Tvítyngi? Væri ekki nær að tala um fjöltyngi eða þvoglutyngi? Í nútímasamfélagi gusast yfir okkur ný orð sem við eigum oft fullt í fangi með að meðtaka. Eintyngi, tvítyngi, fjöltyngi eru dæmi um slíkt. Hvað þýðir t.d. að vera tvítyngdur? Það þýðir að eiga foreldra/uppalendur sem eru með sitthvort móðurmálið t.d. dönsku og íslensku. En hvað þýðir þá að vera fjöltyngdur? Það hlýtur þá að þýða að einstaklingurinn elst upp við fleiri en tvö tungumál. Skoðun 3. október 2022 12:01
Aðstæður í verðlaunabyggingu ekki orðnar mannvænar Þótt hann sé verðlaunabygging, var leikskólinn Brákarborg tekinn í notkun nokkru áður en hann var tilbúinn. Starfsemi er hafin en viðvarandi framkvæmdir koma í veg fyrir aðlögun nýrra nemenda, sem veldur óánægju og áhyggjum á meðal kennara. Innlent 2. október 2022 20:01
„Gerum eitthvað af viti áður en allir leikskólakennarar ganga út“ Leikskólakennari í Brákarborg gagnrýnir vinnubrögð borgarinnar við flutning í nýtt húsnæði. Leikskólakennarar hafi flutt í húsnæðið, reynt að taka það helsta upp úr kössum og hafið aðlögun nýrra nemenda á sama tíma. Framkvæmdir séu enn í fullum gangi og efast hún um að skrifstofufólk borgarinnar myndi láta bjóða sér slíkar vinnuaðstæður. Innlent 2. október 2022 07:00
Loka Grandaborg og skipta börnunum í þrennt Loka þarf leikskólanum Grandaborg í Vesturbænum. Þar hafa framkvæmdir staðið yfir vegna rakaskemmda og þar að auki kom nýverið í ljós rof á skolplögn undir leikskólanum. Því þarf að skipta börnunum á leikskólanum upp og hýsa þau annars staðar í þremur hópum, á meðan unnið er að því að finna húsnæði þar sem öll börnin geta verið saman. Innlent 1. október 2022 16:29
Hrýs hugur við að skólahverfið taki stakkaskiptum Á mánudag verður tekin ákvörðun um framtíðarskipulag skólahverfisins í Laugardal. Íbúum hverfisins er mikið niðri fyrir og hafa sett af stað undirskriftasöfnun þar sem þess er krafist að borgaryfirvöld hlusti á raddir þeirra og geri ekki róttækar breytingar á fyrirkomulagi skólamála og tvístri nemendahópnum með nýjum unglingaskóla. Innlent 30. september 2022 13:13
Börn í Laugardal föst í hamsturhjóli ferlagreininga borgarinnar Íbúar í Laugardal eru langþreyttir að bíða eftir ákvörðun borgaryfirvalda um framkvæmdir á skólahúsnæði við Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla og Langholtskóla. Skoðun 30. september 2022 07:01
Ákærð fyrir að refsa leikskólabörnum líkamlega Kona sem starfaði á leikskóla hefur verið ákærð fyrir að hafa beitt börn á leikskólanum andlegum og líkamlegum refsingum og ógnunum. Innlent 29. september 2022 14:18
Nemendur Laugarnesskóla hafa veikst vegna myglu Lekaskemmda hefur orðið vart í húsnæði Laugarnesskóla með tilheyrandi myglu. Ráðist var í heildarúttekt á skólanum eftir að nemendur og starfsfólk kenndu sér meins vegna myglunnar. Innlent 29. september 2022 12:07
Korpuskóli skásti möguleikinn í afleitri stöðu Tekin hefur verið ákvörðun um að nemendur í 8. bekk Hagaskóla verði í vikunni fluttir tímabundið í Korpuskóla í Grafarvogi. Þar mun kennsla fara fram í um 3-5 vikur á meðan leyst er úr brunavarnamálum í bráðabirgðahúsnæði þeirra í Ármúla. Formaður Foreldrafélags Hagaskóla segir þetta skásta möguleikann í annars afleitri stöðu. Innlent 28. september 2022 11:55
Segir leitt að 53 ára skólastarfi að Húnavöllum hafi lokið svona skyndilega Harðar deilur hafa staðið innan sveitarstjórnar hinnar nýju Húnabyggðar um þá ákvörðun hennar að hætta grunnskólastarfi í Húnavallaskóla og sameina skólastarfið Blönduskóla á Blönduósi strax í haust. Innlent 28. september 2022 08:01
Skoða flutning Hagskælinga í Korpuskóla Til skoðunar er að flytja hluta nemenda í áttunda og níunda bekk Hagaskóla tímabundið í Korpuskóla. Þá er einnig möguleiki að húsnæðið sem Hagaskóli hefur haft til umráða í Ármúla verði tvísetið en fulltrúar Reykjavíkurborgar funduðu með fulltrúum skólans í vikunni um næstu skref. Innlent 28. september 2022 06:40
Ekki í anda trúarinnar að tvístra nemendahópum Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur við Laugarneskirkju vísar á bug ásökunum um að kirkjan sé að kynda undir ófriðarbál með því að afþakka kirkjuheimsóknir á vegum grunnskólanna í aðventunni. Ákvörðunin hafi verið tekin sérstaklega til að slökkva ófriðarbál því andstaða hafi við skipulagðar kirkjuheimsóknir hafi farið stigvaxandi. Þá sé það ekki í anda kirkjunnar að skilja börn út undan. Innlent 27. september 2022 17:08
„Gera þetta alveg jafn vel og karlarnir, kannski betur“ Ung kona í málaraiðnnámi segist finna fyrir fordómum þegar hún fer að kaupa málningu. Þrátt fyrir töluverða fjölgun kvenna í iðngreinum telur hún aðeins hægt að uppræta fordóma með enn frekari fjölgun. Lífið 25. september 2022 07:00
Sautján ára fluttur á bráðadeild eftir líkamsárás við Norðlingaskóla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og í nótt, á meðal þeirra verkefna sem embættið sinnti var tilkynning um líkamsárás við Norðlingaskóla þar sem 17 ára piltur var fluttur á bráðadeild með áverka á höfði. Innlent 24. september 2022 07:38
Ragnhildur áfram rektor HR Ný stjórn Háskólans í Reykjavík hefur framlengt ráðningarsamning Ragnhildar Helgadóttur rektors til ársins 2026. Ragnhildur tók við stöðunni af Ara Kristni Jónssyni árið 2021, en hann hafði þá verið rektor í ellefu ár. Ragnhildur gerði upphaflega samning til eins árs, sem hefur nú verið framlengdur. Viðskipti innlent 22. september 2022 11:02
Nemendur flykkjast heim að Hólum að læra fiskeldi Sprenging hefur orðið í fjölda nemenda í fiskeldisnámi við Háskólann á Hólum og stunda núna um áttatíu manns nám í faginu. Samtímis fer þar fram rannsóknar- og kynbótastarf í fiskeldi. Innlent 20. september 2022 23:13
Góð kartöfluuppskera í Krakkaborg í Flóahreppi Börnin í leikskólanum Krakkaborg í Flóahreppi og starfsfólk hoppa hæð sína af gleði þessa dagana því leikskólinn hefur fengið splunkunýtt gróðurhús og þá er kartöfluuppskeran með besta móti í útigarði skólans. Innlent 18. september 2022 20:05
Sláandi munur á færni leikskólabarna Börn af annarri kynslóð innflytjenda ná mun verri tökum á íslensku en áður var talið. Þetta sýnir ný rannsókn á vegum Háskóla Íslands en vísindamennirnir segja stöðuna grafalvarlega og kalla eftir íslenskukennslu í leikskólum. Innlent 17. september 2022 20:01
„Þau hafa ekki fengið þá aðstoð sem þau þurfa“ Vel rúmlega 1100 börn bíða eftir að komast að hjá fagfólki Skólaþjónustu Reykjavíkurborgar. Borgarfulltrúi segir ástandið stjórnlaust. Það sé hættulegt að láta börn í andlegri vanlíðan bíða eftir sálfræðiþjónustu. Innlent 17. september 2022 12:01
Tónlistarnám í Reykjavík allt að tvöfalt dýrara Skólagjöld tónlistarskóla í Reykjavík eru þau dýrustu á landinu en borgin, ólíkt flestum öðrum sveitarfélögum, rekur ekki tónlistarskóla á eigin vegum. Veturinn í tónlistarskóla getur kostað rúmlega tvö hundruð þúsund krónur. Innlent 17. september 2022 07:39
Ekkert barn þarf að sitja eftir Á þeim sex árum sem liðið hafa frá því lesfimipróf Menntamálstofnunar fór fyrst í almenna notkun hafa litlar breytingar orðið á niðurstöðum prófsins á landsvísu og hlutfall nemenda sem útskrifast úr grunnskóla undir lágmarksviðmiði í lesfimi enn um 30%. Skoðun 16. september 2022 13:01
Rúmlega hálfur milljarður í fjárveitingu vegna rakaskemmda Í morgun samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar mörg hundruð milljóna króna fjárveitingu til Myllubakkaskóla til þess að hægt sé að halda viðgerðum vegna rakaskemmda hjá skólanum áfram. Innlent 15. september 2022 23:22
618 börn bíða eftir sálfræðiþjónustu hjá HH Þessa stundina bíða 618 börn eftir sálfræðiþjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þetta kemur fram í nýrri samantekt sem Umboðsmaður barna hefur ráðist í um bið barna eftir nauðsynlegri þjónustu. Ráðist var í sams konar samantekt í árslok 2021 og síðan voru nýjustu upplýsingar birtar í gær frá sömu aðilum en auk þeirra voru birtar upplýsingar frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Heilsuskóla barnaspítalans og þjónustu talmeinafræðinga. Innlent 15. september 2022 13:27
Takið ákvörðunina Manstu þegar gluggarnir heima hjá þér fóru að leka, ofninn bilaði og þú áttir von á einu barni til viðbótar svo það bráðvantaði annað herbergi - en þú beiðst bara í nokkur ár þangað til að málið leystist af sjálfu sér? Nei ekki ég heldur. Það er vegna þess að heimurinn virkar ekki þannig. Þvert á móti stækka vandamálin því lengur sem kosið er að vanrækja þau. Skoðun 15. september 2022 08:00
Háskólanemar hjálpi til með fækkun á biðlistum frístundaheimila Leikskólamál hafa verið í brennidepli nú síðustu mánuði, foreldrar hafa fjölmennt á palla ráðhússins með börnin sín, sem fá ekki leikskólapláss. Innlent 14. september 2022 11:57
Nemandi FÁ dró upp hníf í skólanum Myndskeið sem sýnir nemanda í Fjölbrautaskólanum við Ármúla draga upp hníf í skólanum gengur nú manna á milli. Innlent 13. september 2022 19:16
Ökumaðurinn ekki undir áhrifum þegar bíllinn hafnaði á lóð leikskólans Ökumaður bílsins sem hafnaði inni á lóð leikskólans Fífusala var ekki undir áhrifum áfengis eða vímuefna þegar bíllinn fór inn á lóðina, heldur komu upp veikindi hjá honum. Þetta segir Erla Stefanía Magnúsdóttir, leikskólastjóri Fífusala. Innlent 13. september 2022 19:07
Bíl ekið inn á lóð Fífusala Einn var fluttur á sjúkrahús eftir að bíl var ekið inn á lóð leikskólans Fífusala í Salahverfi í Kópavogi í dag. Mikill viðbúnaður var á vettvangi en bílnum var ekið inn á lóðina á vegg leikskólans. Leikskólabörnin sluppu alfarið. Innlent 13. september 2022 15:51
Hefur náð mögnuðum tökum á málinu á skömmum tíma „Ég hef lært íslensku í þrjú ár. Nú á dögum er ég að læra meira af því að ég er í vinnu í grunnskóla, þar sem ég hef verið að tala við krakkana allan tímann,“ segir hinn kínverski Yi Hu, sem rætt var við í Íslandi í dag í síðustu viku. Innlent 13. september 2022 09:01
Hver ber ábyrgð á menntamálum? Þessa dagana er nokkuð rætt um stöðu verkalýðshreyfingarinnar (hér stytt í VLH) og þá jafnframt Samtaka atvinnurekenda (SA) gagnvart kröfu um íslenskukennslu fyrir starfsfólk á vinnumarkaði. Svo virðist sem einhverjir líti svo á að þessir aðilar eigi að sjá um menntamál. En er það tilfellið? Skoðun 13. september 2022 08:01