Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Harpa ætlar að bjóða höfuðborgarbúum sem komast ekki austur á firði upp á tónleikamiða á helmingsverði og ókeypis mímósur vegna leiðindaveðursins sem herjar á borgina um helgina. Hildur Ottesen Hauksdóttir kynningarstjóri Hörpunnar segist finna fyrir bugun höfuðborgarbúa og hvetur önnur fyrirtæki til að létta lund þeirra. 12.7.2024 15:25
Ártúnshöfði gengur í endurnýjun lífdaga Ártúnshöfði gengur í endurnýjun lífdaga. Áætlað er að í þessu nýja borgarhverfi rísi allt að átta þúsund íbúðir og að þar geti búið allt að tuttugu þúsund borgarbúar. 12.7.2024 14:08
Freista þess að spá um sólstorma með loftbelgnum yfir Íslandi Loftbelgurinn sem sást á sveimi yfir Austurlandi í gær er á vegum samstarfsverkefnis bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA og hinnar þýsku Max Planck-stofnunar. Sævar Helgi Bragason, eða Stjörnu-Sævar eins og hann er iðulega kallaður, segir belginn vera tilraun til að skilja betur hvernig sólin okkar virkar og hvernig hægt sé að spá fyrir um svokallaða sólstorma. Eitthvað sem gæti verið gífurlega dýrmætt. 12.7.2024 12:06
Manndrápsmálið á Akureyri komið til saksóknara Mál manns sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana á Akureyri í lok aprílmánaðar þessa árs er komið á borð héraðssaksóknara. 12.7.2024 11:03
Mundi ekki afmælisdag eiginkonunnar Snorri Másson fjölmiðlamaður lenti í því að gleyma afmælisdegi eiginkonu sinnar Nadine Guðrúnar Yaghi. Hann sagði fullum hálsi í hlaðvarpsþætti sínum þar sem stjörnumerki og -speki voru til umræðu að eiginkona hans ætti afmæli fjórtánda mars og væri því hrútur en hvorugar þessara staðhæfinga eru réttar. 12.7.2024 10:39
Bíða eftir niðurstöðum blóðsýnatöku Lögregla bíður eftir niðurstöðum blóðsýnis sem tekið var úr manninum sem ók yfir umferðareyju í vesturbæ Reykjavíkur í síðustu viku. Málið er fullrannsakað að öðru leyti og það skýrist um mánaðamótin hvort gefin verði út ákæra vegna málsins. 12.7.2024 10:13
Vísaði til Selenskís sem Pútíns og varaforsetans sem Trumps Ymjan fór um salinn þegar Joe Biden Bandaríkjaforseti fór mannavillt í annað skiptið í kvöld og kallaði Donald Trump varaforseta sinn. Hann hafði fyrr um kvöldið kynnt Volodímír Selenskí Úkraínuforseta upp í ræðustól sem „Pútín forseta.“ 12.7.2024 00:10
Loftbelgur frá NASA svífur yfir Austurlandi Loftbelgur hefur sést svífa í háloftunum yfir Austurlandi í dag og margar kenningar hafa fæðst um hvaða fljúgandi furðuhlutur þetta sé. Sumir hafa haldið að um sé að ræða kínverskan eða rússneskan njósnabelg en aðrir einkennilega blöðrulaga ský. Sannleikurinn er sá að belgurinn er rannsóknarloftbelgur frá bandarísku heimvísindastofnuninni NASA. 11.7.2024 23:30
Blaðamannafundur Biden á afmælisfundi Atlantshafsbandalagsins Joe Biden Bandaríkjaforseti heldur í kvöld blaðamannafund að leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins loknum. Hann hefur sætt gagnrýni og jafnvel áköll um að stíga til hliðar í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum vegna lélegrar frammistöðu í kappræðum milli hans og Donalds Trump mótframbjóðanda hans. 11.7.2024 22:43
Biden kynnti Selenskí sem „Pútín forseta“ Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti Volodímír Selenskí Úkraínuforseta sem „Pútín forseta“ við athöfn á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í kvöld. 11.7.2024 22:12