Sigurjón nýr aðstoðarmaður Willums Þórs Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Sigurjón Jónsson tímabundið sem aðstoðarmann sinn í fjarveru Millu Óskar Magnúsdóttur sem er í fæðingarorlofi. Innlent 4. apríl 2022 15:14
Harpa Ósk kjörin nýr skátahöfðingi Harpa Ósk Valgeirsdóttir var í gær kjörin nýr skátahöfðingi Íslands. Hún var sjálfkjörin enda vilja skátar ekki það vesen sem fylgir kosningaslag og eru samstíga, að sögn Hörpu Óskar. Innlent 2. apríl 2022 20:56
Kveðst hafa verið sagt upp á Fréttablaðinu af pólitískum ástæðum Helgi Vífill Júlíusson, fráfarandi fréttastjóri Markaðarins, segir það hafa komið sér verulega í opna skjöldu þegar honum var sagt upp störfum með minna en tveggja daga fyrirvara. Greinilegt sé að pólitísk, frekar en fagleg sjónarmið hafi ráðið för. Innlent 1. apríl 2022 16:50
Guðmundur nýr fréttastjóri Markaðarins Guðmundur Gunnarsson, fréttamaður og fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, hefur verið ráðinn fréttastjóri Markaðarins, viðskiptarits Fréttablaðsins. Hann hóf störf í morgun en Guðmundur er með meistaragráðu í viðskiptafræði og starfaði sem fréttamaður á RÚV árin 2006 til 2011. Viðskipti innlent 1. apríl 2022 13:33
Sóley ráðin í stöðu aðalsamningamanns í fiskveiðisamningum Sóley Kaldal hefur verið ráðin í stöðu aðalsamningamanns í fiskveiðisamningum hjá matvælaráðuneytinu. Síðustu ár hefur hún leitt alþjóðasamskipti hjá Landhelgisgæslunni. Innlent 1. apríl 2022 12:58
Rósbjörg ráðin framkvæmdastjóri Orkuklasans Rósbjörg Jónsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri íslenska Orkuklasans og mun hún taka við af Alexander Richter sem hverfur til annarra starfa nú um mánaðarmótin. Viðskipti innlent 1. apríl 2022 11:12
Fyrrverandi aðstoðarseðlabankastjóri ráðinn til forsætisráðuneytisins Arnór Sighvatsson, fyrrverandi aðstoðarseðlabankastjóri, hefur verið ráðinn sem hagfræðingur á skrifstofu stefnumála hjá forsætisráðuneytinu samkvæmt starfsmannalista ráðuneytisins. Klinkið 1. apríl 2022 11:06
Ágúst Hjörtur nýr forstöðumaður Rannís Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur skipað Ágúst Hjört Ingþórsson forstöðumann Rannsóknarmiðstöðvar Íslands frá 1. apríl. Viðskipti innlent 1. apríl 2022 10:58
Anna Kristín nýr formaður SÍA Anna Kristín Kristjánsdóttir var kjörin formaður Samtaka íslenskra auglýsingastofa (SÍA) á aðalfundi samtakanna sem fram fór í gær. Fráfarandi formaður er Guðmundur Hrafn Pálsson frá Pipar/TWBA. Viðskipti innlent 1. apríl 2022 08:11
Hrafnhildur ráðin upplýsingafulltrúi úr hópi sjötíu umsækjenda Hrafnhildur Helga Össurardóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins, nýs ráðuneytis Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur. Hrafnhildur hefur störf í apríl. Innlent 31. mars 2022 13:05
Ela Zakaim gengur til liðs við lögmannastofuna BBA//Fjeldco Enski lögmaðurinn Ela Zakaim hefur gengið til liðs við BBA//Fjeldco og starfar á skrifstofu lögmannastofunnar í London. Klinkið 31. mars 2022 12:50
Hólmfríður nýr rektor á Hólum Hólmfríður Sverrisdóttir hefur verið skipuð rektor Háskólans á Hólum frá og með 1. júní 2022. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar, tilkynnti skipun nýs rektors á starfsmannafundi Háskólans á Hólum í dag. Innlent 31. mars 2022 10:27
Guðmundur Andri verður aðstoðarmaður Loga Guðmundur Andri Thorsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar. Klinkið 31. mars 2022 10:01
Tekur við starfi samskiptastjóra BSRB Freyja Steingrímsdóttir hefur verið ráðin nýr samskiptastjóri BSRB og mun hún hefja þar störf um mánaðarmótin. Viðskipti innlent 31. mars 2022 09:22
Arna Björg til Creditinfo og Kári í nýtt starf Arna Björg Jónasdóttir hefur verið ráðin í stöðu viðskiptastjóra hjá Creditinfo. Hún tekur við stöðunni af Kára Finnssyni sem tekur við stöðu markaðs- og fræðslustjóra félagsins. Viðskipti innlent 31. mars 2022 08:53
Tekur við starfi markaðsstjóra Kaptio Hugbúnaðarfyrirtækið Kaptio hefur ráðið Alondru Silva Munoz sem markaðsstjóra fyrirtækisins. Hún mun stýra teymi innan Kaptio sem hafi það að markmiði að auka sýnileika og vöxt félagsins. Viðskipti innlent 30. mars 2022 09:38
