Jón sat hjá Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, greiddi ekki atkvæði um vantrauststillögu á hendur Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra. Tillagan var felld með talsverðum meirihluta greiddra atkvæða. 20.6.2024 12:50
Greiða atkvæði um vantrauststillöguna Alþingismenn greiða atkvæði um vantrauststillögu Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, á hendur Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra á þingfundi dagsins. 20.6.2024 10:53
Wok On gjaldþrota WOKON ehf., sem hélt utan um veitingastaðakeðjuna Wok On, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Félagið er að fullu í eigu veitingamannsins Quang Lé, sem grunaður er um mansal og fleiri refsiverð brot. Annað félag í hans eigu, EA17 ehf., hefur sömuleiðis verið tekið til gjaldþrotaskipta. 20.6.2024 10:23
Biðla til veitingamanna að selja ekki lunda Umhverfisstofnun og umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið biðla til veiðimanna og veitingageirans að gæta hófs við lundaveiðar og sölu á lundakjöti. 20.6.2024 10:04
Steinunn Kristín ný í stjórn Varðar Steinunn Kristín Þórðardóttir hefur tekið sæti í stjórn Varðar trygginga. 20.6.2024 08:57
Saga ráðin aðalhagfræðingur Saga Guðmundsdóttir hefur verið ráðin aðalhagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hún hefur starfað sem hagfræðingur undanfarin 10 ár og í störfum sínum sinnt greiningum á stöðu og horfum í efnahags- og fjármálum. 20.6.2024 08:49
Bláa lónið kaupir Hoffell og stefnir á baðlón Bláa Lónið hf. hefur fest kaup á jörðinni Hoffell 2 í Austur-Skaftafellssýslu. Kaupin eru liður í áformum félagsins um uppbyggingu fleiri áhugaverðra áfangastaða á Íslandi. Markmiðið er að móta einstakan stað fyrir ferðamenn, við rætur Hoffellsjökuls og skapa segul sem styrkir Suðausturland sem áfangastað ferðamanna. 20.6.2024 08:40
Krefst fræðslu um gyðingahatur eftir að tólf ára stúlku var nauðgað Tveir þrettán ára drengir hafa verið ákærðir fyrir að nauðga tólf ára stúlku í Frakklandi. Stúlkan er gyðingur og segir drengina hafa viðhaft hatursorðræðu um hana á meðan þeir nauðguðu henni. Frakklandsforseti hefur beint því til skólakerfisins að efla fræðslu um gyðingahatur. 20.6.2024 08:03
Bein útsending: Kynna úttekt á samkeppnishæfni Íslands Viðskiptaráð Íslands býður til morgunfundar um niðurstöður nýrrar úttektar IMD á samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegum samanburði. Fundurinn hefst klukkan 09 í Borgartúni 35 og sýnt verður frá honum hér á Vísi. 20.6.2024 07:30
Tugmilljóna sekt og má ekki stunda rekstur Sverrir Halldór Ólafsson hefur verið dæmdur til tveggja ára skilorðsbundinnar fangelsisvistar og greiðslu 57 milljóna króna vegna stórfelldra skattalagabrota. Hann hefur keyrt sjö einkahlutafélög í þrot og hefur nú verið bannað að stunda atvinnurekstur í tvö ár. 19.6.2024 21:20
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn