Sigmundur Davíð þvær hendur sínar af Mannréttindastofnun Íslands Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hefur lítinn sem engan áhuga á því að Hildi Sverrisdóttur, þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, takist að gera Miðflokkinn ábyrgan fyrir nýrri Mannréttastofnun Íslands. Innlent 4. júlí 2024 14:24
Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Búist er við stórsigri Verkamannaflokksins í þingkosningum í Bretlandi í dag en Íhaldsflokkurinn stendur ákaflega illa; ekki einu sinni forsætisráðherrann er öruggur um þingsæti. Formaður Samfylkingarinnar, sem er stödd úti í Bretlandi til að fylgjast með kosningum, segir greinilegt að Bretar vilji breytingar. Erlent 4. júlí 2024 13:17
Fulltrúar sérhagsmuna létu formanninn einan um orðið Engin samstaða náðist um niðurstöður innan starfshóps um veðmálastarfsemi á Íslandi. Formaður hópsins segir aðgerðarleysi ekki gagnast neinum, nema íslensku sérleyfishöfunum og erlendu fyrirtækjunum með ólöglega starfsemi hér á landi. Gríðarlegir fjárhagslegir hagsmunir séu í húfi fyrir þau. Innlent 4. júlí 2024 13:11
Meirihluti þjóðarinnar styður aðildarviðræður við ESB Meirihluti þjóðarinnar vill að boðað verði til þjóðaratkvæðagreiðslu á næsta kjörtímabili um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Rúmlega fjörutíu prósent er fylgjandi fullri aðild Íslands að sambandinu samkvæmt nýrri könnun. Innlent 4. júlí 2024 12:26
Ert þú í góðu netsambandi? Stór hluti af okkar samskiptum, hvort sem það er vegna náms, vinnu eða félagslegra samskipta fara í gegnum netið. Ljósleiðaratenging er því orðinn grundvöllur nútíma búsetugæða, atvinnulífs og samkeppnishæfni byggða. Skoðun 4. júlí 2024 11:00
Heilræði fyrir Nýhaldið Miðflokkurinn virðist vera forsprökkum Nýja Sjálfstæðisflokksins (Nýhaldsins) mjög hugleikinn þessa dagana. Þegar þeir náðu 18,5% í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup taldi ég að það hefði verið fagnað í Valhöll eins og það væri 1999. En sú virðist ekki hafa verið raunin. Enn svífur einhver gremja yfir vötnum. Skoðun 4. júlí 2024 08:30
Stærðarinnar skilti sem ekkert má sýna Framkvæmdastjóri Ormsson segir dapurlegt að deilur við Reykjavíkurborg um auglýsingaskilti félagsins þurfi að fara fyrir dómstóla. Innlent 3. júlí 2024 21:01
Óhjákvæmilegt fyrir stjórnvöld að grípa inn í Íslenska ríkið verður af gríðarlegum fjármunum á hverju ári sem lög eru ekki sett í kringum starfsemi erlendra veðmálasíðna hér á landi segir formaður starfshóps dómsmálaráðuneytisins. Óhjákvæmilegt sé fyrir stjórnvöld að grípa inn í. Ekkert hefur gerst í málinu síðan starfshópurinn skilaði skýrslu fyrir einu og hálfu ári. Innlent 3. júlí 2024 19:48
Lagabreytingin vegi að eldri borgurum og öryrkjum erlendis Ingu Sæland þingmanni Flokks fólksins hugnast illa „verulega ljót“ lagabreyting sem tekur gildi um áramótin. Lagabreytingin kveður á um að Íslendingar sem búsettir eru erlendis og fá meira en 75 prósent tekna sinna frá tryggingastofnun, þurfi að sækja sérstaklega um að fá persónuafsláttinn sinn. Inga segir ómaklega vegið að eldri borgurum og öryrkjum. Innlent 3. júlí 2024 17:11
Mikil tækifæri felist í að gera Þórsmörk að þjóðgarði Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, hefur skipað þriggja manna starfshóp sem mun skoða fýsileika þess að stofnaður verði þjóðgarður í Þórsmörk. Ráðherranum líst vel á hugmyndina og segir ánægjulegt að sjá hvernig sveitarfélögin eru að taka við sér. Sveitarstjóri segir friðlýsingu bjóða tækifæri í uppbyggingu. Innlent 3. júlí 2024 12:37
Öldrun heimilislækna og fólksfjölgun valda læknaskorti Skort á heimilislæknum má meðal annars rekja til þess hversu margir þeirra eru að láta af störfum vegna aldurs og örar fjölgunar landsmanna, að sögn formanns Félags íslenskra heimilislækna. Af þessum sökum hafi ekki tekist að fullmanna heilsugæslustöðvar sem eigi að vera fyrsti viðkomustaðurinn í heilbrigðiskerfinu. Innlent 3. júlí 2024 11:53
„Við erum að klæða vegi sem eiga að vera malbikaðir“ Björk Úlfarsdóttir, umhverfis, gæða og nýsköpunarstjóri hjá Colas malbikunarfyrirtæki og formaður Félags kvenna í vegagerð segir klæðingu á vegi ekki alslæma en að malbikið sé betra. Klæðingu eigi að nota á umferðarminni vegi. Hún segir Vegagerðina ekki anna eftirspurn og viðhaldsskuldina aðeins aukast þegar hugsað er í skammtímalausnum. Innlent 3. júlí 2024 10:33
Íris segir RÚV henda blautri og kaldri tusku í andlit sjómanna Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir sérdeilis ólíðandi að sjómenn þurfi að greiða afnotagjöld af RÚV ohf., en séu hins vegar sviptir möguleikum á að ná sjónvarps og útvarpssendingum. Innlent 3. júlí 2024 09:43
Það er verið að grafa dýpri fátæktargjá Á embættistíma núverandi barnamálaráðherra hefur barnafátækt á Íslandi aukist verulega. Á sama tíma hefur hlutfall barna sem útskrifast úr 10. bekk með lélegan lesskilning eða ólæsi hækkað úr 22% í um 50% frá árinu 2016. Þessi börn standa frammi fyrir ógnvekjandi veruleika þar sem tækifæri þeirra til að blómstra eru skert af kerfisbundinni mismunun. Skoðun 3. júlí 2024 09:31
„Pabbi er að senda þér skilaboð og mamma vill fá að sjá hvað stendur“ Börnum á aldrinum 3 til 17 ára sem eiga foreldra sem hafa skilið stendur nú til boða nýtt úrræði á netinu þar sem þau geta fræðst um skilnað og áhrif þess á líf þeirra og tilfinningar. Um er að ræða 28 áfanga á netinu sem eru sérsniðin að aldri og flokkuð eftir þemum. Fjallað er um söknuð, samsettar fjölskyldur, hvernig eigi að bregðast við þegar foreldrar rífast, tilfinningar og réttindi barna. Innlent 3. júlí 2024 06:12
Stjórnarflokkarnir geti allir haft áhyggjur Formaður Framsóknarflokksins rekur lítið fylgi Framsóknarflokksins til stöðunnar í efnahagsmálum, en segist eiga von á að fylgið taki við sér með vetrinum. Prófessor í stjórnmálafræði segir fleira ráða fylgistapinu en mikil verðbólga og háir vextir. Innlent 2. júlí 2024 19:43
„Nöturlegt“ ef Barnasáttmálinn grípur ekki Yazan Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra segir nöturlegt ef réttindi barna og barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna grípi ekki fatlaðan ellefu ára dreng sem hefur verið vísað frá landinu. Brottvísun drengsins hefur verið frestað fram yfir verslunarmannahelgi og lögmaður fjölskyldu hans hefur óskað eftir endurupptöku á máli hans. Innlent 2. júlí 2024 15:11
Ríkisstjórnin líði fyrir efnahagsástandið Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir fylgistap flokksins ekki góð tíðindi og tekur fram að ríkisstjórnarflokkarnir líði fyrir háa verðbólgu og vaxtastig. Hann er vongóður um að fylgi flokksins aukist næsta vetur. Innlent 2. júlí 2024 13:04
Tengja síðustu 102 þorp landsins Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra segir ríkið munu koma að því að ljósleiðaratengja rúmlega 102 litla þéttbýliskjarna um land allt. Með þessu muni hvert einasta lögheimili á Íslandi vera tengt ljósleiðara og því njóta öflugrar nettengingar. Innlent 2. júlí 2024 12:09
Segir Sigmund og Bergþór bera sína ábyrgð á Mannréttindastofnun Íslands Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, skynjar falskan tón í óbilgjarnri gagnrýni þeirra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins og Bergþórs Ólasonar þingmanns en þeir hafa fundið Mannréttindastofnun Íslands, sem samþykkt var við þinglok, flest til foráttu. Innlent 2. júlí 2024 12:01
Aukin útgáfa ríkisbréfa kom markaðnum í „opna skjöldu“ sem taldi árið tryggt Fyrirhuguð aukin útgáfa á ríkisbréfum í ár kom markaðnum í „opna skjöldu“ og markaðsvextir ríkisbréfa hækkuðu því skarpt við tíðindin. Sjóðstjórar töldu að ríkið væri búið að fjármagna útgjöld vegna kjarasamninga og jarðhræringa á Reykjanesi að minnsta kosti fram á næsta ár. Spurningin „hver á að fjármagna ríkissjóð í þetta skiptið?“ veldur mörgum skuldabréfafjárfestum áhyggjum. Innherji 2. júlí 2024 06:31
Ríkisstjórn ekki verið óvinsælli frá tíð Geirs Haarde Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar er sú óvinsælasta frá því að ríkisstjórn Geirs H. Haarde var við völd. Stuðningurinn við ríkisstjórnina hefur dalað jafnt og þétt undanfarna mánuði og mælist nú tæplega 28 prósent, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallúp. Innlent 1. júlí 2024 21:13
VG mælist enn úti af þingi og Samfylkingin dalar Vinstri græn mælast með 4 prósenta fylgi og fylgi Samfylkingarinnar dalar mest í nýjum þjóðarpúlsi Gallúp. Miðflokkurinn bætir mestu við fylgi sitt og mælist með 14,5 prósent fylgi. Innlent 1. júlí 2024 18:45
Sjálfstæðisflokkur og Píratar að miklu leyti til eins Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata gefur ekki mikið fyrir pólítíska greiningu Stefáns Einars Stefánssonar víninnflytjanda og blaðamanns Morgunblaðsins í nýlegum pistili á Facebook. Innlent 1. júlí 2024 13:13
„Lýtalaus íslenska“ er ekki til Undanfarið hefur orðið töluverð umræða um íslensku í Ríkisútvarpinu, m.a. í framhaldi af kæru Kristjáns Hreinssonar skálds til menningar- og viðskiptaráðherra „vegna notkunar íslenskrar tungu hjá fjölmörgum starfsmönnum Ríkisútvarpsins“. Skoðun 1. júlí 2024 12:30
Samningur stærsta félags BHM gæti hreyft við öðrum félögum Viska, nýtt stéttarfélag innan Bandalags háskólamanna, gekk fyrst félaga bandalagsins frá kjarasamningi í gær. Formaður BHM segir ekki ólíklegt að samningurinn komi hreyfingu á viðræður annarra félaga sem enn eiga eftir að semja við ríki mög sveitarfélög. Innlent 1. júlí 2024 11:56
Kjósendur hafi nýtt forsetakosningar til að senda pólitíkinni skilaboð Stefán Einar Stefánsson þáttastjórnandi segir mikla þreytu meðal almennings á núverandi ríkisstjórn og niðurstöður kannanna endurspegli það. Samkvæmt nýjustu könnun Maskínu er Sjálfstæðisflokkurinn aðeins með 14,7 prósenta fylgi og Samfylkingin með mest fylgi, 27,1 prósent. Miðflokkurinn er með 12,7 prósent í sömu könnun og Vinstri græn fimm prósent. Innlent 1. júlí 2024 10:44
Blendnar tilfinningar í Borgarnesi: „Það hefur nær ekkert samráð verið“ Sveitarstjórn Borgarbyggðar er sökuð um skort á samráði við ákvörðun um uppbyggingu á íþróttasvæðinu í Borgarnesi. Áformin vekja blendnar tilfinningar meðal íbúa og íþróttahreyfingar, sem fagna uppbyggingu en telja forgangsröðun furðulega. Innlent 1. júlí 2024 10:28
Löng barátta XD fyrir jafnrétti og frelsi Við sjálfstæðismenn gátum glaðst yfir mörgu við þinglok. Eitt af því var hækkun á hámarksgreiðslum í fæðingarorlofi sem þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa stutt ötullega. Við þinglega meðferð gerði meirihluti velferðarnefndar mikilvægar breytingar á málinu á þann veg að hækkunin gildi fyrir alla þá sem eiga rétt á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði. Skoðun 1. júlí 2024 07:00
Grafarvogsbúar þurfi ekki að óttast blokkir Borgarstjóri segir áhyggjur íbúa Grafavogs af fyrirhugaðri uppbyggingu í hverfinu óþarfar. Enginn sé að fá margra hæða blokk í bakgarðinn hjá sér. Innlent 30. júní 2024 15:01