Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Ein flugvél er farin í loftið frá Keflavíkurflugvelli og aðrar eru að gera sig klárar, flugferðir frá vellinum hafa legið niðri síðan í morgun vegna veðurs. Innlent 25. desember 2024 16:57
Þak fauk nánast af hlöðu Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli var kölluð út fyrr í dag vegna hættu á að þak á hlöðu á bæ rétt suður af Hvolsvelli myndi fjúka. Vel tókst til að tryggja að þakið lyftist ekki af, en 10 manns komu að verkinu sem var lokið um hálf þrjú í dag. Innlent 25. desember 2024 16:34
Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Vegagerðin býst ekki við því að hægt verði að opna Hellisheiði og Þrengsli í dag samkvæmt veðurspá. Hún bendir á Suðurstrandarveg til Grindavíkur sem hjáleið en að þar sé hvasst, hálka og éljagangur. Innlent 25. desember 2024 14:29
Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Búið er að aflýsa flestum flugferðum til og frá Keflavíkurflugvelli vegna veðurs það sem af er degi, og verður staðan endurmetin í kvöld. Aðeins ein flugvél hefur lent á flugvellinum í dag, flugvél frá Play sem lenti rétt fyrir klukkan 14. Innlent 25. desember 2024 14:17
Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Björgunarsveitir höfðu í nógu að snúast á aðfangadagskvöld og jólanótt, en slæm færð og vonskuveður hefur víða einkennt upphaf jólahátíðarinnar. Lokunarpóstar eru við Hellisheiði, og veðurviðvaranir í gildi inn í morgundaginn. Innlent 25. desember 2024 11:42
Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Jólahretið er hressilegt þennan jóladagsmorgun. Búast má við suðvestanátt í dag með hvassviðri eða stormi víða með dimmum éljum, einkum um landið sunnan- og vestanvert. 15-25 m/s og frosti frá 0 og upp í 5 stig. Veður 25. desember 2024 07:32
Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi á vegum víða um landið vegna veðurs. Varað er við því að vegir gætu lokast með litlum fyrirvara. Innlent 24. desember 2024 15:59
Varað við ferðalögum víða um land Varað er við ferðalögum víða um land í kvöld vegna veðurs og gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi víða í kvöld og í nótt. Sannkallaður jólastormur er í aðsigi og upplýsingafulltrúi Landsbjargar hvetur fólk til að halda sig heima með konfekt í skál í kvöld. Innlent 24. desember 2024 13:28
Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar Veðurspá aðfangadags er miður spennandi en samkvæmt henni stefnir í sannkallað jólahret. Búast má við suðvestanátt í dag, 8-15 m/s og hita í kringum frostmark en síðdegis hvessir rækilega. Veður 24. desember 2024 07:29
Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Björgunarsveitir úr Húnavatnssýslu og uppsveitum Borgarfjarðar voru kallaðar út fyrr í kvöld eftir að tvær rútur lentu í vandræðum sökum hálku og vonskuveðurs á Holtavörðuheiði. Önnur rútan ók út af veginum. Holtavörðuheiðinni hefur verið lokað sökum veðurs. Innlent 23. desember 2024 20:50
Komust með flugvélinni á ögurstundu Næstum öllu innanlandsflugi var aflýst í dag vegna veðurs og annar jólastormur er í kortunum. Fjöldi örvæntingarfullra símtala barst Icelandair, sem mun bæta við ferðum á morgun ef þörf krefur. Fréttastofa ræddi við farþega sem komust heim fyrir jól, með einu innanlandsvélinni sem tók á loft í dag. Innlent 23. desember 2024 19:32
Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Tómas Guðbjartsson læknir er í óðaönn að reyna komast heim til fjölskyldunnar fyrir jólin. Hann segir ekkert ferðaveður vera á Vestfjörðum en að hans sögn hefði hann verið allur ef hann hefði verið mínútu fyrr á ferðinni þar sem að snjóflóð féll við Skorarnúp rétt áður en hann keyrði fram hjá fjallinu. Innlent 23. desember 2024 18:39
„Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Varasamt ferðaveður er víða á landinu í dag, og verður einkum norðan- og norðaustanlands í kvöld. Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst fram yfir hádegi og vegum gæti verið lokað án fyrirvara. Þá er spáð jólastormi á sunnan- og vestanverðu landinu á morgun og hinn. Innlent 23. desember 2024 11:58
Flugferðum aflýst Öllum flugferðum innanlands í morgun hefur verið aflýst vegna veðurs. Fljúga átti vélum Icelandair til Akureyrar, Egilsstaða og Ísafjarðar fyrir hádegi auk flugvéla frá Mýflugi á Hornafjörð og Norlandair á Bíldudal. Innlent 23. desember 2024 10:19
Vegur að Patreksfirði lokaður vegna snjóflóðs Eitt lítið snjóflóð féll niður í Raknadalshlíð í morgun. Vegur að Patreksfirði er lokaður. Innlent 23. desember 2024 10:14
Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Gul viðvörun er í gildi á stórum hluta landsins og víða hvasst og hált. Þrengsli eru lokuð og Krýsuvíkurvegur. Allt norðanvert Snæfellsnes er ófært og fjöldi vega á Vesturlandi á óvissustigi og verða það þar til klukkan 21 í kvöld. Veður 23. desember 2024 06:52
Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Segja má að veðurspáin fyrir morgundaginn sé í ömurlegri kantinum, rigning og rok. Veðurfræðingur spáir þó hvítum jólum um mest allt land en spáin er varasöm á aðfangadag og viðbúið að færð verði slæm í einhverjum landshlutum. Gular veðurviðvaranir eru í gildi um mest allt landið í nótt og í fyrramálið og almannavarnir hvetja vegfarendur til að sýna aðgát þar sem færð getur spillst snögglega. Innlent 23. desember 2024 00:10
Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum Spáð er suðaustanstormi á vestanverðu landinu í nótt og til morguns, og hríðarveðri norðanlands annað kvöld. Gul veðurviðvörun tekur gildi eftir miðnætti um allt land fyrir utan austfirði og suðausturland. Vegir gætu víða orðið mjög hálir meðan snjó og klaka leysir. Innlent 22. desember 2024 11:10
Útlit fyrir svalasta árið í Reykjavík í þrjátíu ár Allt stefnir nú í að árið sem er að líða verði það svalasta í Reykjavík í tæp þrjátíu ár. Veðurfræðingur segir hitafarið í ár bera mörg einkenni kalds tímabils sem stóð yfir í þrjátíu ár á síðustu öld. Innlent 19. desember 2024 11:07
Ákveðin suðaustanátt og víða snjókoma Lægð nálgast nú landið úr vestri og fylgir henni ákveðin suðaustanátt seinnipartinn og snjókoma með köflum á Suður- og Vesturlandi, en slydda eða rigning við ströndina. Veður 19. desember 2024 06:58
Stíf norðanátt og frost í flestum landshlutum Við Skotland er nú öflug og dýpkandi lægð á norðausturleið, sem veldur stífri norðan- og norðvestanátt hér á landi í dag og hvössum vindstrengjum undir Vatnajökli. Veður 18. desember 2024 07:15
Köldu éljalofti beint til landsins Milli Íslands og Grænlands er nú hægfara lægð sem beinir köldu éljalofti yfir vestanvert landið. Það mun þó draga heldur úr éljagangi í kvöld. Veður 17. desember 2024 07:12
„Bíðum í ofvæni eftir veðurspá næstu daga“ Snjór þekur nú götur og stræti á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Skrifstofustjóri borgarlandsins segir vetrarþjónustu hefjast í borginni í fyrramálið og að beðið sé í ofvæni eftir veðurspá næstu daga. Innlent 16. desember 2024 21:16
Talsverðar líkur á hvítum jólum Jólasnjór hylur nú götur á höfuðborgarsvæðinu og víðar um land nú þegar átta dagar eru til jóla. Og þá er ekki úr vegi að spyrja veðurfræðing hvort jólin verði hvít eða rauð í ár, spár liggja fyrir. Innlent 16. desember 2024 12:02
Víða kaldi og él Grunn og hægfara lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu á landinu í dag. Áttin verður suðvestlæg eða breytileg, víða gola eða kaldi og él, en yfirleitt þurrt norðaustan- og austanlands. Veður 16. desember 2024 07:10
Óttast að mörg hundruð muni deyja vegna fellibylsins Chido Óttast er að fjöldi látinna í franska eyjaklasanum Mayotte verði nokkur hundruð eftir að fellibylurinn Chido reið þar yfir á laugardagsnótt. Ellefu eru þegar látnir og um 250 slasaðir. Erlent 15. desember 2024 21:34
Lægð beinir vestlægri átt til landsins Lægð fyrir norðan land beinir til Íslands vestlægri átt. Því verða víða 8 til 15 metrar á sekúndu og él. Það verður þurrt að mestu austan til á landinu. Eftir hádegi fjarlægist lægðin og það dregur úr vindi. Frost yfirleitt 0 til 5 stig, en hiti í kringum frostmark við suður- og suðvesturströndina. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar í dag. Veður 15. desember 2024 07:37
Hlýnar með skúrum og slydduéljum Í dag snýst í suðvestlæga átt og 10 til 18 metra á sekúndu. Það hlýnar með skúrum og slydduéljum en verður úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti verður á bilinu 0 til 6 stig eftir hádegi. Veður 14. desember 2024 08:01
Stormur á Austfjörðum Veðurstofan gerir ráð fyrir norðvestan hvassviðri á austanverðu landinu og stormi á Austfjörðum þar sem gul viðvörun tekur gildi fyrir hádegi. Veður 13. desember 2024 07:20
Bið eftir aðgerð vegna hálkuslyss óboðleg af hálfu kerfisins Hjúkrunarfræðingur sem þarf að bíða í allt að tvær vikur eftir aðgerð vegna alvarlegs beinbrots segir innviði heilbrigðiskerfisins ekki bera það sem þarf. Hún er meðal fjölda fólks sem beinbrotnaði í hálkuslysi í síðustu viku og segir ástandið á heilbrigðiskerfinu óboðlegt. Innlent 12. desember 2024 20:46
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent