Enn mikið sjónarspil á gosstöðvunum Talsvert sjónarspil er enn á gosstöðvunum milli Stóra-Skógfells og Hagafells, þar sem eldgos hófst á laugardagskvöld. 18.3.2024 19:17
Hvorki sakborningur né fórnarlamb kannast við skotárásina Ungur karlmaður sem sætir ákæru fyrir tilraun til manndráps við Silfratjörn í Úlfarsárdal í nóvember síðasta árs þvertók fyrir að hafa beitt skotvopni í árásinni. Sá sem varð fyrir skoti í árásinni kvaðst ekkert muna eftir árásinni. 18.3.2024 18:29
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Virkni í eldgosinu hefur haldist nokkuð stöðug síðan í gær og hrauntunga sem stefnir í átt að Suðurstrandavegi hreyfist hægt. Óttast er að barmur hrauntjarnar gæti brostið og hraun flætt hratt yfir veginn. Við ræðum við Magnús Tuma Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði í beinni um stöðuna í kvöldfréttum Stöðvar 2. 18.3.2024 18:05
Stefán Ingimar neitar að koma til landsins Stefán Ingimar Koeppen Brynjarsson, sem er eftirlýstur á vef alþjóðalögreglunnar Interpol að beiðni lögreglu á Íslandi, hefur verið í sambandi við lögreglu hér á landi en harðneitar að koma til landsins til yfirheyrslu. Lögregla vill ná tali af honum vegna þriggja mála sem varða innflutning fíkniefna. 18.3.2024 17:41
Hjúkrunarfræðingur neitaði að taka hraðpróf og fær ekki krónu Landsréttur hefur sýknað heilbrigðisfyrirtæki af öllum kröfum konu, sem höfðaði máli til heimtu skaðabóta eftir að ráðningarsamningi hennar var rift. Landsréttur taldi konuna hafa gerst seka um verulega vanefnd á ráðningarsamningi með því að neita að taka Covid-19 hraðpróf. 15.3.2024 16:32
Refsing fótboltamannsins staðfest Þriggja ára fangelsisrefsing Demetrius Allen, bandarísks karlmanns sem leikið hefur amerískan fótbolta hér á landi, fyrir nauðgun hefur verið staðfest. 15.3.2024 15:59
Segir lesskilningi fara hrakandi og baunar á formanninn Ómar R. Valdimarsson, lögmaður og eigandi Flugbóta.is, gefur lítið fyrir gagnrýni á störf hans þegar mál var höfðað fyrir hönd ungra hjóna, að því er virðist að þeim forspurðum. Máli sínu til stuðnings birtir hann tölvupóstsamskipti við umbjóðendur sína opinberlega á Facebook. 15.3.2024 14:49
Ríflega helmingur vill ekki skipta við Rapyd Tæplega sextíu prósent þeirra sem taka afstöðu vilja síður eða alls ekki eiga viðskipti við fyrirtæki sem nýta greiðslumiðlun frá Rapyd. 15.3.2024 12:09
Sakar þingmenn um að nota íslenskuna sem vopn gegn útlendingum Uppgjafaprófessor í íslensku segist hafa beðið í angist eftir því að íslenskan yrði notuð opinberlega og á óskammfeilinn hátt sem vopn í þeirri útlendingaandúð sem hér sé miskunnarlaust alið á þessa dagana. Það hafi nú raungerst með ummælum tveggja þingmanna Sjálfstæðisflokks um að gera ætti íslenskukunnáttu að skilyrði fyrir leyfi til leigubílaaksturs. 15.3.2024 10:50
Gefur ekki kost á sér Ólafur Jóhann Ólafsson mun ekki gefa kost á sér í embætti forseta Íslands. 14.3.2024 14:40