í viðtali við útvarpsstöð ESPN í New York að hann vildi fara frá Los Angeles Lakers. Bryant hefur ekki farið leynt með vonbrigði sín á lélegu gengi liðsins undanfarin ár og segir stjórnendur þess ekki deila metnaði sínum um að gera Lakers að stórveldi á ný. Körfubolti 30. maí 2007 17:13
Útlitið dökkt hjá Seattle Viðskiptajöfurinn Clay Bennett, eigandi Seattle Supersonics í NBA deildinni, segir útlitið dekkra en nokkru sinni varðandi framtíð félagsins í Seattle. Hann reiknar fastlega með því að liðið verði flutt til Kansas City eða Oklahoma City eftir næstu leiktíð ef ekki verði róttækar breytingar á stöðu mála. Körfubolti 30. maí 2007 16:07
Cleveland jafnar 2 - 2 Cleveland bar í nótt sigur í fjórða leik sínum við Detroit en leikurinn fór fram í Cleveland. Staðan í viðureign þeirra er því jöfn, 2 - 2. LeBron James leiddi heimaliðið í stigaskori og setti 25 stig og þar af komu tvö af vítalínunni þegar aðeins fjórar sekúndur voru eftir af leiknum. Við það bætti hann síðan 11 stoðsendingum, sjö fráköstum og þremur stolnum boltum. Körfubolti 30. maí 2007 10:27
Cleveland - Detroit í beinni í kvöld Fjórði leikur Cleveland og Detroit í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn á miðnætti í kvöld. Cleveland getur jafnað metin í 2-2 í einvíginu með sigri á heimavelli í kvöld, en það verður liðið að gera án eins af sínum bestu mönnum. Larry Hughes er meiddur á fæti og verður tæplega með gegn Detroit í kvöld - frekar en í einvígi liðanna í annar umferðinni í fyrra. Körfubolti 29. maí 2007 19:21
San Antonio í góðum málum eftir sigur í Salt Lake City San Antonio er nú aðeins einum sigri frá því að tryggja sér sæti í úrslitum NBA í þriðja sinn á fimm árum eftir sigur á Utah Jazz á útivelli í nótt 91-79. Þetta var fyrsti sigur San Antonio í Utah í úrslitakeppni og fyrsta tap Utah á heimavelli í úrslitakeppninni í vor. San Antonio leiðir nú 3-1 í einvíginu og getur klárað dæmið á heimavelli í næsta leik. Körfubolti 29. maí 2007 04:02
Deron Williams tæpur vegna magakveisu Óvíst er hvort leikstjórnandinn Deron Williams geti spilað með liði sínu Utah Jazz í nótt þegar liðið mætir San Antonio í fjórða leik liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA. Williams er með magakveisu og gat ekki æft með liðinu í dag. San Antonio hefur 2-1 forystu í einvíginu en Williams hefur verið besti leikmaður Utah með rúm 30 stig og 9 stoðsendingar að meðaltali í leik. Körfubolti 28. maí 2007 18:36
Glæsitroðsla LeBron James (myndband) LeBron James átti stórleik fyrir Cleveland í nótt þegar lið hans vann sigur á Detroit Pistons í úrslitakeppni Austurdeildarinnar. Hann átti líka tilþrif leiksins þegar hann tróð boltanum í andlitið á Rasheed Wallace. Smelltu á spila til að sjá þessi frábæru tilþrif James sem sáust í beinni á Sýn í nótt. Körfubolti 28. maí 2007 16:30
LeBron James frábær í sigri Cleveland Ungstirnið LeBron James bar Cleveland á herðum sér í nótt þegar liðið skellti Detroit 88-82 í þriðja leiknum í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA og minnkaði muninn í 2-1 í einvíginu. James skoraði 32 stig, hirti 9 fráköst og gaf 9 stoðsendingar og var allt í öllu í þessum bráðnauðsynlega sigri heimamanna. Körfubolti 28. maí 2007 05:37
Kobe Bryant: Náið í West eða ég er farinn Kobe Bryant gaf út sterka yfirlýsingu í samtali við ESPN sjónvarpsstöðina í gær þegar hann var spurður út í framtíð sína með liði LA Lakers. Vitað var að Bryant var orðinn leiður á að sjá lið Lakers drattast í meðalmennsku og nú virðist sem mælirinn sé fullur hjá leikmanninum. Körfubolti 28. maí 2007 05:26