Ráðin kynningar- og markaðsstjóri Listasafns Reykjavíkur Nathalía Druzin Halldórsdóttir hefur verið ráðin sem kynningar- og markaðsstjóri Listasafns Reykjavíkur. Menning 29. mars 2022 14:39
Sigurður Hannesson nýr stjórnarformaður Sinfóníunnar Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins hefur tekið við sem stjórnarformaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands af Sigurbirni Þorkelssyni, sem hefur sinnt stöðunni síðan 2014. Menning 29. mars 2022 10:54
Hans nýr sviðsstjóri tæknisviðs Isavia ANS Hans Liljendal Karlsson hefur verið ráðinn nýr sviðsstjóri tæknisviðs hjá Isavia ANS og mun hann hefja störf í næsta mánuði. Viðskipti innlent 29. mars 2022 09:09
Fótboltakempa ráðin sölustjóri gæðalausna Origo Ísleifur Örn Guðmundsson hefur verið ráðinn sölustjóri gæða- og innkaupalausna hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo og verður hlutverk hans að stýra og efla sölustarf deildarinnar. Viðskipti innlent 28. mars 2022 13:59
Króli, Ásgeir, Alma og Johanne ráðin til Pipars\TBWA Auglýsingastofan Pipar\TBWA hefur ráðin til sín fjóra nýja starfsmenn, þau Ásgeir Tómasson, Ölmu Guðmundsdóttur, Kristinn Óla Haraldsson og Johanne Turk. Viðskipti innlent 28. mars 2022 09:28
Solveig Lára vígslubiskup á Hólum lætur af embætti Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, tilkynnti á kirkjuþingi sem hófst í morgun að hún hygðist láta af embætti 1. september næstkomandi. Innlent 26. mars 2022 14:11
Stefán Hrafn hættur hjá Landspítalanum og kominn til HR Stefán Hrafn Hagalín hefur látið af störfum hjá Reykjavíkurborg eftir stutt stopp á velferðarsviði borgarinnar og ráðið sig til starfa sem forstöðumaður samskipta og markaðsmála hjá Háskólanum í Reykjavík. Hann hætti hjá Landspítalanum í febrúar. Viðskipti innlent 25. mars 2022 13:19
Nýr formaður SGS segir átökin í hreyfingunni nauðsynleg Vilhjálmur Birgisson, nýkjörinn formaður Starfsgreinasambandsins, segir umboð sitt sem formaður ótvírætt. Mikilvægt sé að verkalýðssamtökin takist á um mál. En þegar stefnan liggi ljós fyrir þurfi allir að leggjast á eitt. Það sé samfélaginu til ævarandi skammar að lágmarkslaun dugi ekki fyrir nauðsynjum. Innlent 25. mars 2022 11:53
Aldís Mjöll og Guðríður Lára til þingflokks Samfylkingarinnar Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur ráðið þær Aldísi Mjöll Geirsdóttur og Guðríði Láru Þrastardóttur sem aðstoðarmenn þingflokksins. Innlent 25. mars 2022 07:15
Ívar ráðinn framkvæmdastjóri Ívar Gestsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Birtingahússins. Tekur hann við af Huga Sævarssyni sem hefur ákveðið að snúa sér að öðrum verkefnum eftir að hafa stýrt félaginu síðastliðin fimmtán ár. Klinkið 24. mars 2022 16:01
Tekur við stöðu forstöðumanns Hagfræðideildar Landsbankans Una Jónsdóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns Hagfræðideildar Landsbankans. Viðskipti innlent 24. mars 2022 15:23
Magnús Þór ráðinn forstjóri RARIK Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Faxaflóahafna, hefur verið ráðinn í starf forstjóra RARIK ohf. og tekur hann við starfinu 1. maí næstkomandi. Viðskipti innlent 24. mars 2022 09:57
EpiEndo stækkar stjórnendateymið með ráðningu Stefáns sem fjármálastjóra Lyfjaþróunarfyrirtækið EpiEndo Pharmaceuticals hefur ráðið Stefán Pétursson, sem stýrði fjármálasviði Arion banka í ellefu ár þangað til hann lét af störfum í fyrra, sem fjármálastjóra. Eftir ráðningu Stefáns eru starfsmenn fyrirtækisins orðnir 19 talsins og hefur fjöldi þeirra tvöfaldast frá því í september í fyrra. Innherji 24. mars 2022 09:15
Ráðinn ráðgjafi á skrifstofu Sameinuðu þjóðanna um eyðimerkursamninginn Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og þingmaður, hefur tekið við starfi ráðgjafa framkvæmdastjóra á skrifstofu Sameinuðu þjóðanna um samning stofnunarinnar um varnir gegn eyðimerkurmyndun. Stofnunin er með aðsetur í þýsku borginni Bonn. Innlent 24. mars 2022 07:49