Afturelding kvaddi með sigri Síðustu leikirnir fóru fram í N1-deild karla í dag. Afturelding kvaddi deildina með því að leggja Stjörnumenn en Íslandsmeistarar Hauka gerðu jafntefli við HK. Handbolti 3. maí 2008 16:32
Valur lagði Fram Valsmenn tryggðu sér í kvöld þriðja sætið í N1 deild karla í handbolta þegar þeir lögðu Fram 37-32 í lokaleik sínum í deildinni. Valsmenn hlutu 36 stig í 28 leikjum en Framarar 34 í fjórða sætinu. Mótinu lýkur á morgun með þremur leikjum. Handbolti 2. maí 2008 22:03
Ingvar samdi til 2011 Ingvar Árnason hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Vals til ársins 2011 en hann hefur leikið með Val allan sinn feril. Handbolti 30. apríl 2008 14:30
Róbert tekur við Víkingi Róbert Sighvatsson mun taka við þjálfun Víkings af Reyni Þór Reynissyni á næstu dögum en liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeild karla á dögunum. Handbolti 30. apríl 2008 10:25
Ólafur Haukur framlengir Ólafur Haukur Gíslason, markvörður hjá Val, hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild félagsins og verður nú hjá félaginu til ársins 2011. Handbolti 28. apríl 2008 14:24
Jón Karl skoraði með lærinu Jón Karl Björnsson lauk ferlinum sínum sem leikmaður með því að verða Íslandsmeistari með Haukum. Hann hélt upp á það með því að skora mark úr víti með lærinu. Það er síðasta mark hans á ferlinum. Handbolti 28. apríl 2008 14:04
HK í annað sætið eftir sigur á Fram Þrír leikir fóru fram í N1 deild karla í handbolta í dag. HK er í öðru sæti deildarinnar þegar ein umferð er eftir af deildinni eftir 32-26 útisigur á Fram í dag. Handbolti 27. apríl 2008 18:19
Haukar lögðu Aftureldingu og tóku við bikarnum Íslandsmeistarar Hauka kláruðu leiktíðina í N1 deildinni með sóma í dag þegar þeir lögðu Aftureldingu 32-29. Haukarnir fengu svo Íslandsbikarinn afhentan eftir leikinn en þeir höfðu þegar tryggt sér sigur í deildinni. Handbolti 26. apríl 2008 18:01
Víkingur í úrvalsdeildina Karlalið Víkings tryggði sér í kvöld sæti í N1 deildinni í handbolta næsta vetur þegar liðið lagði ÍR 35-30 í úrslitaleik um sæti meðal þeirra bestu. Víkingar tryggðu sér annað sæti 1. deildarinnar með sigrinum og fara upp með FH-ingum. Handbolti 25. apríl 2008 21:10
Víkingur getur komist upp í kvöld Það er stórleikur í 1. deild karla í handbolta í kvöld þegar Víkingur tekur á móti ÍR. Liðin berjast um að fylgja FH upp í efstu deild en með því að ná stigi í kvöld tryggir Víkingur sér úrvalsdeildarsætið. Handbolti 25. apríl 2008 12:27
Björgvin semur við Bittenfeld Handboltamarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson í Fram hefur gert tveggja ára samning við þýska félagið Bittenfeld. Liðið leikur í suðurriðli í 2. deild þar í landi. Handbolti 22. apríl 2008 09:04
Haukar og Stjarnan unnu Haukar og Stjarnan unnu sína leiki í N1-deild kvenna í dag. Valsmenn unnu öruggan sigur á Akuryeir í lokaleik dagsins í N1-deild karla. Handbolti 19. apríl 2008 18:39
Sigrar hjá Fram og HK Fram og HK deila enn öðru sætinu í N1-deild karla eftir að hafa unnið sína leiki í deildinni í dag. Handbolti 19. apríl 2008 16:24
Jafnt í Mýrinni Stjarnan og Haukar gerðu í kvöld jafntefli 28-28 í N1 deild karla í handbolta. Staðan var jöfn 15-15 í hálfleik. Haukar hafa þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitlinn en Stjörnumenn eru í fimmta sæti deildarinnar. Handbolti 17. apríl 2008 22:32
Fram vann Stjörnuna Þrír leikir fóru fram í N1 deild karla í handbolta í kvöld en botnslag ÍBV og Aftureldingar var frestað. Bæði þessi lið eru þegar fallin. Handbolti 15. apríl 2008 22:25
Ernir Hrafn framlengir við Val Ernir Hrafn Arnarson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Vals til ársins 2011. Handbolti 15. apríl 2008 11:22
Akureyri lagði HK Einn leikur var á dagskrá í N1 deild karla í handbolta í dag. Akureyri vann þá nauman sigur á HK 26-25 eftir að hafa verið yfir 13-11 í hálfleik. Jónatan Magnússon skoraði 9 menn fyrir norðanmenn en Ólafur Ragnarsson og Ragnar Hjaltested 6 hvor fyrir HK. Handbolti 13. apríl 2008 18:56
Valsmenn lögðu Aftureldingu Tveir leikir fóru fram í N1 deild karla í handbolta í dag. Valsmenn lögðu Aftureldingu í Mosfellsbæ 23-18 og Stjarnan mátti gera sér að góðu jafntefli gegn ÍBV í Mýrinni 26-26. Handbolti 12. apríl 2008 19:07
Aron: Byggjum þetta skref fyrir skref „Það er mikil vinna á bakvið þennan titil, menn hafa lagt mikið á sig í vetur og við erum bara að uppskera eftir því núna," sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, eftir að hans lið innsiglaði Íslandsmeistaratitilinn í kvöld. Handbolti 11. apríl 2008 20:53
Haukar Íslandsmeistarar Haukar eru Íslandsmeistarar í handbolta 2008. Þeir unnu öruggan sigur á Fram á Ásvöllum í kvöld. Handbolti 11. apríl 2008 18:59
Fannar í Stjörnuna Liðin í N1-deild karla vinna greinilega hörðum höndum þessa dagana að mynda leikmannahópa sína fyrir næsta tímabil. Fannar Þorbjörnsson hefur samið við Stjörnuna og gengur til liðs við félagið í sumar. Handbolti 10. apríl 2008 18:46
Tryggvi og Hafsteinn í Hauka Tryggvi Haraldsson og Hafsteinn Ingason munu leika með Haukum í handboltanum næsta tímabil samkvæmt heimildum vefsíðunnar handbolti.is. Þeir hafa síðustu ár leikið með Ribe í Danmörku. Handbolti 10. apríl 2008 17:04
Patrekur tekur við Stjörnunni Patrekur Jóhannesson mun taka við þjálfun Stjörnunnar í sumar þegar að Kristján Halldórsson lætur af störfum. Handbolti 2. apríl 2008 15:14
Buday hættur hjá Fram Ferenc Buday hefur látið af störfum sem þjálfari Fram í DHL-deild karla en samningur hans átti að renna út í sumar. Viggó Sigurðsson mun taka við liðinu í lok tímabilsins. Handbolti 1. apríl 2008 09:40
Rúnar framlengir við Fram Rúnar Kárason, leikmaður Fram í handbolta, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2011. Handbolti 31. mars 2008 16:00
HK lagði Stjörnuna í Mýrinni HK skaust í kvöld í þriðja sæti N1 deildar karla þegar liðið vann góðan útisigur á Stjörnunni 29-25 í Mýrinni í Garðabæ. Heimir Örn Árnason skoraði 11 mörk fyrir heimamenn en Ragnar Hjaltested skoraði 6 mörk fyrir HK, sem er komið upp að hlið Fram í 2.-3. sæti deildarinnar. Handbolti 30. mars 2008 22:39
Haukar með aðra höndina á titlinum Haukar náðu í kvöld átta stiga forystu á toppi N1 deildar karla þegar þeir lögðu Valsmenn 27-23 á Ásvöllum í Hafnarfirði, en Valsmenn voru þremur mörkum yfir í hálfleik 14-11. Handbolti 30. mars 2008 18:03
ÍBV skellti Fram Mjög óvænt úrslit urðu í N1 deild karla í handbolta í dag þegar botnlið ÍBV skellti Frömurum í Safamýrinni 34-29. Framarar misstu þarna af mjög dýrmætum stigum í toppbaráttunni þar sem Haukar geta náð 8 stiga forystu með sigri á Val á morgun. Handbolti 29. mars 2008 16:56
Sverre í Digranes Sverre Jakobsson, leikmaður Gummersbach, hefur komist að samkomulagi við HK um að leika með liðinu næsta vetur jafnframt því að hann verður aðstoðarþjálfari liðsins. Þetta er samkvæmt heimildum handbolti.is. Handbolti 25. mars 2008 17:05
Haukar í vænlegri stöðu Haukar náðu í dag sex stiga forskoti á toppi N1 deildar karla í handbolta eftir góðan sigur á HK á Ásvöllum 30-25. Liðið hefur nú sex stiga forskot á Fram sem er í öðru sætinu og sjö á Íslandsmeistara Vals sem eru í þriðja sætinu. Handbolti 15. mars 2008 17:44