Dælan í fullum gangi Strákarnir í Dælunni ætla að skoða hinn nýja Lego Fortnite í streymi kvöldsins. 7.12.2023 21:00
„Maður vissi ekkert hvar skotmaðurinn var“ Hermann Þór Ragnarsson, nemandi við Háskóla Nevada í Las Vegas í Bandaríkjunum, segir nemendur við skólann í sjokki eftir skotárás á skólalóðinni í gær. Margir hafi ekki snúið aftur í skólann. 7.12.2023 20:01
Vilja hækka olíuverð Ráðamenn í Rússlandi og Sádi-Arabíu hafa biðlað til annarra olíuframleiðenda í OPEC+ að draga úr framleiðslu. Olíuverð hefur lækkað töluvert að á undanförnum mánuðum en í gær hafði verðið ekki verið lægra í hálft ár. Rússar og Sádar vilja stöðva þá þróun og hækka verð á nýjan leik. 7.12.2023 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Öllum mögulegum flóttaleiðum íbúa Gaza hefur verið lokað eftir að Ísraelsmenn hófu öflugar loftárásir á suðurhluta Gazastrandarinnar. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum okkar klukkan 18:30. 7.12.2023 18:00
Biden tilbúinn að lúffa fyrir Repúblikönum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir að frekari hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum geti ekki beðið þar til eftir jól. Þingið þurfi að samþykkja nýjar fjárveitingar til aðstoðarinnar og bað hann þingmenn um að leggja deilur sínar til hliðar í bili. 6.12.2023 23:50
Íslenskur nemandi í Las Vegas: „Ólíkt öðru sem ég hef upplifað áður“ Hermann Þór Ragnarsson, nemandi við Háskóla Nevada í Las Vegas í Bandaríkjunum, segist aldrei hafa upplifað annað eins, eftir að skotárás var gerð í skólanum fyrr í kvöld. 6.12.2023 23:02
Skotárás í Las Vegas: „Flýið, felið ykkur, berjist“ Lögreglan var kölluð að lóð Háskóla Nevada í Las Vegas í Bandaríkjunum í kvöld vegna skothríðar sem heyrðist á lóðinni. Þrír liggja í valnum, auk árásarmannsins, og einn er særður. 6.12.2023 20:59
Skoða glænýjan Warzone Stelpurnar í Babe Patrol ætla að kíkja á nýja Warzone í sérstökum jólaþætti í kvöld. Warzone var uppfærður í dag og fá spilarar nú að skjóta hvorn annan í nýju borði. 6.12.2023 19:30
Pútín á ferð og flugi um Mið-Austurlönd Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lenti í morgun í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og ferðaðist hann einnig til Sádi-Arabíu. Hann hefur sjaldan lagt land undir fót frá því innrás Rússlands í Úkraínu hófst í fyrra. 6.12.2023 18:50
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Meirihluti fatlaðs fólks á erfitt með að ná endum saman, neitar sér um heilbrigðisþjónustu og metur andlega heilsu slæma. Rannsakendur segja sláandi niðurstöður hafa komið á óvart. Velferðarkerfið hefur brugðist og ráðamenn þurfa að bregðast að sögn forsvarsfólks hópsins. 6.12.2023 18:01