„Þurfum greinilega að gera betur“ „Ég þarf engar ráðleggingar frá Sigmundi Davíð þó það sé alltaf gaman að hlusta á hann. Hann er svolítill spéfugl og hefur gaman af því að tala.“ Þetta segir Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins innt eftir viðbrögðum við ummælum formanns Miðflokksins, sem segir Sjálfstæðisflokkinn orðinn að „umbúðaflokki“. 30.7.2023 20:48
Grjóthrun vegna jarðskjálfta við Landmannalaugar Grjóthrun varð í Landmannalaugum vegna jarðskjálftahrinu í dag. 30.7.2023 18:51
Grýtti hljóðnema í aðdáanda Framkoma rapparans Cardi B á tónleikum í Las Vegas í gær fór ekki sem skyldi. Við flutning á laginu Bodak yellow grýtti hún hljóðnema í konu sem kastaði drykk yfir rapparann á sviðinu. 30.7.2023 18:42
Edda Björg og Vigdís Hrefna ráðnar sem dósentar Leikkonurnar Edda Björg Eyjólfsdóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir hafa verið ráðnar sem dósentar við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands. 30.7.2023 18:21
Goslok möguleg eftir eina til tvær vikur Dregið hefur úr afli gossins um 30 til 50 prósent síðustu vikuna. Goslok eru möguleg eftir eina til tvær vikur ef framleiðni gossins heldur áfram að falla með sama hraða. 29.7.2023 23:07
Tvöfaldur íbúafjöldi á hinsegin hátið í Hrísey Það er mikið um dýrðir í Hrísey þessa helgina. Þar er haldið upp á hinsegin daga í fyrsta sinn og er búist við því að tvöfaldur íbúafjöldi sé staddur á eyjunni yfir helgina. 29.7.2023 21:42
Gefur nýja kærastanum svigrúm til að skilja við eiginkonuna Söngkonan Ariana Grande og nýr kærasti hennar, leikarinn Ethan Slater, hafa ekki hist í nokkurn tíma. Er það vegna þess að Ariana vill veita Ethan svigrúm til að ganga frá skilnaði við eiginkonu hans, Lilly Jay. 29.7.2023 20:20
Sjálfstæðismenn þurfi að gera upp málin hjá sér Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir Sjálfstæðismenn verða að gera upp málin innan sinna raða. Mikil óánægja er innan raða Sjálfstæðisflokks með ríkisstjórnarsamstarfið. 29.7.2023 18:48
Fluttur slasaður af Langjökli eftir vélsleðaslys Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Landspítalanum í Fossvogi rétt fyrir klukkan sex í dag með slasaðan mann sem var fluttur af Langjökli eftir vélsleðaslys. 29.7.2023 17:55
Milli sex og átta milljarðar tapist í þjófnaði brotahópa Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir stærstan hluta þjófnaða í verslunum vera af völdum erlendra brotahópa. Hann segir lögreglu ekki nægilega tæknivædda til að taka á vandanum og bindur því vonir við að nýr þjófavarnarbúnaður, sem nýtir myndgreiningu í samráði við lögreglu, taki á vandanum. 28.7.2023 17:51