Fresta gjaldskyldu við Landspítala skömmu eftir að hún var kynnt Fyrirhugaðri gjaldtöku við húsnæði Landspítalans á Hringbraut og við Landakot hefur verið frestað. Gjaldtakan átti að hefjast 1. nóvember næstkomandi. Starfsmönnum spítalans var tilkynnt þetta í dag, en hafði skömmu áður verið greint frá gjaldtökunni. 6.10.2023 14:09
Dæmdur fyrir árás sem einungis hann sjálfur gat lýst Karlmaður hefur hlotið fjögurra mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Vestfjarða fyrir líkamsárás gagnvart öðrum manni. Brotaþoli árásarinnar kvaðst ekki muna eftir henni og þá mat dómurinn framburð vitnis ótrúverðugan. Þar af leiðandi var framburður ákærða í raun eina lýsingin á árásinni frá einstaklingi sem var viðstaddur atburðarásina. 5.10.2023 18:31
Sex sagt upp hjá TM eða boðið skert starfshlutfall Tryggingafélagið TM ýmist sagði upp eða bauð sex starfsmönnum skert starfshlutfall í gær. Aðgerðirnar varða fimm mismunandi stöðugildi. 5.10.2023 16:42
Hafa lifað skemur en jafnaldrar þeirra Einstaklingar sem voru sem börn á Vöggustofunni Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins hafa lifað skemur en jafnaldrar þeirra. Þá voru þeir einnig líklegri til að fara á örorku. 5.10.2023 14:59
Bein útsending: Skýra frá athugun sinni á vöggustofunum Nefnd sem hafði það verkefni að kynna sér starfsemi tveggja vöggustofa sem reknar voru í Reykjavík á síðustu öld mun kynna niðurstöðu skýrslu sinnar á blaðamannafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. 5.10.2023 13:40
Ökklabrotnaði við fall í tröppum á Eiðistorgi og fær engar bætur Tryggingafélagið Sjóvá er ekki skaðabótaskylt í máli manns sem féll niður tröppur í verslunarkjarnanum Seltjarnarnesi árið 2016. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu í vikunni ósannað að slysið hafi átt sér stað vegna vanrækslu Sjóvá eða vegna annarra atvika sem myndu gera félagið skaðabótaskylt. 5.10.2023 10:47
Lausagöngufé ærir íbúa Vestmannaeyja sem ætluðu að njóta efri áranna Einhverjir íbúar Vestmannaeyja hafa fengið sig fullsadda á lausagöngufé í Heimaey. Bréf sem þrettán íbúar sendu bæjarráði Vestmannaeyja var tekið fyrir á fundi ráðsins í síðustu viku. Í fundarskýrslu segir að bæjarráð hafi fullan skilning á þreytu íbúa vegna málsins og leggur áherslu á í umfjöllun sinni að þeir sem fylgi ekki reglum um búfjárhald muni ekki fá leyfi til að halda slíku áfram. 5.10.2023 07:00
Skjálfti að stærð 4,7 við Bárðarbungu Nokkuð stór skjálfti varð í dag við Bárðarbungu. Á vef Veðurstofu Íslands segir að hann hafi átt sér stað um það bil tíu mínútur yfir fjögur í dag. 4.10.2023 16:53
Gekkst við „bossapartýi“ á leikskóla Ungur karlmaður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir blygðunarsemis- og barnaverndarlagabrot og kynferðislega áreitni gegn barni Ákvörðun um refsingu mannsins hefur verið frestað, og mun falla niður að fimm árum liðnum, en honum var gert að greiða þremur börnum miskabætur. 4.10.2023 16:22
Framtíðin sé á Íslandi en verður sendur út eftir nokkra daga Á dögunum kom lögreglumaður á skrifstofu Þróttar og tilkynnti að búið væri að kaupa flugmiða fyrir vallarstjóra félagsins. Honum á að vísa úr landi þann sextánda október næstkomandi. 4.10.2023 14:08