Því lengra frá bænum, þeim mun betra veður „Veðurspá helgarinnar er með besta móti um allt land.“ Með þeim orðum hefst daglegur pistill veðurfræðings Veðurstofunnar. Þetta er þó alls ekki raunin því allur Suðvesturfjórðungur landsins, þar á meðal höfuðborgarsvæðið, virðist missa af allri sól um helgina. 31.7.2021 07:46
Handtekinn fyrir að yfirgefa farsóttahús fullur Lögregla handtók mann við Hlemm klukkan að verða ellefu í gærkvöldi en sá átti að vera í farsóttahúsi. Hann hafði yfirgefið farsóttahúsið ofurölvi í gærkvöldi og var sökum ástands síns vistaður í fangageymslu í nótt. 31.7.2021 07:18
Rétt nær að standa við gamalt loforð með skáldsögu fyrir sjötugt Að fara á eftirlaun getur reynst þeim erfitt sem eru fullfrískir og orkumiklir og vilja ekki sitja aðgerðalausir heilu og hálfu dagana. Gróa Finnsdóttir er ein þeirra en hún deyr ekki ráðalaus og mun nú eftir helgi efna gamalt loforð með útgáfu sinnar fyrstu skáldsögu rétt fyrir sjötíu ára afmælisdaginn. Þannig leggur hún í leiðinni grunn að nýjum starfsferli sínum sem rithöfundur á eftirlaunaaldrinum. 31.7.2021 07:00
Akureyrskir Pálmar með kveðju af ströndinni Akureyrska hljómsveitin Pálmar hefur sent frá sér nýtt tónlistarmyndband við þriðja lag sitt Sæll vinur. 30.7.2021 17:12
Sýnatökuprófin segja ekki bara já eða nei Það kemur fyrir að falskar jákvæðar niðurstöður komi út úr greiningu sýna hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Bæði getur verið um tæknileg frávik að ræða en einnig að út komi „mjög óafgerandi niðurstöður“ úr sýnatökunni. 30.7.2021 17:03
Elskar að djamma en fær ekki að djamma Álfgrímur Aðalsteinsson hefur gert gott mót á samfélagsmiðlinum TikTok undanfarið. Þar er hann með um 11 þúsund fylgjendur og hafa vinsældir hans farið sívaxandi undanfarið. Hann hefur nú gefið út lag, sérstaklega tileinkað djamminu, sem hann fær þó ekki að stunda af eins miklum móði og hann hefði sjálfur viljað. 30.7.2021 16:01
Stytta einangrun bólusettra niður í 10 daga Sóttvarnalæknir hefur tekið ákvörðun um að stytta einangrunartíma þeirra sem hafa smitast af Covid-19 ef þeir eru bólusettir og geta talist til „hraustra einstaklinga“. Þeir verða framvegis aðeins að vera í einangrun í tíu daga en ekki tvær vikur eins og hefur verið hingað til. 30.7.2021 14:55
Delta-afbrigðið jafn smitandi og hlaupabóla Delta-afbrigði kórónuveirunnar virðist vera meira smitandi en veirurnar sem valda venjulegu kvefi, árlegum flensum, ebólu og MERS-sjúkdómnum, að mati Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC). Talið er að delta-afbrigðið sé eins smitandi og hlaupabóla, sem er afar smitandi sjúkdómur. 30.7.2021 12:21
Vona að þriðji skammtur Pfizer hefti útbreiðsluna Ísraelsmenn munu byrja að gefa þriðja skammt af bóluefni Pfizer til allra þeirra sem eru sextíu ára og eldri næsta sunnudag. Vonast er til að með þriðja skammtinum náist enn betri vörn gegn delta-afbrigði veirunnar og þannig verði hægt að stöðva útbreiðslu faraldursins í landinu, sem hefur verið að ná sér aftur á strik. 30.7.2021 11:12
Erfitt að elta veðrið um verslunarmannahelgina Ef fólk hyggst elta veðrið um verslunarmannahelgina gæti það reynst erfitt. Veðrið er best í höfuðborginni í dag, á Vestfjörðum á morgun en á Austur- og Norðausturlandi á sunnudag og mánudag. 30.7.2021 10:31