Apabóla nú skilgreind sem tilkynningarskyldur sjúkdómur Apabóla er nú skilgreind sem tilkynningarskyldur sjúkdómur eftir að heilbrigðisráðherra gerði breytingu á reglugerð um skýrslugerð vegna sóttvarna. 10.6.2022 12:01
Býst við fleiri tilfellum af apabólu á næstu dögum Tveir íslenskirkarlmenn á miðjum aldri greindust með apabólu á fyrsta prófi hér á landi í gær. Smitin eru rakin til ferðalags annars þeirra til Evrópu. Hvorugur er alvarlega veikur. Sóttvarnalæknir býst við fleiri tilfellum á næstu dögum en telur ekki líkur á stórum faraldri. Rætt var við sóttvarnalækni í hádegisfréttum Bylgjunnar. 9.6.2022 12:06
Fundarhöld með namibískum rannsakendum og saksóknara Héraðssaksóknari hefur átt tvo fundi með þeim sem fara fyrir rannsókn og saksókn í Samherjamálinu í Namibíu. Varaforsætisráðherra Namibíu er stödd hér á landi ásamt sendinefnd til að ræða við íslensk stjórnvöld og rannsakendur. Héraðssaksóknari segir að það sé góður gangur á rannsókninni. 8.6.2022 12:16
Segir breytingar á forsætisnefnd vera pólitísk hrossakaup Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óskuðu í dag eftir því að afgreiðslu á tillögu meirihlutans um breytt hlutverk forsætisnefndar yrði frestað. Klukkan 14 hófst fyrsti borgarstjórnarfundur nýrrar borgarstjórnar. 7.6.2022 15:19
Tengiflugskerfið til Bandaríkjanna umbreytir rekstri Play Flugfélagið Play flutti rúmlega 56.600 farþega í maí sem er 58% aukning frá aprílmánuði. Farþegafjöldinn í maí var jafnmikill og á öllum fyrsta ársfjórðungi. Forstjóri Play segir tengiflugskerfi til Bandaríkjanna umbreyta rekstrinum og að það gangi vel að koma sér fyrir á flugmarkaðnum. 7.6.2022 13:09
Gagnrýnir ákvörðun flokkssystur um „enn eina nefndina“ Varaþingkona VG gagnrýnir sjávarútvegsráðherra og flokkssystur fyrir að setja á laggirnar enn eina nefndina um endurskoðun kvótakerfisins. Það sé brýnt að taka til hendinni strax og byggja á þeim gögnum sem nú þegar liggja fyrir. 3.6.2022 13:52
Óheppilegt að „höfðingjaleg gjöf“ hafi verið dregin til baka Krabbameinsfélagið hefur afturkallað 450 milljón króna styrk sem ætlaður var Landspítalanum. Skilyrði sem félagið setti voru ekki uppfyllt og segir forstjóri Landspítalans að ákvörðunin sé óheppileg en skiljanleg. 2.6.2022 11:08
„Það mun ábyggilega taka nokkur ár að ná fyrra trausti“ Mannauðsstjóri ISAVIA telur að það muni taka nokkur ár að ná því trausti sem fólk hafi áður borið til flugvalla sem vinnustað eftir þrengingarnar sem fylgdu kórónuveirufaraldrinum. Fylgifiskur sóttvarnatakmarkana sem ýmist voru hertar eða víkkaðar út var skert starfshlutfall og uppsagnir. 1.6.2022 13:20
Vill að Íslendingar leggi áherslu á gæði umfram magn í ferðaþjónustu Forstjóri Brimborgar vill að Íslendingar marki sér stefnu í ferðamannamálum um að laða til landsins ferðamenn sem borgi vel. Leggja þurfi áherslu á gæði umfram magn í ferðamennsku. Hann kveðst sannfærður um að það myndi leysa mönnunarvanda og gera greinina sjálfbærari. 31.5.2022 14:32
Slegist um þjóna og kokka í ferðaþjónustunni Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir ferðaþjónustuna hafa tekið hraðar við sér eftir faraldurinn en fólk almennt hafði gert ráð fyrir og er svo komið að mörg ferðaþjónustufyrirtæki hafa lokað fyrir sölu. Mikil vöntun er þó á matreiðslufólki og þjónum í sumar og er slegist um þetta starfsfólk. 30.5.2022 13:57