Kristic með slitin krossbönd Lið New Jersey Nets í NBA-deildinni hefur orðið fyrir miklu áfalli því einn þeirra besti leikmaður, Nenad Kristic, er með slitin krossbönd og mun ekki spila meira með á þessu tímabili. Hinn 23 ára gamli Serbi hefur skorað rúm 16 stig og tekið sjö fráköst á tímabilinu. Körfubolti 25. desember 2006 16:30
Houston - Við erum í vanda Miðherjinn Yao Ming hjá Houston Rockets í NBA deildinni leikur ekki með liðinu næstu sex vikurnar hið minnsta eftir að risinn meiddist á hné í tapleik liðsins gegn LA Clippers í nótt og því er útlit fyrir að liðið verði enn og aftur að finna leið til að sigra án ofurstjarna sinna, Ming og Tracy McGrady. Körfubolti 24. desember 2006 13:52
Mikið áfall fyrir Seattle Rashard Lewis, framherji og lykilmaður Seattle í NBA-deildinni í körfubolta, verður frá í að minnsta kosti tvo mánuði eftir að hafa gengist undir aðgerð á hendi á föstudag. Körfubolti 23. desember 2006 21:00
Tap hjá Iverson í fyrsta leik 22 stig og tíu stoðsendingar frá Allen Iverson dugðu ekki fyrir Denver í nótt þegar liðið beið í lægri hlut fyrir Sacramento í NBA-deildinni, 101-96. Þetta var fyrsti leikur Iverson fyrir sitt nýja lið. 15 leikja sigurhrinu Pheonix lauk ennfremur í nótt. Körfubolti 23. desember 2006 13:15
Anthony ætlar ekki að áfrýja Framherjinn Carmelo Anthony hjá Denver Nuggets hefur ákveðið að áfrýja ekki 15 leikja banninu sem hann var settur í á dögunum eftir slagsmálin sem urðu í leik New York og Denver um síðustu helgi. Anthony gaf þá skýringu að hann vildi ekki gera meira úr þessu leiðinlega máli og taki því refsingu sinni þegjandi. Körfubolti 21. desember 2006 18:40
Iverson fór ekki fram á að fara frá Philadelphia Allen Iverson segist ekki hafa farið fram á það að vera skipt frá Philadelphia 76ers á frægum fundi sem hann átti með framkvæmdastjóra félagsins fyrir röskum hálfum mánuði. Þetta sagði Iverson í fyrsta viðtalinu sem hann veitti eftir að ljóst varð að hann gengi til liðs við Denver Nuggets. Körfubolti 21. desember 2006 15:21
Mikil dramatík í NBA í nótt Tólf leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og spennan gríðarleg á nokkrum vígstöðvum. New York vann annan leikinn í röð um leið og lokaflautið gall og veðurguðirnir virðast vilja sjá Allen Iverson spila með Denver, því leik liðsins gegn Phoenix í gær var frestað vegna snjóstorms og því verður Iverson orðinn löglegur með liðinu þegar það mætir Phoenix. Körfubolti 21. desember 2006 12:04
San Antonio - Memphis í beinni í nótt Leikur San Antonio Spurs og Memphis Grizzlies verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan eitt eftir miðnætti í nótt. Staða þessara liða í deildinni er bókstaflega andstæð því San Antonio er á toppi deildarinnar með 19 sigra og 6 töp, en Memphis hefur aðeins unnið 6 leiki og tapað 19. Körfubolti 20. desember 2006 19:26
Félagsmet hjá Phoenix Phoenix Suns vann í nótt 15. leikinn í röð í NBA deildinni þegar liðið vann auðveldan sigur á Toronto Raptors á heimavelli sínum 115-98. Chicago Bulls tók á móti LA Lakers og vann 94-89. Körfubolti 20. desember 2006 13:01
Chicago - LA Lakers í beinni í nótt Leikur Chicago Bulls og LA Lakers verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan 1:30 í nótt. Þetta verður væntanlega hörkuleikur milli þessara gömlu stórliða, en bæði lið hafa verið á ágætu róli undanfarið. Körfubolti 19. desember 2006 21:29
Allen Iverson fer til Denver Skorarinn Allen Iverson sem leikið hefur með Philadelphia 76ers síðasta áratug er á leið til Denver Nuggets í skiptum fyrir Andre Miller, Joe Smith og valrétti Denver liðsins í nýliðavalinu á næsta ári. Skiptin hafa ekki verið staðfest formlega en líklega verður gengið frá lausum endum síðar í kvöld. Körfubolti 19. desember 2006 20:56
New York lagði Utah á flautukörfu Fámennt lið New York gerði sér lítið fyrir og lagði Utah Jazz í framlengdum leik á NBA TV í nótt þar sem Stephon Marbury tryggði New York 97-96 sigur með sniðskoti um leið og leiktíminn leið. Utah hafði feikna yfirburði í upphafi leiks og stefndi í stórtap New York, en gestirnir spiluðu sinn versta leik á tímabilinu eftir það og heimamenn gengu á lagið og höfðu sigur. Körfubolti 19. desember 2006 13:27
New York - Utah í beinni á NBA TV í kvöld Lið New York Knicks mætir undirmannað til leiks klukkan hálf eitt í nótt þegar það tekur á móti Utah Jazz í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu. Þeir Mardy Collins, Nate Robinson og Jared Jeffries hjá New York verða allir í leikbanni í kvöld. Körfubolti 18. desember 2006 19:53
Anthony fær 15 leikja bann Framherjinn Carmelo Anthony hjá Denver Nuggets í NBA deildinni var í dag settur í 15 leikja keppnisbann fyrir að vera í aðalhlutverki í slagsmálunum sem brutust út á leik New York Knicks og Denver á laugardagskvöldið. Alls þurfa leikmennirnir sem tóku þátt í látunum að sitja af sér 47 leikja bann. Körfubolti 18. desember 2006 18:02
Gilbert Arenas skoraði 60 stig gegn Lakers Gilbert Arenas fór hamförum með liði Washington Wizards í nótt þegar liðið sigraði LA Lakers 147-141 í framlengdum leik í Staples Center í Los Angeles. Arenas skoraði 60 stig fyrir Washington og var lykilmaðurinn á bak við góðan sigur liðsins í frábærum leik sem sýndur var beint á NBA TV á Fjölvarpinu. Körfubolti 18. desember 2006 13:21
Phoenix jafnaði félagsmet Phoenix Suns vann í nótt 14. leikinn í röð í NBA deildinni í körfubolta þegar liðið skellti Sacramento 105-98 á útivelli. Á sama tíma tapaði Philadelphia 11. leiknum í röð í tapi gegn San Antonio 103-98, en eins og áður kom fram hér á vísi logaði leikur New York og Denver í slagsmálum áður en gestirnir sigruðu 123-100. Körfubolti 17. desember 2006 14:54
Madison Square Garden logaði í slagsmálum Leikur New York Knicks og Denver Nuggets í NBA deildinni í nótt breyttist úr körfuboltaleik í hnefaleikakeppni á lokamínútunum. Tíu leikmönnum var vísað úr húsi og á stigahæsti leikmaður deildarinnar Carmelo Anthony líklega yfir höfði sér langt keppnisbann fyrir lúalegt hnefahögg. Körfubolti 17. desember 2006 04:09
Miami - Memphis í beinni í kvöld Meistarar Miami Heat taka á móti Memphis Grizzlies í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni í kvöld klukkan hálf eitt. Bæði lið hafa átt mjög erfitt uppdráttar það sem af er vetri, en Dwyane Wade hjá Miami og Pau Gasol hjá Memphis snúa aftur eftir meiðsli í kvöld og því má eiga von á skemmtilegum leik. Körfubolti 16. desember 2006 20:45
13 sigrar í röð hjá Phoenix Phoenix Suns hélt áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í NBA deildinni í nótt þegar liðið lagði Golden State á heimavelli 105-101 og vann þar sinn 13. leik í röð. Amare Stoudemire skroaði 25 stig fyrir Phoenix og Boris Diaw náði fyrstu þrennu sinni í vetur með 21 stigi, 14 fráköstum og 10 stoðsendingum. Monta Ellis skoraði 24 stig fyrir Golden State. Körfubolti 16. desember 2006 13:58
Denver að landa Iverson? Þær fréttir berast nú frá Bandaríkjunum að Denver sé í þann mund að ná í gegn með leikmannaskipti sem myndu færa þeim leikstjórnandann Allen Iverson frá Philadelphia. Fimm lið eru sögð koma að skiptunum og því er haldið fram að málið verði jafnvel klárað í kvöld. Iverson er sem stendur búinn að fá flest atkvæði allra leikmanna í Austudeildinni í Stjörnuleikinn í febrúar nk. Körfubolti 15. desember 2006 17:17
Cleveland - Seattle í beinni á Sýn í kvöld Leikur Cleveland Cavaliers og Seattle Supersonics verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan hálf eitt eftir miðnætti í kvöld. Cleveland hefur unnið fjóra heimaleiki í röð og tíu af tólf alls, sem er besti árangur í Austurdeildinni. Mikil meiðsli eru í herbúðum Seattle sem hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum á keppnisferðalagi á austurströndinni. Körfubolti 15. desember 2006 16:45
Davis tryggði Golden State sigur á Houston Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Golden State lagði Houston 109-107 þar sem þriggja stiga karfa Baron Davis þegar 1,2 sekúndur voru eftir tryggði Golden State sigurinn. Davis skoraði 34 stig í leiknum en Yao Ming átti líka frábæran leik hjá Houston með 38 stigum og 18 fráköstum. Körfubolti 15. desember 2006 13:57
New Orleans - San Antonio í beinni í kvöld Það verður skemmtilegur leikur í beinni útsendingu á NBA TV á Fjölvarpinu þegar New Orleans tekur á móti San Antonio Spurs klukkan 2:30 í nótt. Þá er rétt að minna um leið á leik Cleveland Cavaliers og Seattle Supersonics sem sýndur verður beint á Sýn annað kvöld klukkan 1:30 eftir miðnætti. Körfubolti 14. desember 2006 20:28
Tólf sigrar í röð hjá Phoenix Phoenix Suns vann í nótt 12. sigurinn í röð í NBA deildinni þegar liðið vann sigur á meisturum Miami Heat á útivelli 99-89. Þetta er næst lengsta sigurhrina Phoenix í sögu félagsins og lauk það fimm leikja ferðalagi sínu um austurströndina með glæsibrag. Shaquille O´Neal og Dwyane Wade léku ekki með Miami í nótt. Körfubolti 14. desember 2006 06:04
LA Clippers - Utah í beinni í nótt Þrettán leikir eru á dagskrá í NBA deildinni í kvöld og verður leikur LA Clippers og Utah Jazz sýndur beint á NBA TV á Fjölvarpinu klukkan 3:30 í nótt. Þá bíður meistara Miami það verðuga verkefni að stöðva 11 leikja sigurgöngu Phoenix Suns og verða meistararnir án Dwyane Wade sem missir af leiknum eftir harkalega heimsókn til tannlæknis. Körfubolti 13. desember 2006 22:37
Paul Arizin látinn Bandaríska körfuboltagoðsögnin Paul Arizin sem fyrir nokkrum árum var útnefndur einn af 50 bestu leikmönnum í sögu NBA deildarinnar, lést á heimili sínu í Philadelphia gærkvöldi, 78 ára að aldri. Arizin var kosinn besti leikmaður deildarinnar árið 1952 og var einn fyrsti maðurinn til að notast við stökkskotið á sínum tíma, en það er nú undirstöðuatriði allra körfuboltaiðkenda. Körfubolti 13. desember 2006 22:17
Lakers lagði Houston LA Lakers vann góðan útisigur á Houston Rockets í NBA deildinni í nótt 102-94, en bæði lið voru án lykilmanna. Houston var án Tracy McGrady sem verður frá um óákveðinn tíma vegna bakmeiðsla, en Lamar Odom meiddist á hné hjá Lakers og verður líklega frá í um mánuð. Kobe Bryant skoraði 23 stig fyrir Lakers en Yao Ming var með 26 fyrir Houston. Körfubolti 13. desember 2006 13:57
Iverson sagði nei við Charlotte Kapphlaupið um Allen Iverson er nú komið á fullt í NBA deildinni og heimildir frá Bandaríkjunum herma að nú sé eitt félag formlega út úr myndinni í þeim efnum. Philadelphia er sagt hafa samþykkt tilboð frá Charlotte Bobcats í leikmanninn, en þangað vildi hann ekki fara og því varð ekkert af þeim viðskiptum. Körfubolti 12. desember 2006 23:30
Paul Pierce brotlenti á fæti Wayne Rooney Framherjinn Paul Pierce hjá Boston Celtics var nálægt því að komast í heimsfréttirnar í gær þegar hann kastaði sér á eftir bolta inn í áhorfendastæðin á leik New York og Boston í NBA deildinni, en þá lenti hann á ristinni á knattspyrnumanninum Wayne Rooney sem sat ásamt unnustu sinni og horfði á leikinn. Körfubolti 12. desember 2006 21:58
Sloan kominn í úrvalshóp þjálfara Jerry Sloan, þjálfari Utah Jazz í NBA deildinni, komst í gær í sannkallaðan úrvalshóp þjálfara þegar lið hans burstaði Dallas á heimavelli sínum í Salt Lake City. Þetta var þúsundasti sigurleikur Sloan á ferlinum en aðeins fjórir aðrir þjálfarar hafa náð þeim áfanga. Körfubolti 12. desember 2006 21:00
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti