Formaður bæjarráðs Garðabæjar aðstoðar Áslaugu Örnu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur ráðið Áslaugu Huldu Jónsdóttur sem tímabundinn aðstoðarmann í fjarveru Eydísar Örnu Líndal, sem er í fæðingarorlofi. Innlent 20. apríl 2022 09:43
Lilja Dögg ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Takanawa Lilja Dögg Jónsdóttir, sem hefur undanfarið starfað á skrifstofu stefnumála í forsætisráðuneytinu, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Takanawa. Klinkið 20. apríl 2022 09:01
Tekur við starfi markaðsstjóra Öskju Sigríður Rakel Ólafsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Bílaumboðsins Öskju. Viðskipti innlent 19. apríl 2022 12:54
Þaulsætnir embættismenn í íslenskri stjórnsýslu Innherji greindi frá því í síðustu viku að forstjórar Fjarskiptastofu og Samkeppniseftirlitsins hefðu setið lengur í embætti en gengur og gerist á Norðurlöndum. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu hefur setið í 20 ár, mun lengur en norrænir starfsbræður hans, og það sama gildir um Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, sem hefur stýrt stofnuninni í nærri 17 ár. Klinkið 19. apríl 2022 10:26
Ragnar frá Póstinum til Tix Ragnar Skúlason hefur verið ráðinn til að leiða hugbúnaðarþróun hjá Tix Ticketing. Hann kemur frá Póstinum þar sem hann var teymisstjóri hugbúnaðarþróunar í upplýsingatæknideild. Ragnar er með tuttugu ára reynslu og þekkingu af hugbúnaðargerð. Viðskipti innlent 19. apríl 2022 10:20
Kristján snýr aftur til Kviku banka Mikið var um hrókeringar í bankakerfinu á síðustu dögum fyrir páska þegar að tveir lykilstjórnendur í Arion banka og Kviku sögðu upp störfum til að taka við stjórnartaumunum í SKEL fjárfestingafélagi. Klinkið 19. apríl 2022 08:41
Ásdís Halla nýr ráðuneytisstjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefr skipað Ásdísi Höllu Bragadóttur í embætti ráðuneytisstjóra. Alls sóttu átta um stöðuna, sem var auglýst 3. febrúar og rann umsóknarfrestur út 28. febrúar. Innlent 13. apríl 2022 16:55
Siggi Gunnars nýr tónlistarstjóri Rásar 2 Sigurður Þorri Gunnarsson, betur þekktur sem Siggi Gunnars, hefur verið ráðinn tónlistarstjóri Rásar 2. Siggi starfaði áður sem dagskrár- og tónlistarstjóri útvarpsstöðvarinnar K100. Viðskipti innlent 13. apríl 2022 11:38
Arna Dögg nýr yfirlæknir líknarlækninga Arna Dögg Einarsdóttir hefur verið ráðin nýr yfirlæknir líknarlækninga á Landspítala og tekur við stöðunni þann 1. maí 2022. Hún hefur starfað við líknarlækningar frá árinu 2010 við líknardeild spítalans, í sérhæfðri líknarheimaþjónustu og líknarráðgjafateymi. Innlent 12. apríl 2022 23:19
Þau sóttu um skrifstofustjórastöður í innviðaráðuneytinu Alls sótti 21 um stöðu skrifstofustjóra sveitarfélaga- og byggðamála í innviðaráðuneytinu sem auglýst var laust til umsóknar á dögunum. Þá sóttu þrettán um stöðu skrifstofustjóra húsnæðis- og skipulagsmála í sama ráðuneyti. Innlent 12. apríl 2022 14:06
Arion ræður nýjan regluvörð og nýja forstöðumenn Arion banki hefur ráðið Andrés Fjeldsted í starf regluvarðar, Elísabetu Árnadóttur í starf forstöðumanns lítilla og meðalstórra fyrirtækja á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði og Hreiðar Má Hermannsson í starf forstoðumanns fyrirtækjaráðgjafar bankans. Viðskipti innlent 12. apríl 2022 12:44
Lilja nýr stöðvarstjóri Póstsins á Akureyri Lilja Gísladóttir hefur verið ráðin stöðvarstjóri Póstsins á Akureyri frá og með 1. maí. Lilja hefur starfað hjá Póstinum frá árinu 2002, fyrst sem þjónustufulltrúi og síðar sem þjónustustjóri. Viðskipti innlent 12. apríl 2022 11:19
Sólveig ráðin framkvæmdarstjóri Saga Natura Sólveig Stefánsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækisins Saga Natura og tekur hún við starfinu af Lilju Kjalarsdóttur sem tekur við nýrri stöðu hjá lyfjafyrirtækinu Alvotech. Viðskipti innlent 11. apríl 2022 15:02
Guðni stýrir einum stærsta banka Katars Íslenski bankamaðurinn Guðni Aðalsteinsson, sem var á meðal stjórnenda Kaupþings banka þangað til hann féll haustið 2008, hefur verið ráðinn tímabundið sem forstjóri Doha Bank, sem er einn stærsti bankinn í Katar. Klinkið 11. apríl 2022 14:54
Sólrún ráðin framkvæmdastýra Veitna Stjórn Veitna hefur ráðið Sólrúnu Kristjánsdóttur í starf framkvæmdastýru Veitna og tekur hún formlega við starfinu 1. maí næstkomandi. Viðskipti innlent 11. apríl 2022 12:34
Jón Finnbogason ráðinn framkvæmdastjóri Stefnis Jón Finnbogason, sem hefur undanfarin ár verið forstöðumaður fyrirtækja innan fyrirtækja- og fjárfestingabankasviðs Arion banka, hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri sjóðastýringarfélagsins Stefnis, dótturfélags Arion og mun hefja störf í byrjun næsta mánaðar. Innherji 11. apríl 2022 12:27
Jón Fannar nýr forstjóri Nanitor Jón Fannar Karlsson Taylor hefur verið ráðinn sem forstjóri íslenska netöryggisfyrirtækisins Nanitor. Viðskipti innlent 11. apríl 2022 09:00
Matthías í Hatara til Brandenburg Matthías Tryggvi Haraldsson hefur verið ráðinn sem texta- og hugmyndasmiður á auglýsingastofunni Brandenburg. Viðskipti innlent 8. apríl 2022 11:19
Ingvar nýr framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma Ingvar Stefánsson viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma (KGRP) frá og með 1. maí næstkomandi. Hann tekur við starfinu af Þórsteini Ragnarssyni sem gengt hefur starfi forstjóra síðastliðin rúm 26 ár. Viðskipti innlent 8. apríl 2022 09:59
Benedikt ráðinn teymisstjóri hjá Póstinum Benedikt Þorgilsson hefur verið ráðinn sem teymisstjóri hugbúnaðarþróunar í upplýsingatæknideild hjá Póstinum, og hefur þegar hafið störf. Hann mun hafa yfirumsjón með hugbúnaðarteymi Póstsins og leiða verkefni sem tengjast ytri kerfum. Viðskipti innlent 8. apríl 2022 09:46
Ásgeir nýr forstjóri SKEL og Iða Brá tekur við sem aðstoðarbankastjóri Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason lætur af störfum sem aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs Arion banka og tekur við sem nýr forstjóri SKEL fjárfestingarfélags, sem áður hét Skeljungur. Viðskipti innlent 7. apríl 2022 09:25
Stjórnendakapall í Kauphöllinni: Ásgeir og Magnús taka við stjórn SKEL Fjárfestingafélagið SKEL hefur ráðið Ásgeir Helga Reykfjörð Gylfason, aðstoðarbankastjóra Arion banka, í starf forstjóra og Magnús Inga Einarsson, framkvæmdastjóra bankasviðs Kviku banka, í starf fjármálastjóra félagsins. Þetta kemur fram í tilkynning fjárfestingafélagsins til Kauphallarinnar. Innherji 7. apríl 2022 09:18
Þjóðminjavörður skipaður skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður hefur verið skipuð í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu innri þjónustu í forsætisráðuneytinu. Margrét hefur gegnt stöðu þjóðminjavarðar frá árinu 2000. Innlent 6. apríl 2022 11:21
Ari Brynjólfsson hættur sem fréttastjóri Fréttablaðsins Ari Brynjólfsson hefur tekið við sem nýr kynningarstjóri Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hann lét af störfum á Fréttablaðinu um síðustu mánaðamót þar sem hann hafði verið fréttastjóri frá því í febrúar 2020. Innlent 5. apríl 2022 15:13
Ráðin verkefnastjóri lýðheilsumála hjá Krónunni Fanney Bjarnadóttir hefur hafið störf sem verkefnastjóri lýðheilsumála hjá Krónunni. Viðskipti innlent 5. apríl 2022 09:26
Sigurjón nýr aðstoðarmaður Willums Þórs Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Sigurjón Jónsson tímabundið sem aðstoðarmann sinn í fjarveru Millu Óskar Magnúsdóttur sem er í fæðingarorlofi. Innlent 4. apríl 2022 15:14
Harpa Ósk kjörin nýr skátahöfðingi Harpa Ósk Valgeirsdóttir var í gær kjörin nýr skátahöfðingi Íslands. Hún var sjálfkjörin enda vilja skátar ekki það vesen sem fylgir kosningaslag og eru samstíga, að sögn Hörpu Óskar. Innlent 2. apríl 2022 20:56
Kveðst hafa verið sagt upp á Fréttablaðinu af pólitískum ástæðum Helgi Vífill Júlíusson, fráfarandi fréttastjóri Markaðarins, segir það hafa komið sér verulega í opna skjöldu þegar honum var sagt upp störfum með minna en tveggja daga fyrirvara. Greinilegt sé að pólitísk, frekar en fagleg sjónarmið hafi ráðið för. Innlent 1. apríl 2022 16:50
Guðmundur nýr fréttastjóri Markaðarins Guðmundur Gunnarsson, fréttamaður og fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, hefur verið ráðinn fréttastjóri Markaðarins, viðskiptarits Fréttablaðsins. Hann hóf störf í morgun en Guðmundur er með meistaragráðu í viðskiptafræði og starfaði sem fréttamaður á RÚV árin 2006 til 2011. Viðskipti innlent 1. apríl 2022 13:33
Sóley ráðin í stöðu aðalsamningamanns í fiskveiðisamningum Sóley Kaldal hefur verið ráðin í stöðu aðalsamningamanns í fiskveiðisamningum hjá matvælaráðuneytinu. Síðustu ár hefur hún leitt alþjóðasamskipti hjá Landhelgisgæslunni. Innlent 1. apríl 2022 12:58