„Munum þétta raðirnar og hjálpast að við að fylla hennar skarð“ Ágúst Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Vals, hefur haft nóg að gera síðustu vikur en lið hans mætir Haukum í undanúrslitum bikarsins annað kvöld. Liðið verður þar án Söru Sifjar Helgadóttur sem leikur líklega ekki meira á leiktíðinni. Handbolti 14. mars 2023 19:00
Tímabilið líklega búið hjá Söru Sif Meiðsli Valsmarkvaðarins Söru Sifjar Helgadóttur eru væntanlega það alvarleg að hún verður ekki meira með á leiktíðinni. Handbolti 14. mars 2023 15:32
„Ég veit að hún Harpa mín veit þetta“ Harpa Valey Gylfadóttir var hetja Eyjakvenna í leiknum mikilvæga á móti Val á dögunum þegar hún skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok en Seinni bylgjan hefur áhyggjur af því hvað hún nýtir illa færin sín úr uppsettum sóknum. Handbolti 14. mars 2023 12:01
„Það yrði skelfilegt fyrir Val að missa hana út“ Valskonur gætu verið að missa út sinn besta markvörð eftir að Sara Sif Helgadóttir meiddist í leik liðsins á móti Stjörnunni um helgina. Handbolti 14. mars 2023 10:31
Andri Snær: Við reyndum margt en það virkaði ekkert Andri Snær Stefánsson þjálfari KA/Þór var ekki ánægður með frammistöðu síns liðs í tapinu gegn HK í Olís-deild kvenna í dag. Handbolti 11. mars 2023 19:47
Umfjöllun og viðtal: HK - KA/Þór 25-24 | HK með annan sigurinn í vetur HK vann sinn annan sigur í vetur í Olís-deild kvenna í handknattleik þegar liðið vann eins marks sigur á KA/Þór á heimavelli sínum í Kópavogi. Handbolti 11. mars 2023 18:47
Perla Ruth var verðandi liðsfélögum sínum erfið í sigri Framara Framarar unnu góðan útisigur á Selfossi í Olís-deild kvenna í handknattleik í dag. Fram minnkar því forskot Stjörnunnar sem situr í þriðja sæti en Fram er í því fjórða. Handbolti 11. mars 2023 18:01
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 30-28 | Valur hafði betur eftir spennandi lokamínútur Valskonur unnu sigur á Stjörnunni í toppbaráttuslag Olís deildarinnar í handbolta í dag. Handbolti 11. mars 2023 16:44
„Við hefðum getað klárað leikinn fyrr“ Valur vann mikilvægan sigur á Stjörnunni á heimavelli fyrr í dag í Olís deild kvenna. Þrátt fyrir að hafa haft yfirhöndina stærstan hluta leiksins var þetta þó ekki auðvelt verkefni fyrir þær. Handbolti 11. mars 2023 16:29
„Byrjuðum ekki nægilega vel“ Eyjakonur sigruðu Hauka með sjö mörkum, 30-23, í Olís-deild kvenna á Ásvöllum í kvöld. Díana Guðjónsdóttir, sem er nýtekin við aðalþjálfarastöðunni eftir að Ragnar Hermannsson lét af störfum, var svekkt með tapið en leit þó björtum augum á framhaldið. Handbolti 10. mars 2023 20:05
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - ÍBV 23-30 | Eyjakonur styrktu stöðu sína á toppnum Eyjakonur unnu öruggan sigur á Haukum á Ásvöllum í kvöld í Olís-deild kvenna. Leikurinn var jafn framan af en endaði með sjö marka sigri ÍBV, lokatölur 30-23. Handbolti 10. mars 2023 19:45
Er alltaf að þýða fyrir alla í liðinu Haukakonurnar Ragnheiður Sveinsdóttir og Margrét Einarsdóttir voru gestir Sigurlaugar Rúnarsdóttur í Kvennakastinu og ræddu þar ýmis mál. Þá má helst nefna þjálfaraskipti, úrslitakeppni og lífið á Ásvöllum. Handbolti 9. mars 2023 14:10
„Hann var mjög hissa að fá símtal frá mér“ Haukakonan Ragnheiður Sveinsdóttir var gestur í Kvennakastinu hjá Sigurlaugu Rúnarsdóttur og ræddi meðal annars þann tíma þegar hún skipti óvænt yfir í Val á miðju tímabili. Handbolti 9. mars 2023 12:00
ÍBV sagði um vinalegt klapp við mjaðmakúlu að ræða Í greinargerð ÍBV vegna máls Sigurðar Bragasonar, þjálfara kvennaliðs félagsins í handbolta, sem sakaður var um að slá kvenkyns starfsmann Vals tvívegis í rassinn, segir að Sigurður hafi í raun klappað með vinalegum hætti í mjöðm starfsmannsins. Handbolti 8. mars 2023 11:30
Sigurður í tveggja leikja bann vegna óviðeigandi hegðunar gagnvart Valskonum Aga- og úrskurðarnefnd HSÍ hefur úrskurðað Sigurð Bragason, þjálfara toppliðs ÍBV í Olís-deild kvenna í handbolta, í tveggja leikja bann vegna óviðeigandi hegðunar hans eftir toppslaginn gegn Val fyrir rúmri viku. Handbolti 7. mars 2023 20:00
Unnur ekki meira með á leiktíðinni Unnur Ómarsdóttir, hornamaður KA/Þórs og íslenska landsliðsins í handbolta, mun ekki leika meira með félagsliði sínu á yfirstandandi leiktíð í Olís-deild kvenna. Ástæðan er einföld, Unnur gengur með barn undir belti. Handbolti 7. mars 2023 17:46
Ragnar fékk að hætta hjá Haukum Ragnar Hermannsson hefur látið gott heita sem þjálfari meistaraflokks kvenna í handbolta hjá Haukum. Hann óskaði sjálfur eftir því að hætta, af persónulegum ástæðum. Handbolti 7. mars 2023 15:01
Stefán hættir með Fram eftir tímabilið Stefán Arnarson mun hætta þjálfun Fram í Olís-deild kvenna í handbolta þegar tímabilinu lýkur. Stefán hefur þjálfað Fram í níu ár. Handbolti 6. mars 2023 20:30
Sakaður um að slá á afturenda starfsmanns Vals og segja leikmanni að „fokka sér“ Mál Sigurðar Bragasonar, þjálfara kvennaliðs ÍBV, er nú á borði aganefndar HSÍ en hann fékk rautt spjald í leik gegn Val um síðustu helgi og er sakaður um „ósæmilega hegðun“ eftir leik. Handbolti 3. mars 2023 07:31
Sigurður gæti misst af úrslitum vegna óviðeigandi hegðunar Mál Sigurðar Bragasonar, þjálfara kvennaliðs ÍBV í handbolta, er inni á borði aganefndar HSÍ en hann er sakaður um óviðeigandi hegðun í garð starfsmanns og leikmanna Vals eftir leik liðanna í Vestmannaeyjum um síðustu helgi. Handbolti 2. mars 2023 08:00
Umfjöllun og viðtöl: KA/Þór - Selfoss 21-26 | Góð ferð Selfyssinga norður Selfoss bar sigurorð af KA/Þór í KA heimilinu í dag, lokatölur 21 – 26 fyrir gestina sem sýndu klærnar í seinni hálfleik og lönduðu góðum sigri. Handbolti 26. febrúar 2023 17:00
Umfjöllun og viðtöl: Fram - Haukar 22-14 | Hafdís mögnuð í sigri Fram Fram vann átta marka sigur á Haukum í Olís-deild kvenna í handknattleik í dag. Hafdís Renötudóttir átti frábæran leik í marki Fram og varði meðal annars fimm víti. Handbolti 25. febrúar 2023 17:30
Ragnar: Þegar Hafdís mætir fara bara allir aftast í röðina Ragnar Hermannsson, þjálfari Hauka, var virkilega ósáttur með frammistöðu síns liðs í dag er það mætti Fram í 18. umferð Olís deildar kvenna. Hafdís Renötudóttir átti stórleik en hún var með 65% markvörslu. Fram sigraði leikinn með átta mörkum, 22-14. Handbolti 25. febrúar 2023 16:18
Umfjöllun: ÍBV - Valur 29-28 | ÍBV komst upp að hlið Vals eftir spennutrylli Harpa Valey Gylfadóttir tryggði ÍBV mikilvægan sigur þegar liðið tók á móti Val í toppslag Olís deildar kvenna í handbolta í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í dag. ÍBV hefur þar af leiðandi haft betur í 13 leikjum í röð í deildinni og er nú komið upp að hlið Valsliðinu á toppi deildarinnar. Handbolti 25. febrúar 2023 15:28
Öruggur sigur Stjörnunnar gegn HK | Myndaveisla Stjarnan lagði HK að velli í Olís-deild kvenna í handknattleik í kvöld. Lokatölur 24-20 og Stjarnan heldur í við Val og ÍBV á toppi deildarinnar. Handbolti 24. febrúar 2023 21:15
Þorgeir hættur eftir áratuga starf hjá Haukum Þorgeir Haraldsson er hættur sem formaður handknattleiksdeildar Hauka en þetta var tilkynnt á Facebook síðu handknattleiksdeildar Hauka nú í kvöld. Handbolti 22. febrúar 2023 20:30
Hafa ekki unnið Haukana á heimavelli í 88 mánuði Afturelding tekur á móti Haukum í Olís deild karla í handbolta í Mosfellsbænum í kvöld en það er orðið langt síðan Haukarnir fóru stigalausir frá Varmá. Handbolti 20. febrúar 2023 17:00
Selfoss endurheimtir Perlu um hálsinn Selfyssingar hafa tryggt sér sannkallaðan hvalreka frá og með næsta sumri því landsliðskonan Perla Ruth Albertsdóttir hefur ákveðið að snúa aftur heim. Handbolti 20. febrúar 2023 14:45
Ásdís rifjar upp krossbandsslitin: „Ég bara grét og grét og grét“ Sigurlaug Rúnarsdóttir fór af stað með Kvennakastið í seinustu viku þar sem fjallað verður um Olís-deild kvenna í handbolta. Systurnar Ásdís Þóra og Lilja Ágústsdætur voru gestir hennar í fyrsta þætti og þar ræddu þær meðal annars um það þegar Ásdís sleit krossband. Handbolti 19. febrúar 2023 23:32
„Maður þarf að þora að fá höggin“ Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA/Þórs, var svekktur eftir þriggja marka tap á móti Stjörnunni í Olís deild kvenna í handbolta. KA/Þór átti erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik en náðu að komast á lagi í seinni en það dugði ekki til. Lokatölur 19-16. Handbolti 18. febrúar 2023 18:30
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti