Íslensk tónlist undir smásjá erlendra stórfyrirtækja Tónlistarkonan Lay Low stefnir hraðbyri í að verða næsta stjarna Íslands á alþjóðavísu því að minnsta kosti tveir áhrifamiklir erlendir aðilar hafa sýnt mikinn áhuga á hennar verkum. Tónlist 19. október 2008 08:00
Nýtt lag í stað plötu Hljómsveitin Á móti sól hefur sent frá sér lagið Sé þig seinna, sem er eftir hljómborðsleikarann Heimi Eyvindarson. Um hugljúft og grípandi popplag er að ræða sem var tekið upp í Lundgård-hljóðverinu í Danmörku í sumar og í hljóðverinu Sýrlandi í haust. Hægt er að heyra lagið á bloggsíðu hljómsveitarinnar, www.amotisol.blog.is Tónlist 19. október 2008 06:00
Snúður og strengir Plötusnúðurinn Dj Margeir spilar á Nasa á Iceland Airwaves-hátíðinni í kvöld ásamt níu manna strengjasveit. Stjórnandi sveitarinnar verður básúnuleikarinn Samúel Jón Samúelsson, auk þess sem hann útsetur strengjahlutann. Tónlist 19. október 2008 05:00
Þrjár milljónir seldust Platan In Rainbows með Radiohead hefur selst í rúmum þremur milljónum eintaka síðan hún kom út fyrir ári síðan. Er þá bæði átt við netsölu og sölu í plötubúðum. Þetta kom fram í ávarpi Jane Dyball á ráðstefnunni You Are In Control sem lauk nýverið á Hótel Sögu. Tónlist 19. október 2008 02:30
Dóttirin syngur aftur með Bubba í Köben Gréta Morthens, dóttir Bubba, stígur á svið með föður sínum á tónleikum hans í salnum Audience í Kaupmannahöfn í kvöld. Stutt er síðan þau sungu saman á eftirminnilegan hátt lagið Með þér í þætti Ragnhildar Steinunnar, Gott kvöld. Núna munu þau endurtaka leikinn en í þetta sinn verður það fyrir framan hátt í eitt þúsund aðdáendur kappans, bæði íslenska og erlenda. Tónlist 18. október 2008 05:30
Iceland Airwaves: Dagur 4 Feitustu bitarnir í Hafnarhúsinu „Stærstu“ sveitir Airwaves-hátíðarinnar koma fram í kvöld í Hafnarhúsinu. Þetta er brasilíska gleðipönksveitin CSS og Kanarnir í háskólarokkbandinu Vampire Weekend. Tónlist 18. október 2008 04:00
Berbrjósta stúlka á umslagi Berbrjósta skosk stúlka prýðir umslag fyrstu plötu hljómsveitarinnar The Viking Giant Show, The Lost Garden of the Hooligans, sem er nýkomin út. Tónlist 18. október 2008 03:15
Íslenskt ofurkvöld Iceland Airwaves-hátíðin rann af stað með stæl á miðvikudagskvöldið. Allir staðir fullir. Sú nýbreytni var tekin upp í ár að láta nokkrar af heitustu íslensku sveitunum spila tvisvar á hátíðinni. Tónlist 17. október 2008 09:00
Góður túr Hljómsveitin GusGus er nýkomin heim úr stuttri tónleikaferð um Japan og var sveitinni gríðarlega vel tekið. Þetta var í fyrsta sinn sem sveitin spilaði þar í landi og flutti hún að mestu nýtt efni á aðaltónleikunum sem haldnir voru í risastórri tónleikahöll, Makuhari Messe. Tilefni tónleikanna var þrjátíu ára afmæli tískusamsteypunnar Diesel. Tónlist 17. október 2008 07:00
Sling veldur flogaveiki Hljómsveitin Singapore Sling býður í dag til hlustunarteitis á nýju plötu sinni „Perversion, Desperation and Death“ í Gallery Lost Horse, Skólastræti, á milli kl. 18-20. Einnig verður sýnt myndband Þjóðverjans Uli Schueppel við lagið „Godman“, en það var bannað á MTV-Europe. Tónlist 17. október 2008 07:00
ICELAND AIRWAVES: DAGUR 3 Sænsk fjölskylda snýr hausum Á Tunglið er vissara að mæta í léttum klæðnaði sem þolir bleytu í kvöld. Gestir geta nefnilega átt von á þéttri svitakeyrslu fram undir morgun. Hryggjarstykki kvöldsins eru tónleikar sænsku rafpoppsveitarinnar Familjen. Tónlist 17. október 2008 05:00
Sílspikað í Hafnarhúsinu Spikfeitt tónlistarkvöld bíður gesta á Airwaves í kvöld og eflaust verður sílspikaðasta upplifunin á Listasafni Reykjavíkur. Þar spila þrjár áhugaverðar erlendar sveitir í beit. Tónlist 16. október 2008 06:00
Skautalag komið út Hljómsveitin Ghostigital hefur gefið út nýtt lag sem nefnist Hoovering Hoover Skates, eða Svífandi ryksuguskautar. Fjallar textinn um uppfinningamann sem er í skýjunum yfir nýjasta sköpunarverki sínu. Listahópurinn Weird Girls hefur búið til myndband við lagið þar sem hjólaskautar leika stórt hlutverk. Tónlist 16. október 2008 05:00
Reykjavík! í sandpappír Útgáfan Kimi Records frá Akureyri heldur sérstakt Kima-kvöld á Tunglinu (Gauki á Stöng). Boðið er upp á eðaldagskrá. Mexíkóska einmenningssveitin Halo Between hefur leik kl. 19, svo koma Hellvar, Morðingjarnir, Borko, Benni Hemm Hemm, Hjaltalín, Retro Stefson og Reykjavík! Tónlist 15. október 2008 07:00
