Vilja hefja frekara samstarf milli Suður-Kóreu og Íslands í menntamálum Kim sang-Kon, menntamálaráðherra og varaforsætisráðherra Suður-Kóreu, tók á móti Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra í Seoul í dag. Innlent 11. febrúar 2018 18:34
Kæri námsmaður, heldur þú að LÍN leggi þér lið? Grunnframfærsla LÍN fyrir einstakling í leiguhúsnæði er 177.107 krónur á mánuði. Á meðan eru lágmarkslaun 280.000 krónur og grunnatvinnuleysisbætur 227.417 krónur á mánuði. Skoðun 2. febrúar 2018 07:00
Skora á rektor HÍ að bæta stöðu doktorsnáms: „Þetta er rosalega sorglegt ástand“ Védís Ragnheiðardóttir, stjórnarmaður í Félagi doktorsnema og nýdoktora við Háskóla Íslands (Fedon) og doktorsnemi í íslenskum miðaldabókmenntum, mælir ekki með því fyrir nema í grunnnámi eða mastersnámi að sækja í doktorsnám vegna fjárskorts þegar kemur að styrkveitingum til doktorsnema og nýdoktora. Innlent 1. febrúar 2018 13:00
Stóra samhengið Samkvæmt niðurstöðum nýlegrar rannsóknar Halldóru Bjargar Rafnsdóttur og Andra Hauksteins Oddssonar á geðheilsu nemenda við þrjá háskóla á Íslandi mælist um þriðjungur háskólanema hér á landi með klínísk einkenni þunglyndis. Skoðun 1. febrúar 2018 08:00
LHÍ fær aukafjárframlag vegna húsnæðismála skólans Listaháskóli Íslands fær 30 milljónir aukalega til þess að vinna þarfagreiningu fyrir nýtt framtíðarhúsnæði skólans og standa að samkeppni um það. Innlent 31. janúar 2018 14:47
Eiríkur Jónsson orðinn deildarforseti Lagadeildar Ekki liggur fyrir hvort þetta hafi áhrif á skaðabótakröfu hans á hendur ríkinu. Innlent 31. janúar 2018 13:20
Er þetta í lagi? Nýlega birtist opið bréf frá lánasjóðsfulltrúa Stúdentaráðs Háskóla Íslands til mennta- og menningarmálaráðherra um mikilvægi þess að skipað verði í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN). Skoðun 31. janúar 2018 08:00
Langþreytt á þrengslum, aðstöðuleysi og heilsuspillandi húsnæði Hópur nemenda hefur lýst því yfir að þau munu ekki greiða skólagjöldin sín í ár, en þau segja að þetta sé neyðarúrræði. Innlent 30. janúar 2018 20:00
Síðkominn nýárspistill — bætt kjör stúdenta strax Höfum við ekki öll sett okkur háleit markmið í byrjun nýs árs? Eitthvað á borð við: „Nú ætla ég að byrja að læra jafnt og þétt yfir önnina“ eða „nú mæti ég að minnsta kosti þrisvar sinnum í viku í ræktina!“ Skoðun 30. janúar 2018 13:20
Var ráðinn við Háskólann um leið og Ólafur Ragnar Þorbjörn Broddason prófessor er sjötíu og fimm ára í dag. Hann gekk á undan í því að gera fjölmiðla að rannsóknarefni og fjölmiðlun námsgrein á háskólastigi hér á landi. Lífið 30. janúar 2018 10:15
HR býður nemendum sálfræðiþjónustu Þjónustan er veitt af sálfræðisviði HR í samstarfi við náms- og starfsráðgjöf háskólans. Innlent 29. janúar 2018 16:41
Krakkar og kennarar streyma úr Breiðholtsskóla vegna óróa Foreldrar eru óánægðir með tíðar uppsagnir kennara og óstöðugleika sem þær skapa meðal nemenda í Breiðholtsskóla. Dæmi eru um að nemendur fái nýjan umsjónarkennara árlega. Innlent 29. janúar 2018 06:00
Stuðningur við að komast aftur á fulla ferð í námi Oft er sagt að draumurinn sé upphaf alls. Draumurinn sé uppspretta þess að upplifa eitthvað nýtt, öðlast skarpari sýn á lífið og tilveruna. Skoðun 23. janúar 2018 08:45
Sveinbjörg vill snjallsímabann í grunnskólum borgarinnar Óháði borgarfulltrúinn Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir hyggst í byrjun febrúar leggja fram tillögu í borgarstjórn um að borgaryfirvöld auðveldi skólastjórnendum að banna notkun snjallsíma í grunnskólum borgarinnar. Innlent 23. janúar 2018 08:00
Nýr formaður grunnskólakennara gerir lítið úr Pisa-könnunum Þorgerður Laufey DIðriksdóttir telur að skylda um viðveru kennara í skólum bindi sköpunina og listina við kennslu. Innlent 22. janúar 2018 22:12
Þorgerður Laufey er nýr formaður Félags grunnskólakennara Þorgerður Laufey Diðriksdóttir tekur við af Ólafi Loftssyni. Innlent 22. janúar 2018 15:36
Um brenglað gildismat – svar til Skúla Helgasonar Ef stjórnmálamenn þora ekki að taka opinberlega afstöðu með launahækkunum grunnskólakennara hafa þeir ekkert í sveitarstjórnir að gera. Skoðun 22. janúar 2018 08:03
Fín frjósemi á Klaustri Frjósemi virðist vera með allra besta móti á Kirkjubæjarklaustri og í sveitunum í kring því börnum fjölgar svo mikið að stækka þarf leikskólann Kærabæ á Klaustri. Ákveðið hefur verið að kaupa færanlega kennslustofu fyrir tæplega 11 milljónir króna. Innlent 22. janúar 2018 06:00
Leynd yfir greiðslu sex milljóna miskabóta Fyrrverandi skólastjóri Flóaskóla fékk greiddar sex milljónir króna í miskabætur frá Flóahreppi vegna starfsloka sinna. Leynd hvílir yfir ástæðu þess að skólastjóranum var sagt upp. Innlent 17. janúar 2018 06:00
Hefur hafið tilraunir með kakóframleiðslu Garðyrkjuskólinn á Reykjum í Ölfusi hefur hafið tilraunir með kakóframleiðslu á Íslandi en von er á fyrstu uppskeru mjög fljótlega. Innlent 14. janúar 2018 18:19
Opnun ungbarnadeilda í öllum hverfum lausn á vanda foreldra Starfshópur á vegum borgarinnar skilar tillögum um nýjar ungbarnadeildir á næstu vikum. Formaður skóla- og frístundaráðs telur þær lykilatriði í lausn á vanda foreldra með ung börn sem stafar af manneklu á leikskólum. Innlent 13. janúar 2018 07:00
Neyðarástand hjá foreldrum ungra barna Langir biðlistar hjá dagforeldrum setja foreldra í mikinn vanda. Fækkun í stéttinni og manneklu hjá leikskólum um að kenna. Rebekka Júlía Magnúsdóttir hefur íhugað að segja upp vinnunni. Innlent 12. janúar 2018 06:00
Engin hefðbundin námskrá verður í nýjum lýðháskóla á Flateyri Eftir mikið undirbúningsstarf fólks í sjálfboðavinnu þá erum við komin á þann stað að við eigum möguleika á að fara af stað með skólann í haust, segir Helena Jónsdóttir framkvæmdastjóri Lýðháskólans á Flateyri. Innlent 11. janúar 2018 06:00
Marina Candi nýr prófessor við viðskiptadeild HR Marina Candi hefur gegnt stöðu dósents við HR frá árinu 2010. Viðskipti innlent 9. janúar 2018 09:51
Fjölga nemum í læknisfræðinni Þetta er meðal þess sem felst í breytingu á reglum um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands. Innlent 9. janúar 2018 06:00
Mikil mannekla í lögreglunni en einungis 41 komast í starfsnám Ríflega tvö hundruð nemendur í lögreglufræðum sóttu um starfsnám hjá mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar í ár en einungis 41 nemandi komst að. Það mun vanta a.m.k. 170 nýja lögregluþjóna á næstu fimm árum. Innlent 30. desember 2017 21:57
Áður borist kvartanir vegna Hannesar: „Við tökum allar svona ábendingar alvarlega“ Undirskriftalisti núverandi og fyrrverandi stjórnmálafræðinema vegna kennslu Hannesar Hólmstein er ekki fyrsta ábendingin sem berst vegna námskeiðsins. Innlent 20. desember 2017 14:15
Stjórnmálafræðinemar rísa upp gegn Hannesi Hólmsteini Núverandi og fyrrverandi nemendur í stjórnmálafræði við HÍ krefjast þess að Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor kenni ekki skylduáfanga og að bókin hans verði tekin úr umferð. Innlent 19. desember 2017 16:30
Kennsluaðferðir í framhaldsskólum Árið er 2017, við lifum á tímum hröðustu tækniframþróunar í mannkynssögunni, við sjáum nýja tækni spretta fram daglega og erfitt getur verið að halda í við alla þá nýsköpun sem á sér stað í kringum okkur. Kennsluaðferðir eiga ekki heima þar undir. Skoðun 17. desember 2017 11:55
Konur innan menntageirans rjúfa þögnina: Nauðgaði nemanda en fékk að hætta undir yfirskyni veikinda Kynferðisofbeldi, kynferðisáreitni og mismunun viðgengst enn í skjóli þagnar. Um árabil hafa konur þagað yfir misréttinu sem þær eru beittar innan menntastofnana. Svo segir í yfirlýsingu sem 737 konur innan menntageirans skrifa undir og sendu fjölmiðlum í dag. Innlent 15. desember 2017 13:24