NFL

NFL

Fréttir og úrslit úr bandarísku NFL ruðningsdeildinni.

Fréttamynd

Ætlaði að lemja blaðamann

Hinn skapheiti varnarmaður New Orleans Saints reyndi að hjóla í blaðamann eftir leik liðsins í NFL-deildinni í nótt.

Sport
Fréttamynd

Rauði riffillinn skaut niður Cleveland

Lið Cincinnati Bengals heldur áfram að endurskrifa sögu félagsins en í nótt vann liðið sinn áttunda leik í röð. Liðið hefur aldrei náð að vinna fyrstu átta leiki sína á tímabilinu.

Sport
Fréttamynd

Dýraverndunarsamtök brjáluð af því Bryant fékk sér apa

"Apar eiga heima í sína náttúrulega umhverfi en ekki í höndunum á ruðningsleikmönnum sem vilja líta vel út á Instagram," sagði í yfirlýsingu frá PETA sem var ekki ánægt með að NFL-leikmaðurinn Dez Bryant, leikmaður Dallas Cowboys, hefði fengið sér lítinn apa sem gæludýr.

Sport
Fréttamynd

Peyton sendi út skýr skilaboð

Hinn goðsagnakenndi leikstjórnandi Denver Broncos, Peyton Manning, svaraði mörgum spurningum í nótt og öll svörin hans á stóra prófinu gegn Green Bay voru rétt.

Sport
Fréttamynd

Brady tapar ekki á fimmtudögum

Sigurganga meistara New England Patriots í NFL-deildinni hélt áfram í nótt. Þá völtuðu meistararnir yfir Miami Dolphins, 36-7.

Sport
Fréttamynd

Ernirnir átu Risana

Það var mikill nágrannaslagur í mánudagsleik NFL-deildarinnar þar sem NY Giants sótti Philadelphia Eagles heim. Það er mikill rígur á milli þessara liða og því hvorki gefið eftir á vellinum né upp í stúku.

Sport
Fréttamynd

Skurðlæknirinn skar upp Fálkana

New Orleans Saints varð í nótt fyrsta liðið í vetur sem nær að vinna Atlanta Falcons. Lokatölur í fimmtudagsleiknum 31-21 fyrir Dýrlingana.

Sport