Klezmer á konsert Það var fullt á sunnudagskvöld í Neskirkju þegar söngsveitin Fílharmónía hélt þar tónleika á sunnudag. Í kvöld gefst öllum þeim sem misstu af sunnudagstónleikunum tækifæri til að mæta og sjá og heyra kórinn flytja þjóðlagatónlist gyðinga frá Austur-Evrópu, klezmer, sem hefur átt sívaxandi vinsældum að fagna hér á landi á liðnum árum. Tónlist 15. október 2008 06:15
Kaótískt ástand í bransanum Anthony Volodkin, stofnandi einnar mikilvægustu tónlistarsíðu internetsins, Hype Machine (hypem.com), er staddur hérlendis til að taka þátt í tónlistarráðstefnunni You Are in Control á vegum Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar. Steinþór Helgi Arnsteinsson ræddi við Anthony um framtíðina í tónlist. Tónlist 15. október 2008 05:45
Gefa út blað um Airwaves Tímaritið Reykjavík Grapevine stendur fyrir daglegri útgáfu tónlistarblaðsins Grapevine Airwaves á meðan tónlistarhátíðin Iceland Airwaves stendur yfir. Tónlist 15. október 2008 05:15
Tónleikar í Hljómalind Fjöldi hljómsveita kemur fram á kaffihúsinu Hljómalind meðan á Iceland Airwaves stendur, dagana 15. til 19. október. Á meðal þeirra verða breska sveitin Florence and the Machine, Jamie de Moon frá Bandaríkjunum, Digital Madness, Sagtmóðigur, Dys og Mai Chi frá Bretlandi. Tónlist 15. október 2008 05:00
Söngkonur í aðalhlutverki „Ég talaði við stelpur sem mig langaði til að sjá spila og við ákváðum að stofna Trúbatrixur sem yrði grundvöllur fyrir okkur allar til að koma okkur á framfæri,“ segir tónlistarkonan Myrra Rós Þrastardóttir um Trúbatrixur sem samanstanda af þjóðþekktum og upprennandi íslenskum söngkonum. Tónlist 15. október 2008 03:30
Hana-nú endurútgefin Viðhafnarútgáfa á sígildri plötu Vilhjálms Vilhjálmssonar, Hana-nú, er nýkomin út. Á plötunni er að finna lagið Tölum saman sem átti að vera á upphaflegu plötunni árið 1977 en heltist úr lestinni. Tónlist 14. október 2008 06:00
Tjáir sig um plötu Radiohead Jane Dyball, sem er háttsett hjá útgáfufyrirtæki Radiohead, Warner Chapell Music, hefur í hyggju að greina frá nýjum upplýsingum um útgáfu plötunnar In Rainbows á ráðstefnunni You Are In Control, sem hefst á Íslandi á morgun. Tónlist 14. október 2008 05:30
Frábærar viðtökur í New York Ólöf Arnalds spilaði nýverið á þrennum tónleikum í New York. Tónlistarsjóðurinn Kraumur og íslenski konsúllinn í New York lögðu Ólöfu lið og ferðin tókst með eindæmum vel. Tónlist 13. október 2008 06:15
Chinese í nóvember Fyrsta plata rokksveitarinnar Guns N"Roses í fimmtán ár, Chinese Democracy, er væntanleg í verslanir 23. nóvember. Tónlist 13. október 2008 03:30
Antony með nýja plötu Stimamjúki risinn Antony hefur loks tilkynnt um næstu plötu. Hún heitir The Crying Light og á að koma út í janúar. Tónlist 13. október 2008 03:00
Lifandi hiphop Tónlistarmaðurinn Jóhannes Birgir Pálmason, sem kallar sig Rain, er að gefa út sína fimmtu sólóplötu, No Strings Attached. Tónlist 13. október 2008 02:30
Spila í Eyjum Hljómsveitin Mezzoforte heldur tónleika í Höllinni í Vestmannaeyjum á fimmtudag. Sveitin ætlar jafnframt að leggja drög að plötu í nýju hljóðveri í Vestmannaeyjum, Island Studios. Tónlist 8. október 2008 08:00
Októberfest í fimmta sinn Októberfest verður haldin í fimmta sinn á lóð Háskóla Íslands frá fimmtudegi til laugardags. Hátíðin hefur aldrei verið stærri og hefur Stúdentaráð fengið viðburðafyrirtækið Am Events sér til aðstoðar við að gera hátíðina sem glæsilegasta þetta árið. Tónlist 8. október 2008 08:00
Spila með hetjunum Aðdáendum The Rolling Stones, Bítlanna, Beach Boys og Pink Floyd gefst í nóvember sjaldgæft tækifæri til að spila með hetjunum sínum á rokknámskeiði á Englandi. Tónlist 8. október 2008 07:00
Coldplay sigursæl Hljómsveitin Coldplay vann tvenn verðlaun á Q-hátíðinni í London, þar á meðal fyrir plötu ársins, Viva La Vida or Death And All His Friends. Einnig var Coldplay valin besta hljómsveitin í heiminum í dag og bar þar sigurorð af Metallica, Muse, Kings of Leon og Oasis. Tónlist 8. október 2008 05:00
Mjallhvít og Rúnar á svið Hljómsveitin Hvar er Mjallhvít? heldur útgáfutónleika í Iðnó á fimmtudagskvöld til að kynna sína fyrstu plötu. Ýmsir gestir koma við sögu á tónleikunum, þar á meðal goðsögnin Rúnar Júlíusson, sem mun taka lagið. Tónlist 8. október 2008 05:00