Cleveland - Detroit í beinni í kvöld Þriðji leikur Cleveland Cavaliers og Detroit Pistons í úrslitarimmu Austurdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan hálf eitt í nótt. Detroit hefur 2-0 yfir í einvíginu eftir nauma sigra í tveimur fyrstu leikjunum á heimavelli þar sem lokatölur urðu 79-76 í báðum leikjum. Þar hafði Cleveland bullandi tækifæri til að stela sigrinum í bæði skipti og því verður forvitnilegt að sjá hvernig liðinu tekst til á heimavelli í næstu tveimur leikjum. Körfubolti 27. maí 2007 17:47
Utah sneri við dæminu á heimavelli Utah Jazz vann í nótt nokkuð öruggan 109-83 sigur á San Antonio í þriðja leik liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA og minnkaði muninn í einvíginu í 2-1. Sem fyrr voru það Deron Williams og Carlos Boozer sem fóru fyrir liði heimamanna, en þeir fengu meiri hjálp frá félögum sínum en áður í nótt. San Antonio leiddi með fjórum stigum í hálfleik, en Utah kafsigldi andstæðinga sína í þeim síðari. Körfubolti 27. maí 2007 03:52
Utah - San Antonio í beinni í nótt Þriðji leikur Utah Jazz og San Antonio Spurs í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan hálf eitt í nótt. Þetta er fyrsti leikur liðanna í Salt Lake City eftir að San Antonio vann fyrstu tvo leikina með afgerandi hætti á heimavelli sínum. Körfubolti 26. maí 2007 15:04
Rashard Lewis á lausu í sumar Framherjinn Rashard Lewis hjá Seattle Supersonics hefur ákveðið að nýta ákvæði í samningi sínum við félagið sem gerir honum kleift að vera laus allra mála í sumar. Lewis verður fyrir vikið af 25 milljónum dollara í laun fyrir síðustu tvö árin af samningi sínum, en er nokkuð öruggur með að fá góða launahækkun hjá nýju liði í sumar þar sem hann verður væntanlega eftirsóttasti samningslausi leikmaðurinn á markaðnum. Körfubolti 26. maí 2007 14:41
Groundhog Day í Detroit Detroit Pistons og Cleveland Cavaliers áttust við í annað sinn í nótt. Þó var engu líkara en að leikurinn væri endursýning á fyrsta leik liðanna því hann spilaðist nær eins og lokutölur urðu þær sömu, 79 - 76. Körfubolti 25. maí 2007 09:56
Annar leikur Detroit og Cleveland í beinni í kvöld Annar leikur Detroit Pistons og Cleveland Cavaliers í úrslitum Austurdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á Sýn á miðnætti í kvöld. Detroit vann mjög nauman sigur í fyrsta leiknum og Cleveland mun í kvöld freista þess að stela heimavallarréttinum með sigri. Næstu tveir leikir fara fram í Cleveland og verða einnig sýndir beint á Sýn. Á laugardagskvöldið verður svo sýnt beint frá þriðja leik Utah og San Antonio. Körfubolti 24. maí 2007 19:07
Sannfærandi sigur hjá San Antonio San Antonio Spurs er komið í bílstjórasætið í einvígi sínu við Utah Jazz í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA eftir öruggan 105-96 sigur í öðrum leik liðanna í nótt. San Antonio leiðir því einvígið 2-0 en næstu tveir leikir fara fram í Salt Lake City. Annar leikurinn þróaðist mjög líkt og sá fyrsti þar sem heimamenn lögðu grunninn að sigri með frábærum öðrum leikhluta. Körfubolti 23. maí 2007 05:20
Portland datt í lukkupottinn NBA-lið Portland Trailblazers datt heldur betur í lukkupottinn í nótt þegar dregið var í lotteríinu fyrir nýliðavalið í sumar. Portland fékk fyrsta valréttinn þrátt fyrir að eiga aðeins 5% líkur á að landa fyrsta valrétti og Seattle fékk annan valréttinn þrátt fyrir að eiga einnig fáar kúlur í lottóvélinni þegar dregið var. Sögufrægt lið Boston þarf að gera sér að góðu fimmta valrétt þrátt fyrir að eiga næstum 50% líkur á að landa einu af tveimur fyrstu valréttunum vegna lélegs árangurs liðsins í deildinni í vetur. Körfubolti 23. maí 2007 05:05
Ancelotti: Gerrard bullar Carlo Ancelotti, þjálfari Milan, segir Steven Gerrard hafa verið að bulla þegar hann sagði að Milan hafi byrjað að fagna sigri í Meistaradeildinni í hálfleik úrslitaleiks liðanna árið 2005. Hann segir jafnframt að tapið þá eftir að hafa verið 3-0 yfir séu ekki stærstu mistök sín á ferlinum og bendir á annað áhugavert atriði í því sambandi. Fótbolti 22. maí 2007 20:30
San Antonio - Utah í beinni á Sýn í nótt Nú fer að draga til tíðinda í úrslitakeppni NBA deildarinnar þar sem fjögur lið eru eftir í baráttunni um titilinn. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá öllum leikjum næstu vikuna og hátíðin hefst með öðrum leik San Antonio og Utah klukkan 1 í nótt. Körfubolti 22. maí 2007 15:58
Adelman að taka við Houston? Fjölmiðlar í Houston eru á einu máli um að Rick Adelman verði tilkynntur sem þjálfari Houston Rockets á morgun. Félagið rak Jeff Van Gundy á föstudaginn og segir Houston Chronicle að Adelman hafi þegar verið búinn að ræða við forráðamenn félagsins áður en það gerðist. Adelman er með hæsta vinningshlutfall allra þjálfara í NBA sem aldrei hafa unnið meistaratitil eða 61%. Hann þjálfaði síðast Sacramento Kings á árunum 1998 til 2006 og fór tvisvar með Portland í úrslit á tíunda áratugnum. Körfubolti 22. maí 2007 14:25
Detroit sigraði í fyrsta leik úrslita í austurdeildinni Detroit Pistons unnu nauman sigur á Cleveland Cavaliers í fyrsta leik liðanna í úrslitum austurdeildar í NBA-körfuboltanum. Lokatölur urður 79-76. Körfubolti 22. maí 2007 10:17
San Antonio vann fyrsta leikinn San Antonio vann fyrsta leikinn gegn Utah í úrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í nótt, 108-100. Tim Duncan gegndi lykilhlutverki í sigri San Antonio, en fjölmiðlar vestra segja hann sjaldan eða aldrei hafa spilað betur á sínum ferli. Körfubolti 21. maí 2007 09:07
NBA: Undanúrslitin hefjast í nótt Úrslitin í Vesturdeild NBA-deildarinnar hefjast í kvöld þegar San Antonio fær Utah í heimsókn. Sigurvegarinn í rimmu liðanna fer í úrslit deildarinnar þar sem mótherjarnir verða annaðhvort Cleveland eða Detroit. Utah hefur ekki unnið í San Antonio síðan árið 1999 en í leikjum liðanna á núverandi leiktíð skiptu þau sigrunum á milli sín. Körfubolti 20. maí 2007 17:00
Wade á batavegi eftir tvær aðgerðir Dwayne Wade, leikmaður Miami Heat í NBA-deildinni, er á góðum batavegi eftir að hafa gengist undir tvær aðgerðir í vikunni, annars vegar á öxl og hins vegar á hné. Wade segist líða vel, bæði líkamlega og andlega, og stefnir á að verða klár í slaginn þegar næsta tímabil í NBA hefst. Körfubolti 19. maí 2007 17:05
Van Gundy rekinn frá Houston Jeff Van Gundy var í gær rekinn úr starfi sínu sem þjálfari Houston Rockets í NBA-deildinni, en lærisveinar hans féllu úr keppni í fyrstu umferð úrslitakeppninnar fyrr í þessum mánuði. Svo slakur árangur var með öllu óviðunandi að mati forráðamanna liðsins, en í liðinu er að finna stjörnuleikmenn á borð við Yao Ming og Tracy McGrady. Körfubolti 19. maí 2007 17:00
San Antonio og Cleveland komin áfram San Antonio og Cleveland tryggðu sér í nótt sæti í undanúrslitum NBA-deildarinnar, en San Antonio lagði Phoenix á heimavelli, 114-106, en Cleveland vann New Jersey, 88-72. San Antonio mætir Utah í úrslitum Vesturdeildar en Cleveland tekur á móti Detroit í úrslitum Austurdeildarinnar. Körfubolti 19. maí 2007 11:41