Jólahátíðin okkar snýr aftur Jólahátíðin okkar, jólahátíð fyrir fatlaða, snýr aftur í kvöld. Hátíðin hefur verið haldin árlega í rúma fjóra áratugi en pása var gerð á henni undanfarin ár vegna faraldurs Covid. 6.12.2023 17:42
Neituðu að sleppa Whelan og Gershkovich fyrir njósnara Ráðamenn í Rússlandi höfnuðu nýlegu tilboði Bandaríkjamanna um frelsun Paul Whelan og Evan Gershkovich. Talsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna segir tilboðið hafa verið umfangsmikið en sagði ekki af hverju því hefði verið hafnað. 5.12.2023 23:52
Saka Trump um að hafa æst fólk til ofbeldis Saksóknarar á vegum Jack Smith, sérstaks rannsakanda dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, segja Donald Trump, fyrrverandi forseta, hafa ítrekað logið um úrslit kosninganna 2020 og æst stuðningsmenn sína til ofbeldis. 5.12.2023 23:00
Skaut mann á tæplega fjögurra kílómetra færi Úkraínsk leyniskytta er sögð hafa sett nýtt met þegar hann skaut rússneskan hermann á 3.800 metra færi. Það gerði hinn 58 ára gamli Vyacheslav Kovalskiy með sérsmíðaðri byssu og sérstökum skotum. Skotið sem hæfði hermanninn var um níu sekúndur á leiðinni. 5.12.2023 18:19
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sjúklingar fylla gólfin á spítölum Gasa og staðan versnar með hverri klukkustund að mati hjálparstofnana. Fólk geti ekki flúið í öruggt skjól á sama tíma og Ísraelsher kallar eftir umfangsmeiri rýmingum. 5.12.2023 18:00
Sendiherra sakaður um að njósna fyrir Kúbu Manuel Rocha, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Bólivíu, hefur verið ákærður fyrir að hafa njósnað fyrir leyniþjónustu Kommúnistaflokksins á Kúbu. Hann er sakaður um að hafa njósnað fyrir Kúbumenn í áratugi eða allt frá árinu 1981. 4.12.2023 23:52
Fyrsta stikla GTA 6 lítur loks dagsins ljós Starfsmenn Rockstar Games hafa loks birt fyrstu stiklu næsta leiks í Grand Theft Auto seríunni vinsælu. Til stóð að birta hann á morgun en honum var lekið á netið svo starfsmenn fyrirtækisins birtu hann í kvöld. 4.12.2023 23:20
Laufey tekur fram úr Björk Tónlistarkonan Laufey hefur tekið fram úr Björk sem vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn á Instagram. Laufey er nú með rétt rúmlega tvær milljónir fylgjenda en Björk er með 1,97 milljónir. 4.12.2023 22:29
Hvatti fólk til að hamstra mentólsígarettur Hildur Sverrisdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, hvatti saumaklúbbakonur og djammreykingamenn um að hamstra mentólsígarettur á næstu fjórum árum. Eftir það verða þær líklega ófáanlegar hér á landi. 4.12.2023 20:01
GameTíví: Barist um brotajárnið í Lethal Company Strákarnir í GameTíví þurfa að taka á því til að ná kvótanum í Lethal Company í kvöld. Sá leikur hefur notið mikilli vinsælda að undanförnu en hann gengur út á að fjórir spilarar þurfa að safna brotajárni og öðru á mjög svo hættulegum plánetum. 4.12.2023 19:32