Leita að gæsluvarðhaldsfanga sem slapp úr haldi lögreglu Yfirvöld leita nú að Gabríel Douane Boama, tvítugum gæsluvarðhaldsfanga sem slapp úr haldi lögreglu við Héraðsdóm Reykjavíkur um sjö leytið dag. Lögregla hefur lýst eftir honum og segir mikilvægt að hann finnist sem fyrst. 19.4.2022 21:58
Vantrauststillaga mögulega til umræðu á félagsfundi Eflingar Félagsmenn Eflingar hafa safnað hátt í 500 undirskriftum þar sem þess er krafist að kallað verði til félagsfundar. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að greiða atkvæði um vantrauststillögu á Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, á fundinum. 19.4.2022 20:48
Gagnrýna ákvörðun formanna stjórnarflokkanna: „Í hæsta máta óeðlileg afgreiðsla“ Þingmaður Samfylkingarinnar gagnrýnir einhliða ákvörðun um að leggja niður heila ríkisstofnun og telur ljóst að lagaleg ábyrgð hvíli á fjármálaráðherra. Varaformaður þingflokks Viðreisnar segir ótækt að ríkisstjórnin reki einfaldlega undirmenn þegar hitna fer í kolunum. 19.4.2022 20:01
Fuglaflensa staðfest í hænunum á Skeiðum Fuglaflensan hefur nú greinst í heimilishænum en sýni voru tekin úr hænum á bænum Reykjum á Skeiðum í síðustu viku. Tilkynnt var um það síðastliðinn föstudag að fuglaflensa hefði greinst í þremur villtum fuglum, þar á meðal í hrafni sem fannst dauður á Skeiðum. Þá var sterkur grunur um að hænurnar á Skeiðum væru smitaðar sem hefur nú verið staðfest. 19.4.2022 18:27
Ekki lengur grímuskylda í flugi til Bandaríkjanna Grímuskylda verður valkvæð í flugferðum á vegum Icelandair og Play til Bandaríkjanna. Play og Icelandair slökuðu á sínum reglum varðandi grímuskyldu í ákveðnum ferðum í Evrópu í síðasta mánuði en hafa nú stigið skrefinu lengra í samræmi við úrskurð alríkisdómara í Bandaríkjunum. 19.4.2022 18:06
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forsætisráðherra telur ekki að fjármálaráðherra þurfi að víkja vegna sölunnar á Íslandsbanka. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja Bankasýsluna niður og rannsókn er hafin á sölunni. Bankasýslan segir söluna í samræmi við yfirlýst áform en skoðar nú lagalega stöðu sína gagnvart söluaðilum bankans. 19.4.2022 18:01
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að hækka Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 869,9 stig í mars og hækkar um 3,1 prósent milli mánaða. Þetta er mesta hækkunin á einum mánuði frá því í mars 2021, þegar vísitalan hækkaði um 3,3 prósent milli mánaða. 19.4.2022 17:41
Dapurlegt að sjá umhverfið skemmt í algjöru skeytingarleysi Dapurleg sjón blasti við feðgum sem héldu leið sína upp Ingólfsfjall í morgun en töluverð náttúruspjöll höfðu þá verið unnin á fjallinu. Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu og Umhverfisstofnunar en skemmdirnar virðast vera mjög umfangsmiklar. 18.4.2022 23:55
Ferðamenn streyma til landsins á ný Mikið líf er í miðbænum um þessar mundir og ferðamenn farnir að streyma til landsins á ný. Sól og blíða var víða á höfuðborgarsvæðinu í dag og ræddi fréttastofa við nokkra ferðamenn í tilefni dagsins. 18.4.2022 23:10
Segir Úkraínumenn tilbúna fyrir átökin: „Við munum berjast“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að baráttan um Donbas sé hafin en aukinn þungi hefur færst í sókn Rússa í austurhluta landsins í dag. Forsetinn sagði að Úkraínumenn munu halda áfram að berjast og það væri aðeins tímaspursmál hvenær þeir ná sínum svæðum aftur. 18.4.2022 21:59